20 starfsmenn Kaupþings fá allt að 1,5 milljarð í bónus

Kaupþing féll í október 2008. Nauðasamningur bankans var samþykktur um síðustu áramót og nú vinnur eignarhaldsfélagið Kaupþing að því að hámarka virði eigna hans, og samhliða endurheimtur kröfuhafanna sem eiga félagið.
Kaupþing féll í októ­ber 2008. Nauða­samn­ingur bank­ans var sam­þykktur um síð­ustu ára­mót og nú vinnur eign­ar­halds­fé­lagið Kaupþing að því að hámarka virði eigna hans, og sam­hliða end­ur­heimtur kröfu­haf­anna sem eiga félagið.

Um tutt­ugu starfs­menn eign­ar­halds­fé­lags­ins Kaup­þings, sem tók við hlut­verki slita­bús Kaup­þings að loknum nauða­samn­ingum bank­ans í lok árs í fyrra, geta fengið sam­tals tæp­lega 1.500 millj­ónir króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkum á virði óseldra eigna félags­ins næst. Bón­us­greiðsl­urnar eiga að greið­ast út ekki síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eign Kaup­þings er 87 pró­sent hlutur í Arion banka, við­skipta­banka sem starfar að mestu á íslenskum mark­aði og var end­ur­reistur af íslenska rík­inu með íslenskum inn­stæðum.

Greint er frá mál­inu í DV í dag. Þar segir að 20 manna hóp­ur­inn sé að stórum hluta sá sami og hafi þegar fengið bón­us­greiðslur upp á tugi millj­óna króna þegar Kaupþing lauk nauða­samn­ings­gerð um síð­ustu ára­mót. Greiðsl­urnar sem þeir eiga nú von á eru hins vegar mun hærri. Samkvæmt frétt DV geta ein­stakir starfs­menn í sumum til­fellum fengið um og yfir 100 millj­ónir króna í sinn hlut.

Bónus­kerfið er hluti af starfs­kjara­stefnu fyrir starfs­menn Kaup­þingbs sem lögð verður fyrir aðal­fund félags­ins sem fer fram 30. ágúst, í næstu viku. Í henni er sér­stak­lega tekið fram að bónus­kerfið nái ekki til stjórnar og ann­arra æðstu stjórn­enda Kaup­þings, en sá hópur telur sam­tals fimm manns. Í DV segir hins vegar að hugs­an­lega verði komið upp sér­stöku bónus­kerfi fyrir þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár