Píratar vilja auka tekjur ríkissjóðs um 100 milljarða

Í kosn­inga­kerfi Pírata er lagt til að fjár­magnstekju­skattur verði hækk­aður, afla­heim­ildir boðnar upp, skattar á stór­iðju hækk­aðir, nýr gjald­mið­ill tekin upp og sölu­and­virði Íslands­banka verði notað til að fjár­magna gjald­þrota líf­eyr­is­kerfi.

Þingmenn Pírata. Samkvæmt könnunum mun þeim fjölga umtalsvert eftir næstu kosningar.
Þingmenn Pírata. Samkvæmt könn­unum mun þeim fjölga umtals­vert eftir næstu kosn­ingar. Mynd: Birgir Þór

Í kosn­inga­kerfi Pírata liggur nú fyrir tíu liða stefna sem ætlar er að auka tekjur rík­is­sjóðs um allt að 100 millj­arða króna á ári og tekjur sveita­fé­laga um 10-15 millj­arða króna á ári. Til­gang­ur­inn er sagður vera að liðka fyrir upp­bygg­ingu vel­ferðar, sér­stak­lega heil­brigðis- og mennta­kerfi, á Íslandi með hag­ræð­ingu og til­færslu fjár­muna í rík­is­rekstri, skatt­lagn­ingu fjár­magns­eig­enda, stór­iðju og kvóta­eig­enda sem og útskipt­ingu íslensku krón­unnar sem gjald­mið­ils. Á meðal þess sem lagt er til er að hækka fjár­magnstekju­skatt, bjóða upp afla­heim­ildir og láta stór­iðju borga fullan tekju­skatt.

Í stefn­unni er auk þess lagt til að Íslands­banki verði seldur erlendum banka og „sölu­and­virðið notað til að fjár­magna líf­eyr­is­kerfi opin­berra starfs­manna sem er í raun gjald­þrota“. Í grein­ar­gerð sem fylgir með stefn­unni segir að hall­inn á Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) og líf­eyr­is­sjóðum sveit­ar­fé­laga sé í heild tæpir 600 millj­arðar króna, og er vísað í fjár­lög árs­ins 2016 því til stuðn­ings.

Stefnan hefur verið lögð fram í kosn­inga­kerfi Pírata og stendur kosn­ing um hvern lið hennar nú yfir. Hún byggir m.a. á þegar sam­þykktri sjáv­ar­út­vegs­stefnu og stefnu um bann við þunnri fjár­mögnun. Kosningu lýkur eftir tvo daga og þá liggur fyrir hverjir lið­anna tíu verða hluti af grunn­stefnu Pírata í aðdrag­anda næstu kosn­inga.

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar mæl­ast Píratar með 27,7 pró­sent fylgi. Það er nán­ast sama fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með. Þessir tveir flokkar væru þeir einu sem gætu myndað tveggja flokka meiri­hluta­stjórn að loknum kosn­ingum í haust miðað við fylg­is­stöðu flokka í dag. Sam­an­dregið þá eru miklar líkur á því að Píratar verði í lyk­il­stöðu við stjórn­ar­myndun eftir nokkra mán­uði.

Skattahækkanir bornar af „breiðustu bökum þjóðfélagsins"

Ragnar Hannes Guð­munds­son, stjórn­sýslu­fræð­ingur og cand oecon viðsk­fræð­ingur, og Mörður Ing­ólfs­son, fram­kvæmda­stjóri hýs­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 1984, eru höf­undar til­lagn­anna. Ragnar bendir á að til þess að bæta útgjöld til heil­brigð­is­mála í sam­ræmi við inni­hald und­ir­skrifta­söfn­unar sem Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar stóð fyrir og 85 þús­und manns skrif­uðu undir, þurfi þau útgjöld að verða ell­efu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þau þurfi því að hækka um 60 millj­arða króna á ári. Tillögur þeirra miði að því að tekjur hins opin­bera vaxi um 100 millj­arða króna á ári, og því sé umtals­vert eftir til að nýta til ann­arrar upp­bygg­ingar í vel­ferð­ar­kerf­inu. Auk þess miða til­ög­urnar við að tekjur sveita­fé­laga, sem mörg hver glíma nú við umtals­verðan rekstr­ar­vanda, hækki um 10-15 millj­arða króna á ári.

Til­lög­urnar eru rót­tækar og ljóst að þær munu ekki falla öllum í geð. Í þeim er t.d. lagt til að fjár­magnstekjur verði hækk­aður úr 20 pró­sentum í 30 pró­sent. Það muni skila rík­is­sjóði 15 millj­örðum króna í við­bót­ar­tekjur. Í grein­ar­gerð sem fylgir þeirri til­lögu segir að 10-11 pró­sent rík­ustu Íslend­ing­arnir eigi 70-75 pró­sent af eignum lands­manna og „þannig að ætla má að nær öll hækk­unin yrði borin af breið­ustu bökum þjóð­fé­lags­ins“. Gert er ráð fyrir því að frí­tekju­mark verði hækkað til að hlífa smærri fjár­magns­eig­endum í þess­ari aðgerð. Ragnar og Mörður rök­styðja þessa með því að benda á að fjár­magnstekju­skattur sé til­tölu­lega lágur á Íslandi miðað við nágranna­lönd okkar, þar sem 30 pró­sent sé algengt skatt­flut­fall.

Í til­lögum þeirra er einnig gert ráð fyrir að afla­heim­ildir verði boðnar upp í sam­ræmi við sjáv­ar­út­vegs­stefnu Pírata. Gert er ráð fyrir að þriðj­ungur upp­boðs­tekna renni til sveit­ar­fé­laga i gegnum jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga eða sam­bæri­legan sjóð. Árlegar við­bóta­tekjur rík­is­sjóðs af þess­ari aðgerð eiga að vera 20 millj­arðar króna á ári en sveit­ar­fé­laga um tíu millj­arðar króna.

Stóriðja borgi meiri skatta og brjóta upp fákeppni í sölu lyfja

Þá er lagt til að stór­iðja og stærri fyr­ir­tæki verði látin borga fullan tekju­skatt í sam­ræmi við þegar sam­þykkta stefnu Pírata um þunna fjár­mögnun. Árlegar við­bóta­tekjur rík­is­sjóðs af þess­ari aðgerð eru um fjórir millj­arðar króna. Auk þess gera til­lög­urnar ráð fyrir að gistin­átta­gjald verði hækkað svo að með­a­tals­upp­hæð þess verði 400 krónur á gistinótt. Það renni óskert til þess sveit­ar­fé­lags þar sem gist er og er áætlað að þetta skili þremur millj­örðum króna á ári.

Í til­lög­unum er einnig að finna stefnu um að brjóta upp fákeppni í sölu lyfja með það að mark­miði að lækka lyfja­verð. Þessi stefna er í sam­ræmi við til­mæli Rík­is­end­ur­skoð­unar um að bæta aðgengi Íslend­inga að stærri lyfja­mörk­uðum til að draga úr lyfja­kostn­aði. Áætlað er að rík­is­sjóður geti sparað um tvo millj­arða króna með þess­ari leið.

Landsbankinn ríkisbanki en Íslandsbanki seldur

Píratar eru líka að móta sér stefnu um hvað eigi að gera við bank­ana sem ríkið á að öllu leyti í dag, Lands­bank­ann og Íslands­banka. Í til­lög­unum segir að Lands­bank­inn skuli vera áfram í eigu íslenska rík­is­ins og að hann greiði sjö til tíu millj­arða króna árlega í arð til rík­is­sjóðs af starf­semi sinni. Þá eigi að sam­eina Íbúða­lána­sjóð (ÍLS) og Lands­bank­ann sem geri það að verkum að „fjár­austur rík­is­sjóðs til ÍLS hætti“.

Ein merki­leg­asta, og lík­ast til umdeildasta, til­lagan sem lögð er fram snýr að því að selja eigi Íslands­banka að öllu leyti til erlends banka og að sölu­and­virðið verði notað til að fjár­magna líf­eyr­is­kerfi opin­berra starfs­manna sem sé í raun gjald­þrota. Í grein­ar­gerð sem fylgir til­lög­unni segir: „Með sölu Íslands­banka er tek­ist á við hinn gríð­ar­lega halla á líf­eyr­is­kerfi LSR og mögu­lega sveit­ar­fé­laga en sú tala er í heild tæpir 600 millj­arðar. Skyn­sam­legt væri að fjár­festa fjár­muni LSR alla erlendis sem og að selja Íslands­banka erlendum banka. Þetta eykur áhættu­dreif­ingu LSR og Íslands, dregur úr ofhitnun í litlu hag­kerfi og eykur sam­keppni á banka­mark­aði.“

Áætlaður sparn­aður með því að láta vænt sölu­and­virði Íslands­banka renna óskipt í að greiða upp ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­sjóðs­skuldir er sagður vera um 20 millj­arðar króna á ári.

Þetta er þó ekki eina til­lagan sem snýr að líf­eyr­is­sjóða­kerfi lands­manna. Einnig er lagt til að kerfið verði lýð­ræð­isvætt og að sjóðs­fé­lagar kjósi alla stjórn­ar­með­limi í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum. Í grein­ar­gerð segir að í líf­eyr­is­sjóðum lands­manna liggi ein­hver mestu völd í íslensku sam­fé­lagi. „Þeim er stjórnað á ólýð­ræð­is­legan hátt af örfáum ein­stak­lingum sem skip­aðir eru af atvinnu­rek­endum og for­svar­mönnum stétt­ar­fé­laga[…]Píratar vilja því að stjórnir líf­eyr­is­sjóða verði alfarið skip­aðar lýð­ræð­is­legan hátt af sjóðs­fé­lögum sjálfum. Hver sjóðs­fé­lagi skuli hafa jafnan fram­boðs og atkvæð­is­rétt til stjórnar síns sjóðs og á það bæði við greið­endur og líf­eyr­is­þega og án til­lits til stétt­ar­fé­lags­að­ildar. Þar með er koll­varpað kerfi þar sem launa­greið­endur og for­svars­menn stétt­ar­fé­laga gangi að þessum sætum vísum og eig­endur fjár­ins ann­ast eftir það vörslu þess og ávöxtun.”

Annar gjaldmiðill spari 30-40 milljarða á ári

Að lokum er lagt til að tekin verði upp alþjóð­legur, gjald­gengur gjald­mið­ill á Íslandi til að auka hag­sæld og sam­keppn­is­hæfni lands­ins, ná fram almennri vaxta­lækkun fyrir alla lands­menn og rík­is­sjóð. Þá verði verð­trygg­ing t.d. ekki lengur umræðu­efni, enda henni sjálf­hætt með upp­töku ann­ars gjald­mið­ils.

Þótt að Seðla­banki Íslands hafi kom­ist að þeirri nið­urt­stöðu að skyn­sam­leg­ast væri fyrir Íslend­inga að taka upp evru ef skipt er um mynt, þar sem þorri við­skipta Íslands er við Evrópu, þá taka Píratar ekki afstöðu til þess hvort að taka ætti upp þann gjald­miðil. Fyrst þurfi þjóðin að tjá sig um afdrif Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Hins vegar er ljóst að með upp­töku alþjóð­lega not­hæfs, stöðugs gjald­mið­ils væru komnar for­sendur fyrir veru­legri vaxta­lækkun á Íslandi. Rík­is­sjóður, fyr­ir­tæki og lands­menn allir spara stórfé.

Áætlaður kostn­aður við að halda í krón­una er um 150-200 millj­arðar á ári í hag­kerfi með um 2000 millj­arða verga lands­fram­leiðslu (GDP). Það er því ávinn­ingur sem nemur allt að 10% af vergri lands­fram­leiðslu í því að losa íslenskt sam­fé­lag við krón­una. Það er ein mesta og mik­il­væg­asta kjara­bót sem hægt væri að veita þjóð­inni á skömmum tíma.”

Að mati til­lögu­höf­unda myndi nýr gjald­mið­ill spara rík­is­sjóði á bil­inu 30 til 40 millj­arða króna á ári í vaxta­kostnað. „Alþýða lands­ins borgar þetta fé útlend­ingum og þeim tíu pró­sent Íslend­inga sem eiga þrjá fjórðu eigna í land­inu. Þetta er því án nokk­urs vafa ein­hver ein­faldasta og stærsta kjara­bót fyrir alla lands­menn sem hægt er að ná fram.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár