Sjaldgæfara að konur biðji um launahækkun - tilgangur kynjakvóta að breyta hugsunarhætti

Þrátt fyrir að búið sé að koma á kynja­kvótum í stjórnum fyr­ir­tækja fjölgar konum ekki sjálf­krafa á fram­kvæmda­stjóra­stigi og þró­unin í jafn­rétt­is­málum er hæg, segir Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, á opnum fundi bank­ans og Ungra athafna­kvenna, sem var hald­inn í gær undir yfir­skrift­inni „Ljónin í veg­inum”. „Enda snið­göngum við ekki fyr­ir­tæki sem eru ekki að sinna þessu,” sagði hún.

„Ég er aðeins hrædd hvað þetta er að ger­ast hægt,” sagði Birna jafn­framt og bætti því við að það væri umhugs­un­ar­efni að ár eftir ár sé að mæl­ast kyn­bund­inn launa­munur á Íslandi: „Þarna hefðu lög átt að verða sett fyrir löngu,” sagði Birna og benti á mögu­leik­ann sem fælist í upp­á­skriftum end­ur­skoð­enda fyr­ir­tækja sem dæmi um tæki til að nota gegn launa­muni kynj­anna.

Una Steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs bank­ans, flutti erindi í upp­hafi fundar og í kjöl­farið tóku við umræður en aðrir þátt­tak­endur voru Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, Birna Ósk Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Símanum og Hall­björn Karlsson fjár­festir. Fund­ar­stjóri var Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Íslands­banka.

Birna Ósk sagði að almennt þætti henni kon­urnar sem vinna hjá henni ekki nógu kröfu­harðar eða of þakk­látar fyrir störfin, og að sama skapi gerðu sér ekki nógu vel grein fyrir því hvað þær gæfu fyr­ir­tæk­inu mikið. „Það er miklu sjald­gæfara að konur biðji um launa­hækkun og eftir kreppu, ennþá verra.“

Þátt­tak­endur í umræðum voru sam­mála um að ungar konur í dag mættu enn ýmsum hindr­unum þegar þær stíga út í atvinnu­lífið. Þá var einnig nefnt að ábyrgð stjórn­enda væri mikil þegar kæmi að jafn­rétt­is­málum innan fyr­ir­tækja og stofn­ana. Hall­björn Karlsson fjár­festir nefndi sem dæmi að mörg fyr­ir­tæki væru með jafn­rétt­is­stefnu en það væri oftar í orði en ekki á borði: „Til­gangur með lögum um kynja­kvóta er að breyta hugs­un­ar­hætti,” sagði Hall­björn. Ragna sagð­ist nú vera orðin sann­færð um að grípa þurfi til rót­tækra aðgerða í jafn­rétt­is­málum.

Mjög mik­ill áhugi var á fund­inum, en yfir 600 manns, nær ein­göngu konur. Hægt er að horfa á fund­inn hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár