Vantar þig flugvél?

Rúgbrauð og rauð­kál, ban­anar og brenni­vín, majo­nes og mjólk, kaffi og kótel­ettur, tómatar og tarta­lettur, núðlur og nauta­steikur. Allt þetta og ótal­margt annað blasir dag­lega við blaða­les­endum í heil­síðu­aug­lýs­ingum danskra versl­ana. Allt á til­boði auð­vitað. Und­an­farna daga hefur hins­vegar birst á síðum blað­anna, í bið­skýlum stræt­is­vagna, á Metro­stöðv­unum í Kaup­manna­höfn og víðar, óvenju­leg aug­lýs­ing frá Boeing flug­véla­verk­smiðj­unum. Eins og geta má nærri er þar ekki verið að aug­lýsa kjöt og nýlendu­vörur heldur orustu­vél. F 18 Super Hornet. Verðið kemur ekki fram í aug­lýs­ing­unni en hins­vegar full­yrt að með því að velja þessa gerð orustu­vélar fremur en vél frá ”keppi­naut­unum” spari danska þjóðin allt að 20 millj­örðum króna (ca. 380 millj­arðar íslenskir) á næstu 30 árum. Ekki er útskýrt hvernig þessi nið­ur­staða er fengin.

Tilefni aug­lýs­ing­ar­innar er flestum Dönum kunn­ugt og kemur reyndar fram í text­anum: til stendur að kaupa nýjar orustu­vélar.

Flugflotinn orðinn aldraður

Danski flug­her­inn ræður yfir 30 orustu­þotum, þær eru af gerð­inni F16 (Fighting Falcon) frá Lockheed Martin.

Þoturnar eru allar orðnar gamlar, flestar frá því um 1980. Þótt þær hafi á sínum tíma verið meðal þeirra full­komn­ustu sem völ var á, og enn not­hæfar, þurfa þær mikið við­hald og tækni­bún­að­ur­inn, að sögn, ekki lengur í sam­ræmi við kröfur nútím­ans.

Margra ára vangaveltur

Mörg ár eru síðan umræður um end­ur­nýjun flug­flot­ans hófust. Þingmenn og yfir­menn hers­ins eru sam­mála um að það sem sumir þeirra hafa kallað ”við­skipti ald­ar­innar” þurfi vand­aðan und­ir­bún­ing og ekki megi hrapa að ákvörð­unum. Nokkrar nefndir hafa, í gegnum árin unnið að und­ir­bún­ingnum, vegið og metið kosti og galla ein­stakra flug­véla­gerða, reynt að leggja mat á þarfir danska flug­hers­ins á kom­andi árum o.s.frv. Mik­il­vægt er að vandað sé til verka, áður en ákvörðun er tekin. Fjár­fest­ingin er mikil, vél­arnar þurfa að henta verk­efnum danska flug­hers­ins, tryggt þarf að vera að vara­hlutir verði fáan­legir næstu ára­tugi svo fátt eitt sé nefnt.

Verkefnin

Í dag skipt­ast verk­efni flug­hers­ins í þrjá meg­in­flokka.+

1. Eftirlit með danskri loft­helgi. Þessu sinna að jafn­aði tvær vélar. Verk­efnið er að fylgj­ast með umferð erlendra flug­véla, ann­arra en far­þega­véla. Umferð erlendra flug­véla um danska loft­helgi, einkum rúss­neskra, hefur auk­ist mikið að und­an­förnu. Danir hafa harð­lega gagn­rýnt Rússa fyrir að virða allar reglur að vettugi og í fyrra mun­aði minnstu að far­þega­vél frá SAS og rúss­nesk flug­vél (sögð njósn­a­vél) rækjust saman yfir Eyr­ar­sundi.

2. Loft­rým­is­eft­ir­lit á vegum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO. Gæslan nær til Íslands og Eystra­salts­land­anna þriggja en þessi lönd ráða ekki yfir flug­her. Samn­ing­ur­inn um eft­ir­litið er frá árinu 2004 og hern­að­ar­brölt Rússa, ekki síst á Krím­skaga, hefur orðið til að aukin nauð­syn er talin á slíku eft­ir­liti.

3. Alþjóð­leg verk­efni. Danmörk hefur skuld­bundið sig til að taka þátt í alþjóð­legum verk­efnum NATO og leggja þar til að minnsta kosti fjórar vélar, með fullri áhöfn og þeirri þjón­ustu, t.d flug­virkjum, sem slíkum verk­efnum til­heyra. Danir hafa sömu­leiðis tekið þátt í verk­efnum ein­stakra NATO landa. Fyrstu verk­efni af þessu tagi voru í Kosovu á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Danskar orustu­vélar tóku einnig þátt í árásum í Afganistan 2002-2003, í Líbíu árið 2011 og í Írak í fyrra og hitteð­fyrra.

Valkostirnir

Nú stytt­ist í að ákvörðun verði tekin um hvaða orustu­vélar eigi að kaupa. Eftir að hafa kannað alla kosti sem í boði eru stendur valið á milli þriggja véla. Tvær þeirra eru fram­leiddar í Banda­ríkj­unum, sú þriðja í Evrópu.

Banda­rísku vél­arnar eru: F- 35 Joint Strike Fighter. Þetta er ný vél fram­leidd af Lockheed Martin. Þessi vél er ekki komin í notkun, byggir að hluta á tækni frá eldri vélum fram­leið­and­ans. Eins og áður sagði eru núver­andi orustu­þotur danska flug­hers­ins frá sömu verk­smiðjum.

F 18 Super Hornet. Fram­leidd hjá Boeing verk­smiðj­unum.Var í upp­hafi hönnuð og smíðuð hjá MCDonnell Douglas, sem síðar sam­ein­að­ist Boeing, árið 1995 en hefur margoft verið tækni­lega end­ur­bætt. Banda­ríski her­inn hefur notað þessa vél árum saman.

Þriðja vélin er frá Airbus í Evrópu: Eurofighter Typhoon. Þessi vél var tekin í notkun árið 2003 en hefur verið end­ur­bætt í takt við aukna og bætta tækni síðan þá.

Allir þrír fram­leið­end­urnir telja vita­skuld sinn fugl feg­urstan. Nú er það þings­ins, varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og hers­ins að taka ákvörðun um kaupin. Sú ákvörðun á að liggja fyrir á næstu mán­uðum, ekki síðar en í árs­lok. Boeing hefur eins og minnst var á í upp­hafi þessa pistils ræki­lega minnt á sig með aug­lýs­ingum, það hafa hinir tveir fram­leið­end­urnir ekki gert. Ekki enn að minnsta kosti.

NATO hefur áhyggjur

Danski her­inn hefur á síð­ustu árum mátt sæta miklum nið­ur­skurði. Yfir­stjórn NATO fylgist grannt með fram­lögum aðild­ar­ríkj­anna til her- og varn­ar­mála og hefur í bréfi til dönsku stjórn­ar­innar lýst áhyggjum. Í bréf­inu segir að ef í fjár­fram­lögum til hers­ins verði ekki tekið til­lit til þeirrar miklu fjár­fest­ingar sem fyr­ir­huguð sé með flug­véla­kaup­unum muni afleið­ingin verða sú að danski her­inn verði ófær um að sinna verk­efnum sínum. Danski varn­ar­mála­ráð­herr­ann hefur ekki tjáð sig bein­línis um áhyggjur NATO en sagði í skrif­legu svari til fjöl­miðla að starf­semi hers­ins í heild sinni skuli rúm­ast innan heim­ilda. Þetta þótti fjöl­miðlum loðið svar.

Mikill meiri­hluti þing­manna virð­ist sam­mála um að nauð­syn­legt sé að end­ur­nýja orustu­þotur hers­ins. Það hafi í raun dreg­ist of lengi. Þegar teknar eru stórar og kostn­að­ar­samar ákvarð­anir dugir ekki að stjórnin og stuðn­ings­flokkar hennar styðji málið, í slíkum til­vikum þarf auk­inn meiri­hluta í þing­inu. Sumir í hópi þing­manna hafa þó spurt hvort nauð­syn­legt sé að kaupa 30 þotur, kannski sé það fullvel í lagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár