Gera ráð fyrir því að Arion verði seldur að fullu fyrir árslok 2017

Virði stöð­ug­leika­eigna er metið á 384,3 millj­arða króna. Um 75 pró­sent þeirra eigna er bundið í Íslands­banka og Arion banka. Félagið sem á að selja stöð­ug­leika­eignir rík­is­ins reiknar með að Arion verði að fullu seldur í lok næsta árs.

Lind­ar­hvoll ehf., eign­ar­halds­fé­lag í eigu íslenska rík­is­ins sem sér um að koma stöð­ug­leika­fram­lög­unum í verð, reiknar með því að Kaupþing muni selja Arion banka að fullu eigi síðar en í árs­lok 2017. Íslenska ríkið á 13 pró­sent í bank­anum á móti Kaup­þingi, sem á 87 pró­sent. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð um starf­semi Lind­ar­hvols sem birt hefur verið á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Íslensa ríkið eign­að­ist tölu­verðar eignir og hluti í fjölda­mörgum fyr­ir­tækjum í gegnum stöð­ug­leika­fram­lög frá slita­búum fall­inna banka fyrr á þessu ári. Nið­ur­staða í mati á virði stöðu­leika­eigna þegar þær voru fram­seldar í jan­úar 2016 var sú að þær væri sam­tals 384,5 millj­arða króna virði. Þar skipti allt hlutafé í Íslands­banka mestu, en hann var met­inn á 184,8 millj­arða króna. Þar á eftir komu veð­skulda­bréf Kaup­þings sem greið­ast á þegar Arion banki er seldur, en það er metið á 84 millj­arða króna. Auk þess var gerður afkomu­skipta­samn­ingur vegna Arion banka sem met­inn er á 19,5 millj­arða króna. Því er 288,3 millj­arðar króna, eða 74 pró­sent af stöð­ug­leika­fram­lög­unum, bundið í virði tengt Íslands­banka og Arion banka. Selja þarf báða bank­anna til að þeir pen­ingar endi í rík­is­sjóði. 

Sérstakt félag utan um stöðugleikaeignir

Íslenska ríkið stofn­aði sér­stakt félag, Lind­ar­hvoll ehf., til að taka við stöð­ug­leika­eign­unum og koma þeim í verð. Félagið réð síðan Lands­bank­ann til að veita ráð­gjöf við sölu á þeim hluta­bréfa­eignum sem þar var að finna. Um er að ræða eignir rík­is­ins í stórum fyr­ir­tækjum sem eru skráð á mark­að, Eim­skip, Sím­an­um, Reitum og Sjó­vá. Þær hafa þegar að hluta til verið seldar.

Ekkert er fjallað um sölu á Íslands­banka í grein­ar­gerð­inni. Þar segir hins vegar að með vísan til

þeirrar áætl­unar sem Lind­ar­hvoll ehf. „hefur gert fram til 31.12.2016 liggur fyrir að félagið stefnir á að verk­efni þess drag­ist veru­lega saman strax á árinu 2017. Áætlað er að þá verði aðeins um að ræða virka umsýslu á fram­seldum eignum að bók­færðu virði um 7,3 millj­arðar króna og jafn­framt eft­ir­lit með skil­yrtum fjár­sóps­eignum að bók­færðu virði um 6,6 millj­arðar króna. Þá verði áfram gætt hags­muna rík­is­sjóðs vegna sölu á Arion banka hf. í gegnum eft­ir­lits­að­ila, skv. fram­sals­samn­ingi Kaup­þings hf. Gerir Lind­ar­hvoll ehf. ráð fyrir að Kaupþing ehf. muni selja Arion banka hf. að fullu eigi síðar en í árs­lok 2017.“

Því mun félagið hafa, miðað við ofan­greindar for­sendur, hafa náð mark­miðum sínum fyrr en gert var ráð fyrir í upp­haf­legum áætl­unum og starf­semi þess í árs­lok 2017 verður mjög óveru­leg.

Háir bónusar fyrir að selja

Morg­un­blaðið greindi frá því í gær að við­ræður um kaup hóps líf­eyr­is­sjóða á 87 pró­sent hlut Kaup­þings í Arion banka hafa runnið út í sand­inn. Þetta hefur gerst sam­hliða því að nýir stjórn­endur hafa tekið við hjá Kaup­þingi í kjöl­far þess að nauða­samn­ingur bank­ans var klár­aður um síð­ustu ára­mót og eign­ar­halds­fé­lagið Kaup­þing tók við eft­ir­stand­andi eignum hans. Engar við­ræður eru í far­vatn­inu.

Kaup­þing þarf að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­lok 2018. Tak­ist það ekki mun rík­is­sjóður leysa bank­ann til sín. Þetta var hluti af því sam­komu­lagi sem kröfu­hafar Kaup­þings gerðu við ríkið þegar samið var um upp­gjör á slita­búi bank­ans á síð­asta ári.

DV greindi frá því í byrjun viku að hópur um 20 starfs­manna Kaup­þings ætti von á sam­tals 1,5 millj­arði króna í bón­us­greiðslur ef sala á eignum félags­ins gengi vel á næstu tæpu tveimur árum. Þær bón­us­greiðslur ná ekki til æðstu stjórn­enda Kaup­þings og þykir lík­legt að sér­stakt bónus­kerfi, með hærri greiðsl­um, verði sett upp fyrir þá. Lang­verð­mætasta eign Kaup­þings er hlut­ur­inn í Arion banka. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár