„Athyglisvert“ að fylgjast með fólki túlka orð utanríkisráðherra

Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir í sam­tali við RÚV það hafa verið „athygl­is­vert“ að fylgj­ast með fólki túlka orð hans um hval­veiðar und­an­farna viku. Í við­tali við Skessu­horn í síð­ustu viku sagði Gunnar Bragi tíma­bært að end­ur­skoða hval­veiðar við Ísland vegna þrýst­ings alþjóða­sam­fé­lags­ins.

[caption id="attachment_34940" align="align­right" width="300"] Jón Gunn­ars­son[/caption]

Haft er eftir Jóni Gunn­ars­syni, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, á vef RÚV að hann sé „algjör­lega ósa­mála Gunnari Braga í þess­ari nálgun hans á mál­inu.“ Á Facebook hefur hann jafn­framt farið mik­inn bent þeim á sem segja hval­veiðar standa ferða­þjón­ustu fyrir þrifum að slíkar full­yrð­ingar stand­ist enga skoðun.

„Bendi á að þegar atvinnu­veiðar voru heim­il­aðar drógu and­stæð­ingar upp mjög dökka mynd af nei­kvæðum áhrifum á ferða­þjón­ustu og útflutn­ings­greinar,“ skrif­aði Jón. „Ekkert af þessu gekk eftir. Í öðru lagi þá snýst málið um sjálf­stæðan rétt okkar um sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda og rétt ein­stak­linga til atvinnu­frelsis, grund­vall­ar­rétt­indi sem Sjálf­stæð­is­menn standa vörð um.“

Enn í sam­tali við RÚV sagði Jón að honum þætti jafn­vel eðli­legt að auka hval­veiðar hér við land. Gunnar Bragi seg­ist hafa viljað benda á þann þrýst­ing sem Íslend­ingar verða fyrir á alþjóða­vett­vangi vegna hval­veið­anna. „[…] það er umhugs­un­ar­efni fyrir okkur hvort við ættum ekki að koma til móts við alþjóða hval­veiði­ráðið til að mynda með því að veiða færri hvali árlega en við gerum nú,“ lét Gunnar Bragi hafa eftir sér í við­tal­inu í Skessu­horni.

„Ég reyndar ítreka í við­tal­inu að við megum aldrei gefa eftir rétt okkar til að veiða hvali. Ég vil líka taka fram að hrefnan er und­an­skilin við þetta. Ég held að við eigum að veiða hrefn­una sem aldrei fyrr,“ segir Gunnar Bragi í sam­tali sínu við RÚV. „Ég taldi það skyldu mína að velta þessu upp, hvort það geti þjónað hags­munum okkar. En það ekki mitt að ákveða það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár