Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 27 prósent fylgi – Framsókn og Viðreisn dala skarpt

Fram­sókn­ar­flokkur og Viðreisn tapa umtals­verðu fylgi milli kann­ana og níu flokkar mæl­ast inni á þingi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur bætt við sig tæpum tveimur pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu en hinir stjórn­ar­flokk­arnir tapað sam­tals 6,4 pró­sentu­stigum.

Niðurstaða nýjustu könnunar MMR er ekki jafn mikið gleðiefni fyrir alla stjórnarleiðtogana.
Nið­ur­staða nýj­ustu könn­unar MMR er ekki jafn mikið gleði­efni fyrir alla stjórn­ar­leið­tog­ana. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem haldið hefur áber­andi próf­kjör und­an­farið, bætir vel við sig í nýj­ustu könnun MMR og mælist nú með 27 pró­sent fylgi. Það er 2,4 pró­sentu­stigum meira fylgi en hann fékk í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var í byrjun mán­aðar. Fylgið er 1,8 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hann hefur ein­ungis þrí­vegis mælst með meira fylgi í könn­unum MMR á þessu kjör­tíma­bili.

Hann er sem stendur eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með meira fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, bæta við sig 1,3 pró­sentu­stigi milli kann­ana og eru með 12,4 pró­sent. Það er samt sem áður 4,5 pró­sentu­stigi undir því sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum haustið 2017. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tapar miklu milli kann­ana, fer úr 12,5 pró­sent í 8,8 pró­sent. Það þýðir að 30 pró­sent færri sögð­ust ætla að kjósa flokk­inn nú en í könnun MMR sem birt var 1. júní. Framsókn mælist nú fimmti stærsti flokk­ur­inn á þingi.

[adspot]Hjá stjórn­ar­and­stöð­unni tapar Viðreisn mestu milli kann­ana, fer úr ell­efu pró­sentum í 7,8 pró­sent sem er tæp­lega 30 pró­sent sam­dráttur á nokkrum vikum. Viðreisn nálg­ast nú kjör­fylgi sitt frá 2017 þegar flokk­ur­inn fékk 6,7 pró­sent atkvæða.

Píratar standa nokkurn veg­inn í stað milli kann­ana og mæl­ast með 13,1 pró­sent fylgi, sem myndi þýða að þeir yrðu næst stærsti flokk­ur­inn á þingi á eftir Sjálf­stæð­is­flokki. Sam­fylk­ingin er sömu­leiðis föst á svip­uðum slóðum og hún hefur verið und­an­farið með 11,2 pró­sent fylgi, sem er tæpu pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2017.

Hástökkvar­inn á meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokka er Flokkur fólks­ins, sem fer úr 2,8 pró­sent fylgi í byrjun mán­aðar í 5,5 pró­sent. Flokk­ur­inn hennar Ingu Sæland, sem hefur verið afar dug­legur við að aug­lýsa sig und­an­farið, fékk 6,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Mið­flokk­ur­inn bætir lít­il­lega við sig og mælist með 7,3 pró­sent fylgi, sem er þriðj­ungi minna fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist áfram inni á þingi og stendur nán­ast í stað milli kann­ana með 5,3 pró­sent fylgi. Það þýðir að ef nið­ur­staða könn­unar MMR yrði nið­ur­staða kosn­inga þá yrðu níu flokkar á Alþingi eftir næstu kosn­ingar, sem fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Könnunin var fram­kvæmd 4. - 14. júní 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 973 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Miðað við nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar er rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur lík­ast til fallin. Flokk­arnir sem að henni standa mæl­ast með 48,2 pró­sent fylgi sem myndi tryggja þeim 31 þing­mann, einum færri en til þarf svo hægt sé að mynda meiri­hluta­stjórn. Það stendur þó afar tæpt að einn þing­maður til við­bótar myndi falla þeim í skaut.

Engin önnur þriggja flokka stjórn er í mynd­inni í ljósi þess að bæði Píratar og Sam­fylk­ing hafa úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ekki væri hægt að mynda fjög­urra flokka stjórn án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks. Þeir flokkar sem vilja ekki vinna með honum þyrftu því að setja saman fimm flokka stjórn til að ná því mark­miði sínu að óbreyttu.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 53,7 pró­sent og hefur auk­ist um rúm þrjú pró­sentu­stig í mán­uð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár