Uppgjör kosningaspárinnar 2016

Íslend­ingar fengu tæki­færi til þess að kjósa í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum tvisvar á árinu sem er að líða. Í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga og alþing­is­kosn­inga gerði Kjarninn kosn­inga­spá í sam­starfi við Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ing.

Tvennar kosn­ingar fóru fram á Íslandi árið 2016. Kosið var í emb­ætti for­seta Íslands þar sem aldrei hafa fleiri verið í kjöri og svo var boðað til alþing­is­kosn­inga að hausti, hálfu ári áður en kjör­tíma­bilið var úti. Fyrir kosn­ing­arnar birti Kjarninn kosn­inga­spána, eins og gert var fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014.

Í örstuttu máli þá er kosn­inga­spáin sam­an­safn allra þeirra kann­ana sem liggja fyrir um fylgi stjórn­mála­flokka og fram­bjóð­enda í kosn­ingum hverju sinni. Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ingur hefur hannað reink­i­líkan sem vegur hverja könnun eftir fyr­ir­framá­kveðum stöðlum og nið­ur­staðan er lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga hverju sinni.

Fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar var svo þing­sæta­spáin kynnt til sög­unar en það er nýj­ung í íslenskri kosn­inga­um­fjöllun. Þing­sæta­spáin er reikni­líkan sem fram­kvæmir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ þar sem nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi kann­ana eru hafðar til grund­vallar. Líkanið hönn­uðu stærð­fræð­ing­arnir Baldur Héð­ins­son og Stefán Ingi Valdi­mars­son með það að mark­miði að reikna líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum. Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spána, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Hér að neðan verður gerð til­raun til þess að gera upp kosn­inga­spána í sam­ræmi við nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Kosn­inga­spáin byggir á þeim gögnum sem könn­un­ar­að­ilar veita og því er eðli­legt að byrja á því að skoða frá­vik könn­un­ar­að­ila í þessum kosn­ingum sem haldnar voru á árinu.

Forsetakosningarnar

Í for­seta­kosn­ing­unum tókst Gallup best til í síð­ustu könnun sinni. Það mun­aði hins vegar ekki miklu á milli könn­un­ar­að­il­anna.

Frávik kann­ana frá úrslitum for­seta­kosn­inga
Könnu­ar­að­ilitíma­bilfrá­vik frá úrslitum
Gallup fyrir RÚV20.-24.júní2.33%
Félags­vís­ind­ast. fyrir Morgunbl.19.-22. júní2.66%
Frétta­blaðið21. júní2.73%

Þetta mikla frá­vik má að ein­hverju leyti skýra með því að benda á mikla fylg­is­sveiflu við Höllu Tóm­as­dóttur á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar. Hún hafði verið langt á eftir Guðna Th. Jóhann­essyni í öllum könn­unum þar til í síð­ustu vik­unni fyrir kosn­ing­arnar þegar fylgi við hana fór á flug. Um leið tókst kosn­inga­spánni ekki að gera ráð fyrir miklu meiri stuðn­ingi við Höllu sem kom fram í kosn­ing­unum.

Kosn­inga­spáin er reikni­líkan sem ætlað er að birta sem raun­hæf­asta mynd af fylgi fram­bjóð­enda á hverjum tíma­punkti fyrir sig í aðdrag­anda kosn­inga. Í reikni­lík­andið voru færðar nýj­ustu kann­anir á fylgi fram­bjóð­enda í emb­ætti for­seta og þeim gefið vægi eftir fyr­ir­fram ákveðnum reglum. Í kosn­inga­spánni eru áhrif svo­kall­aðra útlaga dempuð, það eru kann­anir sem lýsa ekki þýð­inu nógu vel, eða birta nið­ur­stöður sem eru á skjön við allar aðrar kann­anir sem gerðar hafa verið á sama eða svipð­uðu tíma­bili. Sveifl­urnar í kosn­inga­spánni verða minni fyrir vikið.

Það var þess vegna nokkuð óvænt að sjá stuðn­ing við fram­boð Höllu Tóm­as­dóttur aukast hratt í síð­ustu kosn­inga­spám fyrir kosn­ingar. Nokkrir dagar höfðu liðið þar til Frétta­blaðið, Félags­vís­inda­stofnun og Gallup birtu kannir á fimmtu­dag og föstu­dag fyrir kosn­ingar. Halla hafði á þeim tíma fengið meiri byr undir báða vængi en hún hafði áður gert og var á föstu­dag komin með upp undir 20 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni, nokkuð meira en Davíð Oddsson og Andri Snær Magnason, sem bit­ist höfðu um „annað sætið“ vik­urnar á undan.

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna voru því rök­rétt fram­hald af þeim fylg­is­sveiflum sem lesa má úr línu­rit­inu. Halla bætti við sig tölu­vert og tók mest af sínu auka­fylgi af Guðna, Andra og Dav­íð.

Alþingiskosningar

Þær kann­anir sem réðu loka­spá kosn­inga­spár­innar 29. októ­ber 2016, á kjör­dag, eru hér að neðan og með­al­frá­vik könn­un­ar­að­ila frá úrslitum kosn­ing­anna.

Frávik kann­ana frá úrslitum alþing­is­kosn­inga
Könn­un­ar­að­iliMeð­al­frá­vik frá úrslitum
Þjóð­ar­púls Gallup1.71%
Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar2.40%
Vegið með­al­tal skoð­ana­kann­ana MMR2.17%
Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins Stöðvar 2 og Vísis1.23%

Eins og áður segir þá birti Kjarninn í fyrsta sinn þing­sæta­spá fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust. Líkanið gerir 10.000 sýnd­ar­kosn­ingar með fyr­ir­liggj­andi kann­anir á fylgi flokka til hlið­sjónar og metur þannig lík­urnar á því að ein­staka fram­bjóð­endur nái kjöri í kosn­ing­unum.

Hvernig tókst til

Reini­líkön líkt og það sem Þing­manna­spáin byggir á þarf að sann­prófa. Mik­il­væg­ustu mæli­kvarð­arnir sem þarf að skoða eru röðun og kvörðum.

Röðun sann­reynir hversu gott líkanið er að aðgreina þá sem kom­ast á þing frá þeim sem ekki kom­ast á þing. Öllum fram­bjóð­endum sem til­greindir voru í Þing­manna­spánni er raðað frá þeim sem fengu hæstar líkur til þeirra sem fengu lægstar líkur (sjá mynd).

Full­komin röðun væri ef allir þeir 63 sem kjörnir voru á þing hefðu fengið hæstar líkur í Þing­manna­spánni og hefði því verið raðað fremst. Eins og sjá má af mynd­inni kemur röðun Þing­manna­spár­innar heilt yfir vel út, þeir sem kom­ast inn á þing rað­ast fram­ar­lega og þeir sem kom­ast ekki inn á þing aft­ar­lega.

Kvörðun sann­reynir hvort líkur sem Þing­manna­spáin úthlutar fram­bjóð­endum séu rétt metnar. Sem dæmi ef 100 fram­bjóð­endum er öllum úthlutað 75% líkum á að ná kjöri, ættu um 75 þeirra að ná kjöri, 25 ekki. Þing­manna­spáin úthlut­aði 42 fram­bjóð­endum líkum á bil­inu 80%-100% og með­al­líkur þess­ara 42 fram­bjóð­enda reikn­ast 96%. 40 þeirra náður kjöri eða 95%. Taflan hér að neðan sýnir nán­ari nið­ur­stöður um kvörðun Þing­manna­spár­innar.

Kvörðun Þing­sæta­spár
Lík­inda­bilFram­bjóð­endurKjörnirHlutfall kjör­innaMeð­al­líkur
80%-100%424095.2%96.4%
60%-80%11763.6%70.4%
40%-60%181161.1%49.9%
20%-40%9444.4%32.4%
0%-20%6611.5%3.4%

Taflan sýnir frek­ari útlistun á upp­lýs­ing­unum hér að ofan. Hér má sjá fjölda þeirra full­trúa (fram­bjóð­enda) sem lentu í til­greindu lík­inda­bili, hversu margir voru kjörnir, hlut­fall þeirra full­trúa sem náðu kjöri af þeim fjölda sem Þing­sæta­spáin spáði kjöri og að lokum með­al­lík­indi á að full­trú­arnir myndu ná kjöri.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­mála­um­ræð­una og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar. Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega.

Til útskýr­ingar má segja að vægi kann­ana er gefið eftir því hversu næmur könn­un­ar­að­il­inn og aðferðir hans eru á raun­veru­legar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu. Kosn­ingar eru auð­vitað eini mæli­kvarð­inn á það hversu vel könn­un­ar­að­ilum tekst upp svo miðað er við sögu­leg gögn og þau borin saman við kosn­inga­úr­slit til að ákvarða áreið­an­leika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könn­unin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.

Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar 2014 og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ingar og alþing­is­kosn­ingar í ár. Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni hverju sinni eru nýj­ustu kann­anir könn­un­ar­að­ila vegnar eftir áreið­an­leika. Fylgi ein­stakra fram­boða er svo fundið með vegnu með­al­tali úr þeim könn­unum sem liggja til grund­vallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt. Bent er á að í frétt­unum hér að neðan, þar sem nið­ur­stöður spálík­ans­ins hverju sinni eru greindar, má finna upp­lýs­ingar um hvaða kann­anir liggja til grund­vallar hverri spá og hversu mikið vægi þær fengu í útreikn­ing­unum.

Þingsætaspáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í alþing­is­kosn­ingum. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér á vefnum.

Fyrir kjördæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá eru lík­urnar á því að hann nái kjöri í alþing­is­kosn­ing­unum metnar 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og meta líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, fengið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ingum. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingnum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið undanfarið ár