Hvað gerist árið 2017?

Árið 2017 verður við­burða­ríkt og spenn­andi ef marka má stutta yfir­ferð yfir þau mál sem verða til umfjöll­unar.

Nú þegar nokkrir dagar eru liðnir af árinu 2017 og fólk er búið að jafna sig eftir hátíð­irnar er við til­efni til þess að líta fram á við og velta fyrir sér hvað árið 2017 mun bjóða upp á í heimi frétta og stjórn­mála.

Hér á landi má vænta tíð­inda í land­spóli­tík­inni þegar ný rík­is­stjórn kynnir stjórn­ar­sátt­mála sinn og setur í gang stefnu­mál sín. Erlendis eru það stóru málin á alþjóða­vísu sem bera hæst. Donald Trump mun taka við emb­ætti for­seta í Banda­ríkj­unum og í Evrópu mun verða ein­hver fram­vinda í Brexit og hugs­an­legu Frexit, auk þess að gengið verður til þing­kosn­inga í Þýska­landi þar sem Angela Merkel á í vök að verj­ast.

Hér að neðan er stiklað á stóru með þau mál sem vert er að fylgj­ast með á árinu. Listinn er fjarri því að vera tæm­andi.

Á Íslandi

Samkeppni á smávörumarkaði

H&M sem er ein stærsta fata­verslun í heimi mun opna þrjár versl­anir í Reykja­vík á næstu tveimur árum. Verslun H&M í Kringl­unni mun opna síðla árs 2017. Búast má við að þetta muni hafa nokkur áhrif á smá­sölu­markað hér á landi og að neyt­endur muni finna fyrir auk­inni sam­keppni á mark­aði með fatnað. Kjarninn hefur áður fjallað um rann­sóknir á mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins í fatainn­kaupum Íslend­inga. Samkvæmt heim­il­is­fjár­mála­hug­bún­að­inum Meniga var hlut­deild H&M 37 pró­sent árið 2013.

Meiri túrismi

Fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl mun ná nýjum hæðum ef spár ISAVIA fyrir árið 2017 ganga eftir. Fjöldi ferða­manna sem heim­sótt hafa Ísland hefur auk­ist stöðugt und­an­farin ár. Það hefur raunar verið þannig að spár ISAVIA og ferða­þjón­ustu­yf­ir­valda hafa alltaf verið mun hóf­stillt­ari en raunin hefur verið. Í júlí á þessu ári er gert ráð fyrir að rúm­lega milljón manns fari um flug­stöð­ina á Mið­nes­heiði, miðað við um 900.000 þús­und manns í júlí á síð­asta ári.

Opna rafokruvirkjun

Jarð­varma­virkjun við Þeysta­reyki verður gang­sett á árinu 2017. Fram­kvæmdir við virkj­un­ina hófust í maí árið 2015 og er unnið að bygg­ingu 90 MW jarð­varma­stöðvar þar. Verk­efnið er í tveimur áföngum og mun örðum áfang­anum ljúka í ár þegar fyrri vél stöðv­ar­innar verður gang­sett. Seinni vélin á svo að fara í gang á næsta ári. Virkj­unin á meðal ann­ars að leggja til raf­orku til iðn­að­ar­upp­bygg­ingar á Bakka.

Selja banka

Ráðgert er að Arion banki verði seldur að fullu fyrir lok þessa árs. Þetta kom fram í grein­ar­gerð fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í lok sum­ars í fyrra. Íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut í bank­anum á móti Kaup­þingi sem á 87 pró­sent. Um leið er reiknað með að verk­efni Lind­ar­hvols ehf, eign­ar­halds­fé­lags íslenska rík­is­ins sem sér um að koma stöð­ug­leika­fram­lög­unum í verð, drag­ist veru­lega saman á þessu ári.

Þétting byggðar

Sund­ur­grafin mið­borg Reykja­víkur mun taka á sig nokkra mynd á árinu þegar nokkrum stórum fram­kvæmdum verður lokið eða áfram haldið. Við Granda­veg hafa verið byggð fjöl­býl­is­hús þar sem eru 142 íbúðir, á Aust­ur­bakk­anum eru fram­kvæmdir þegar hafnar og nýbygg­ingar að rísa úr húsa­grunnum. Milli Tryggva­götu og Hafn­ar­strætis verður nýbygg­ingin að öllum lík­indum tekin í notkun í sumar. Fram­kvæmdir halda áfram á lóð­unum í kring. Þá hefur verið ráð­gert að við­bygg­ingin við Sundhöll Reykja­víkur verði til­búin á þessu ári. Hér hafa aðeins fáeinar fram­kvæmdir í höf­uð­borg­inni verið nefndar.

EuroBasket

Íslenska karla­lands­liðið í körfuknatt­leik mun keppa á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í sum­ar­lok. Mótið fer fram í fimm keppn­is­höllum í fjórum borgum Evrópu. Þetta er í annað sinn í röð sem Ísland fær keppn­is­rétt á þessu móti. Okkar menn leika í A-riðli með Pól­verjum, Grikkjum, Frökkum, Finnum og Slóvenum.

EM 2017

Íslenska kvenna­lands­liðið í knatt­spyrnu keppir á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í Hollandi í sumar. Þetta er í þriðja sinn í röð sem okkar konur fá keppn­is­rétt á mót­inu. Besti árangur liðs­ins á Evr­ópu­meist­ara­móti var þegar þær komust í fjórð­ungsúr­slit árið 2013 þar sem þær lutu í lægra haldi gegn Svíþjóð. Íslenska liðið öðl­að­ist keppn­is­rétt á mót­inu í ár með því að vinna sinn und­an­riðil, þar sem þær unnu alla leiki sína nema einn.

Heimsmeistaramót í handbolta

Íslenska karla­lands­liðið í hand­bolta keppir á heims­meist­ara­mót­inu í Frakk­landi í jan­úar. Þetta er í átj­ánda sinn sem liðið keppir á heims­meist­ara­mót­inu. Besti árangur liðs­ins var árið 1997 þegar Ísland hreppti fimmta sætið.

Á alþjóðasviðinu

Þýðir Brexit Brexit?

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, lýsti því yfir í haust að Bretar myndu óska eftir að 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans yrði virkjuð áður en mars­mán­uður árs­ins 2017 væri úti. Bretar greiddu atkvæði um það í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu síð­asta sumar og hefur lítið form­legt átt sér stað í mála­flokknum síðan. Brexit fyrir mars­lok er hins vegar raun­veru­legur mögu­leiki enda hafa bresk stjórn­völd lagt áherslu á að þau séu búin að hnýta alla þá hnúta sem þarf áður en óskað er eftir útgöngu úr sam­band­inu. Það má því vel vera að samið verði um fram­tíð­ar­stöðu Bret­lands í heim­inum á þessu ári.

En Frexit?

For­seta­kosn­ingar í Frakk­landi verða haldnar í apríl og maí. Í kosn­ing­unum gefur Marine Le Pen, for­maður þjóð­ern­is­hreyf­ing­ar­innar Front National, kost á sér ásamt Francois Fillon, fram­bjóð­andi hægri­flokks­ins Les Républicains og fleirum. Fillon hefur mælst vin­sælastur fram­bjóð­end­anna en Le Pen hefur sótt á og er talin eiga raun­veru­lega mögu­leika á að verða for­seti. Hún hefur sagt að verði hún kjörin muni Frakkar fara fram á „Frexit“, þe. segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu eins og Bretland.

Trump í Hvíta húsið

Donald Trump verður settur í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna 20. jan­úar næst­kom­andi. Hann verður 45. for­seti lands­ins og eflaust sá langt óút­reikn­an­leg­asti. Enn er á huldu hvernig hann mun beita emb­ætt­inu enda byggði kosn­inga­bar­átta hans að miklu leyti á upp­hróp­unum og stað­reynda­villum um allt mögu­legt. Hann er raunar þegar byrj­aður að valda usla sem áhuga­vert verður að fylgj­ast með hvernig vindur fram. Eitt af fyrstu verk­efnum hans sem for­seta á alþjóða­vísu verður G7 ráð­stefna þró­uð­ustu iðn­velda heims sem haldin verður á Sikiley í maí.

Merkel í valdabaráttu

Þing­kosn­ingar í Þýska­landi verða haldnar í haust. Þar mun þýskur almenn­ingur kveða dóm sinn yfir stjórn Angelu Merkel sem hefur verið kansl­ari Þýska­lands síðan 2005. Sam­steypu­stjórn hennar nýtur góðs meiri­hluta í þing­inu eftir kosn­ing­arnar 2013 en nú er útlitið ekki eins bjart. Jafnvel þó flokkur hennar Kristi­legir demókratar sé enn sá vin­sæl­asti í Þýska­landi hefur fjarað undan stuðn­ingnum og þjóð­ern­is­flokk­ur­inn AfD undir for­ystu Frauke Petry hefur sótt í sig veðrið. Und­an­farið hefur verið fjallað um Angelu Merkel sem „síð­asta full­trúa hnatt­væð­ing­ar­innar“ og spurn­ingum velt upp um fram­tíð Evr­ópu­sam­vinn­unnar ef hennar nýtur ekki við eftir kosn­ing­arnar.

Kemst loftslagssamningurinn í uppnám?

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna verður haldin í Bonn í Þýska­landi næsta vetur. Þetta verður 22. ráð­stefnan sem haldin er sér­stak­lega um lofts­lags­samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna. Nokkur óvissa er um hversu skil­virkt Par­ís­ar­sam­komu­lagið er eftir að Donald Trump var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna og ráð­stefnan mun að öllum lík­indum fjalla um aðlögun að breyttu stjórn­ar­mynstri lyk­il­ríkja sem sam­þykkt hafa samn­ing­inn.

Fleiri flóttamenn

Flótta­manna­straum­ur­inn í Evrópu náði nýjum hæðum árið 2016 en ekki er gert ráð fyrir að lát verði á aðsókn fólks til álf­unnar frá stríðs­hrjáðum eða fátæk­ari löndum. Hins vegar er alls ekki útlit fyrir að þol­in­mæði Evr­ópu­búa muni aukast í garð flótta­fólks á árinu. Í Þýska­landi hafa stjórn­völd þurft að hverfa frá vina­legri stefnu sinni og ann­ars staðar er póli­tískum öflum and­stæð inn­flytj­endum að vaxa ásmegin.

Trump og NATO

Leið­toga­ráð­stefna NATO verður haldin á þessu ári. Þar má vænta þess að lín­urnar skýrist í sam­skiptum Banda­ríkj­anna við Evr­ópu­ríki eftir að Donald Trump var kjör­inn for­seti. Trump hefur talað um að Banda­ríkin muni ekki halda áfram að styðja við varnir ann­ara NATO-ríkja ef þau leggja ekki til ásætt­an­legar fjár­hæðir til banda­lags­ins. Línurnar munu eflaust skýr­ast í kjöl­far fund­ar­ins í nýjum höf­uð­stöðvum NATO í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið undanfarið ár