Varasamt að leyfa fólki að velja sér bóluefni

Rann­sóknir á ónæmi og öryggi þess að blanda bólu­efnum mis­mun­andi fram­leið­enda saman eru skammt á veg komnar. Því ætti ekki, að mati WHO, að leyfa fólki að ráða hvaða efni það fær í öðrum skammti – eða í þeim þriðja, komi til end­ur­bólu­setn­ingar.

Ein rannsókn hefur þegar leitt í ljós að öruggt sé að gefa fólki bæði AstraZeneca og Pfizer-bóluefnin.
Ein rann­sókn hefur þegar leitt í ljós að öruggt sé að gefa fólki bæði AstraZeneca og Pfizer-bólu­efnin. Mynd: EPA

Vís­inda­menn hjá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni vara fólk við því að blanda saman bólu­efnum gegn COVID-19 frá mis­mun­andi fram­leið­endum og segja sér­fræð­inga í heil­brigð­is­vís­indum verða að taka allar slíkar ákvarð­anir.

„Þetta er nokkuð hættu­leg stefna sem hér er að eiga sér stað,“ sagði Soumya Swaminathan, barna­læknir og yfir­sér­fræð­ingur stofn­un­ar­innar á blaða­manna­fundi á mánu­dags­kvöld. „Það myndi skap­ast óvissu­á­stand í löndum ef borg­ar­arnir færu sjálfir að ákveða hvenær og með hvaða bólu­efni þeir fengju seinni sprautu eða þá þriðju – ef um end­ur­bólu­setn­ingu er að ræða.

Swaminathan sagði að blöndun bólu­efna væri „ekki studd gögnum“ en ítrek­aði svo í tísti eftir fund­inn að hún hefði átt við að ein­stak­lingar ættu ekki að geta ákveðið sjálfir hvaða bólu­efni þeir fengju í annarri, þriðju eða jafn­vel fjórðu sprautu, ef að því kæmi. Slíkar ákvarð­anir ættu aðeins að vera á for­ræði heil­brigð­is­yf­ir­valda og ávallt byggðar á nýj­ustu vís­inda­gögnum. „Beðið er eftir nið­ur­stöðum rann­sókna á því að blanda saman bólu­efnum,“ skrif­aði hún. „Meta þarf bæði ónæmi og öryggi í því sam­bandi.“

Ein­hverjar þeirra rann­sókna sem þegar eru hafnar eru sagðar benda til að blöndun bólu­efna komi ekki að sök en mun lengra á eftir að ganga í þeim þar til óyggj­andi nið­ur­stöður liggja fyrir.

Blöndun bólu­efna frá ólíkum fram­leið­endum hefur verið fram­kvæmd í sumum löndum, sér­stak­lega þar sem skortur hefur orðið á ákveð­inni teg­und bólu­efnis þegar komið er að seinni skammti. Það sem sér­fræð­ingar WHO ótt­ast er að ein­hverjir kunni að fara þá leið að leyfa ein­stak­lingum að velja hvaða bólu­efni þeir fái þegar komi t.d. að end­ur­bólu­setn­ingu. Því þurfi heil­brigð­is­yf­ir­völd hvers lands að marka sér skýra stefnu þar um sem yrði síðan upp­færð eftir því sem ný gögn ber­ast.

WHO gaf út leið­bein­ingar í júní um blöndun bólu­efna og þar kom fram að ef þyrfti mætti gefa fólki sem fengið hefði fyrri sprautu af AstraZeneca bólu­efni Pfizer í seinni sprautu. Slíkt hefur m.a. verið gert hér á landi, í Kanada og á Spáni.

Stór klínísk rann­sókn á blöndun efna þess­ara tveggja fyr­ir­tækja er nú í gangi við Oxford-háskóla. Nýlega var bólu­efni Moderna bætt inn í rann­sókn­ina sem og bólu­efni Novovax Inc.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár