May lofar Brexit-beiðni fyrir lok mars 2017

Bretland ætlar að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu áður en mars 2017 er úti.

Theresa May í pontu á flokksþingi Íhaldsflokksins í Bretlandi í dag.
Theresa May í pontu á flokks­þingi Íhalds­flokks­ins í Bret­landi í dag. Mynd: EPA

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, seg­ist ætla að virkja 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans fyrir lok mars á næsta ári. Eftir því hefur verið beðið að bresk stjórn­völd hefji útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu form­lega með því að óska eftir því við fram­kvæmda­stjórn sam­bands­ins að fá að hætta.

50. grein Lisabon-sátt­mál­ans fjallar um það ferli sem fer í gang ef ríki óskar þess að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. Bretar greiddu atkvæði um það í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu. Hið svo­kall­aða Brexit hefur hins vegar gengið hægar en búist var við.

Á flokks­þingi Íhalds­flokks­ins í Bret­landi sagði May að aðskiln­aður Breta frá Evr­ópu­sam­band­inu verði alger. Verði það þannig að Bretar muni ekki fá aðgang að sam­eig­in­legum mark­aði Evrópu án þess að hlýða reglum um frjálst flæði fólks yfir landa­mæri, verði það það þannig. Það sé mik­il­væg­ara að Bretland stjórni landa­mærum sínum en að hafa aðgang að sam­eig­in­lega mark­að­inum.

Ný rík­is­stjórn Theresu May tók við af rík­is­stjórn David Cameron eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una. Hún hefur hingað til ekki viljað gefa út nákvæma dag­setn­ingu á því hvenær Bretland hygg­ist óska eftir útgöngu úr ESB. Fyrir því liggja margar tækni­legar ástæður enda er það öllum ljóst að gríð­ar­lega flókið verk­efni er að afnema Evr­ópu­lög í Bret­landi eða aðlaga þau að breyttum veru­leika.

Rík­is­stjórn May hefur þess vegna ítrekað óskað eftir lengri tíma til þess að ganga frá mál­unum heima­fyrir þvert á það sem helstu leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa farið fram á. Á meg­in­land­inu er það talið vera lyk­il­at­riði fyrir fram­tíð Evr­ópu­sam­bands­ins að aðskiln­að­ur­inn við Bretland gangi sem hrað­ast fyrir sig.

Um leið og Bretland óskar form­lega eftir útgöngu úr ESB hefst tveggja ára ferli þar sem samið verður um þær leiðir sem farnar verða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár