Framkvæmdir hefjast við Þeistareykjavirkjun - tilbúin 2017

Fram­kvæmdir hefj­ast við Þeista­reykja­virkjun Stefnt að fram­leiðslu inn á raf­orku­kerfið í októ­ber 2017 Þeista­reykja­virkjun er komin á fram­kvæmda­stig, en und­ir­ritun samn­inga um bygg­ingu stöðv­ar­húss og veitna í dag markar upp­haf þess­arar stærstu fram­kvæmdar Lands­virkj­unar síðan Búð­ar­háls­stöð var vígð í fyrra­vor.

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, segir þetta vera ánægju­legan áfanga, í frétta­til­kynn­ingu.„Við höfum lagt mikla vinnu í und­ir­bún­ing Þeista­reykja­virkj­unar í mörg ár og allan þann tíma lagt áherslu á góða umgengni við umhverfi og sátt við sam­fé­lagið. Það er gott til þess að vita að innan þriggja ára getum við haf­ist handa við að fram­leiða frek­ari verð­mæti fyrir eig­endur okkar, íslensku þjóð­ina, úr þeirri auð­lind sem við eigum saman.“

Unnið hefur verið að und­ir­bún­ingi jarð­varma­virkj­unar við Þeista­reyki til fjölda ára, en gert er ráð fyrir að þessi 45 MW virkj­un­ar­á­fangi verði fyrsta skrefið í var­fær­inni upp­bygg­ingu sjálf­bærrar jarð­varma­vinnslu á svæð­inu. Stefnt er að því að virkj­unin hefji rekstur haustið 2017.

Boraðar hafa verið átta vinnslu­holur, sem skila gufu sem jafn­gildir um 50 MW rafa­fli, eða einni afl­vél. Und­ir­bún­ingur mið­ast við sér­stöðu Þeista­reykja. Þeista­reykja­jörð er gömul land­náms­jörð sem liggur suð­austur af Húsavík; frá Höf­uð­reið­ar­múla í norðri og suður undir Kví­hóla­fjöll og frá Lamba­fjöllum í vestri að Ket­il­fjalli og Bæj­ar­fjalli í austri. Jörðin er nú í eigu Þing­eyj­ar­sveitar.

Allur und­ir­bún­ingur Þeista­reykja­virkj­unar hefur tekið mið af sér­stöðu svæð­is­ins, sem er nær ósnortið ef frá eru taldar búsetu­minjar og ummerki um brenni­steins­nám á öldum áður. Í skipu­lags­á­ætl­unum hafa því verið afmörkuð vernd­ar­svæði vegna nátt­úru- og forn­minja. „Við hönnun virkj­unar hefur verið hugað að áhrifum á lands­lag og ásýnd svæð­is­ins. Fram­kvæmdir hafa því verið skipu­lagðar á þann hátt að land­mótun og frá­gangur fer fram sam­hliða upp­bygg­ingu,“ segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun.

Hátt í 200 starfs­menn verða við vinnu þegar mest verður, en heild­ar­fjár­hæð samn­ing­anna við LNS Sögu, um bygg­ingu stöðv­ar­húss og veitna, nemur um 6,6 millj­örðum króna, en áætl­anir gera ráð fyrir að heild­ar­kostn­aður við fyrsta áfanga virkj­un­ar­innar nemi á bil­inu 20 til 24 millj­örðum króna. Þegar mest verður munu hátt í 200 starfs­menn vera við vinnu á svæð­inu á fram­kvæmda­tíma­bil­inu, segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun.

Sjá má frekar upp­lýs­ingar um málið hér með­fylgj­andi. Blaða­manna­fundur_THR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár