H&M kemur í stað Hagkaupsverslunnar á annarri hæð í Kringlunni

Ný H&M verslun verður opnuð í 2.600 fer­metra versl­un­ar­rými á annarri hæð í norð­ur­lenda Kringl­unnar seinni hluta árs 2017. Sem stendur er rekin Hag­kaups­verslun í rým­inu. Hagkaup hefur um ára­tuga­skeið rekið tvær versl­anir, á fyrstu og annarri hæð í norð­ur­enda versl­un­ar­mið­stöðv­ar­innar, en Hagar, eig­andi Hagkaups, hafa nú skrifað undir nýjan leigu­samn­ing um að opna eina nýja verslun á einni hæð. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Reitum, eig­anda Kringl­unnar. Þar segir einnig að samn­ingar séu á loka­stigi við alþjóð­legt fata­merki um að reka 1.000 fer­metra verslun við hlið H&M á annarri hæð­inni.

Áður hefur verið greint frá því að H&M muni opna versl­anir í Smára­lind og í miðbæ Reykja­vík­­ur (á Hafn­­ar­­torg­i). Versl­an­irn­ar munu opna á ár­un­um 2017 og 2018. Því verða versl­anir H&M á Íslandi þrjár í nán­ustu fram­tíð.

Þrátt fyrir að H&M, sem er ein stærsta fata­versl­un­ar­keðja heims­ins, hafi aldrei rekið verslun hér á landi, þá hafa rann­sóknir sýnt að mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins í fata­inn­kaupum Íslend­inga er mikil og stöðug. 

Kjarn­inn fjall­aði um stöð­una eins og hún birt­ist hjá not­endum heim­il­is­fjár­mála­hug­bún­að­ar­ins Meniga, fyrir árið 2013. Tæp 37 pró­sent not­enda Meniga versl­aði í H&M. Tekju­hærri hópar versla mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26 pró­sent tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­­burði við 47 pró­sent þeirra tekju­hæstu.

Lít­ill sem eng­inn munur var á með­­al­­upp­­hæð sem keypt var fyrir í hvert sinn eftir tekju­hóp­um, en hún var rúmar 15 þús­und krón­ur. Sama má segja um heild­­ar­­upp­­hæð sem þeir vörðu í H&M á árinu 2013, en hún nam að með­­al­tali 32 þús­und krón­um.

Sé litið til heild­ar­innar þá var mark­aðs­hlut­deild H&M 22 pró­sent í fata­inn­kaupum Íslend­inga, þrátt fyrir að engin verslun hafi til þess verið stað­sett á land­inu. Lík­legt verður að telj­ast að inn­reið H&M hingað til lands geti haft veru­leg áhrif á verslun hér á landi, sé mið tekið af þessum töl­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár