158 hjúkrunarfræðingar búnir að segja upp á Landspítalanum

158 hjúkr­un­ar­fræð­ingar á Land­spít­al­anum hafa sagt upp störfum frá því að verk­fall þeirra var bannað fyrir rúmri viku síðan. Flestar upp­sagn­irnar, eða 88 tals­ins, eru á aðgerða- og skurð­lækn­inga­sviði. Frá þessu var greint í hádeg­is­fréttum RÚV.

Alma Möller, fram­kvæmda­stjóri aðgerða­sviðs Land­spít­al­ans, segir í sam­tali við RÚV að alveg ljóst sé að upp­sagn­irnar myndu hafa í för með sér skerta starf­semi á skurð­stofum og á gjör­gæslu­deild, ef þær koma til fram­kvæmda. „Það er ekki gott núna þegar fyrir liggja biðlistar frá verk­föll­unum. Það verður auð­vitað allri bráða­þjón­ustu sinnt en það eru þessar svoköll­uðu val­að­gerðir, þeim yrði fækkað.“ Nú verður farið í að und­ir­búa neyð­ar­á­ætlun fyrir sviðið.

189 heil­brigð­is­starfs­menn hafa sagt upp á Land­spít­al­anum und­an­farna daga og við­búið er að talan hækki í dag. Til sam­an­burðar sögðu 254 hjúkr­un­ar­fræð­ingar upp störfum árið 2012 þegar hjúkr­un­ar­fræð­ingar deildu við spít­al­ann um stofn­ana­samn­ing.

Búið er að boða til fundar í kjara­deilu hjúkr­un­ar­fræð­inga og rík­is­ins í fyrra­málið, en Ólafur G. Skúlason, for­maður félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, sagði við RÚV að hann teldi rík­is­sátta­semj­ara aðeins vera að upp­fylla laga­skyldu sína með boð­inu. Samkvæmt lögum eigi hann að boða til samn­inga­funda ekki sjaldnar en hálfs­mán­að­ar­lega og síð­asti fundur var 10. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár