Pútín stígur inn á sviðið í Bandaríkjunum - Spennan áþreifanleg

Vladímir Pútín er á leið til New York í opin­berum erinda­gjörðum, í fyrsta skipti í ára­tug, og mun funda með Ban Ki-Moon, aðal­rit­ara Sam­ein­uðu þjóð­anna, í tengslum við sjö­tug­asta Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna í næstu viku og einnig Frans Páfa sem hóf sex daga opin­bera heim­sókn sína til Banda­ríkj­anna í fyrra­dag og hélt rak­leiðis til fundar við Barack Obama, for­seta. Þá munu emb­ætt­is­menn Putíns funda með emb­ætt­is­mönnum stjórn­valda í Banda­ríkj­unum en form­legur fundur með Obama er ekki á dag­skrá Pútíns. Þeir hafa hins vegar mælt sér mót á Alls­herj­ar­þing­inu og mun eiga stuttan fund, þar sem staða mála í Sýrlandi verður í brennid­epli, að því er fram kemur á vef Bloomberg í dag.


Obama to Meet Putin Next Week at United Nations General Assembly http://t.co/YUWMHq1R69 via @bpolitics w/@justinsink


— Angela Greil­ing­Keane (@agreilingkeane) Sept­em­ber 24, 2015

Með Pútín í för verður Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra, sem þykir til marks um að þessi heim­sókn eigi að skilja eftir sig var­an­leg jákvæð spor í þágu starfs Sam­ein­uðu þjóð­anna. Það er ef allt gengur að óskum.

Spennuþrungið andrúmsloft


Pútín og stjórn hans á í vök að verj­ast þessa dag­ana, en hann á fáa banda­menn á hinum alþjóða­póli­tíska sviði. Banda­rísk stjórn­völd hafa hert við­skipta­þving­anir sínar gagn­vart Rússum og Evr­ópu­sam­bandið, ásamt fleiri ríkjum, Íslandi þar á meðal, heldur sínum aðgerðum til streitu. Ástæðan er hern­aður Rússa gagn­vart grann­rík­inu Úkraínu og það mat helstu þjóð­ar­leið­toga heims­ins, að Pútín sé „óút­reikn­an­legur“ eða „stjórn­laus“ eins og Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, komst að orði. Hætta sé á því að ófriður brjót­ist enn meira út og Rússar linni ekki látum fyrr en þeir hafa fengið það fram sem þeir vilja.

Samhliða þessu hefur staða efna­hags­mála í land­inu versnað. Þar ræður tæp­lega 60 pró­sent verð­fall á olíu á innan við ári, miklu. Rúblan hefur veikst mikið, inn­flutn­ings­bann hefur klippt á við­skipta­sam­bönd og landið hefur þannig ein­angr­ast. Tunnan af hrá­olíu (crude oil) hefur fallið úr 110 Banda­ríkja­dölum í um 50 Banda­ríkja­dali, svo dæmi sé nefnt. Þá hefur einnig þrengt að fjár­mála­stofn­unum í Rúss­landi og við því búist, að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, að staða á fjár­mála­mörk­uðum í land­inu eigi eftir að versna enn frekar. Eins og Ómar Þor­geirs­son greindi frá í ítar­legri frétta­skýr­ingu frá Moskvu, 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, þá er vax­andi þrýst­ingur á Pútín og hans menn vegna versn­andi breyt­inga á efna­hagnum.

[caption id="attachment_39725" align="alignnone" width="1024"] Obama og páf­inn áttu vin­sam­legan fund. Mynd: EPA.[/caption]

Núna er það Sýrland


Kast­ljósið í heim­sókn Pútíns bein­ist nú að Sýrlandi. Rússar hafa nú þegar stillt sér upp með stjórn­ar­her Assads for­seta, sem berst við upp­reisnar- og öfga­hópa í land­inu. Stríðið í Sýrlandi hefur haft gríð­ar­legar nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér fyrir íbúa lands­ins, og leitt til mik­ils straums flótta­manna til nágranna­ríkja og Evrópu. Af um 22 millj­óna heildar­í­búa­fjölda er talið að 9,5 milljón lifi við ótta og hættu­legar aðstæður vegna stríðs­ins, og stór hluti þess hóps er á flótta. Um fimm millj­ónir manna eru sagðar á flótta innan landamæra, ýmist undan stjórn­ar­hernum eða upp­reisnar- og öfga­hópum, sem kenndir eru við Íslam en ættu kannski frekar að vera kenndir beint við ofbeld­is­fulla glæpi. Trú­ar­legur boð­skapur virð­ist ein­hvers staðar víðs fjarri.

Obama og páfinn áttu vinsamlegan fund. Mynd: EPA.
Obama og páf­inn áttu vin­sam­legan fund. Mynd: EPA.

Banda­ríkin hafa til þessa verið treg til þess að blanda sér í átökin í Sýrlandi og van­treyst Assad. Þau hafa sagt hann standa í vegi fyrir friði og stríðið sé ekki síður á hans ábyrgð en upp­reisn­ar­hóps­ins, eins og John Kerry utan­rík­is­ráð­herra ítrek­aði í sumar, þegar raddir urðu æ hávær­ari um nauð­syn þess að gripið yrði inn í gang mála í Sýrlandi með hern­að­ar­að­gerðum og neyð­ar­að­stoð Banda­ríkja­hers.

Snýst um að verja alþjóðalög og leita lausna


Pútin kom mörgum á óvart þegar hann skrif­aði langa grein í New York Times 11. sept­em­ber 2013, og skýrði hvernig staða mála í Sýrlandi horfði við honum á þeim tíma. Hann var­aði við því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar þving­uðu fram aðgerðir sem gætu leitt til hern­aðar gegn stjórn­ar­hernum frá alþjóð­legum her, og sagði slíkt geta verið eins og eld­spýta í púð­ur­tunnu. Á þessum tveimur árum hefur staðan versnað til muna og ófriður auk­ist til muna. Ólíkt því sem Pútín ræddi um grein sinni fyrir tveimur árum, þá er traustið milli hans og Obama ekki eins og það var, og jafn­vel ekki fyrir hendi. Við­skipta­þving­anir og vax­andi spenna eru til vitnis um það.

Eftir að Rússar sendu fyrstu her­þot­urnar til Sýrlands, til þess að aðstoða stjórn­ar­her­inn, í síð­ustu viku, þá virð­ist óhjá­kvæmi­legt að Banda­ríkja­menn og Rússar komi sér saman hvernig fram­haldið skuli vera. Banda­ríkja­menn eru við­var­andi hern­að­ar­að­gerðir í gangi, en þær eru sér­tækar enn sem komið er.

Í ljósi hinnar miklu spennu sem nú er í Austur-Evrópu og Mið-Aust­ur­löndum, þar sem nýtt kalt stríð milli aust­urs og vest­urs hefur verið að teikn­ast upp, þá geta ákvarð­anir stjórnar Pútíns, Sam­ein­uðu þjóð­anna og rík­is­stjórnar Obama, á þessum tíma­punkti, haft mikil áhrif á gang mála. Pútín og Obama hitt­ust síð­ast á fundi 6. júní í fyrra, í París, þegar enda­lokum Seinni heim­styrj­ald­ar­innar var minnst.

[caption id="attachment_34374" align="alignnone" width="1024"] Sýrland er stríðs­hrjáð svæði, og hörm­ungar stríðs hafa áhrif á dag­legt líf íbúa lands­ins. Mynd: EPA:[/caption]

Sýrland er stríðshrjáð svæði, og hörmungar stríðs hafa áhrif á daglegt líf íbúa landsins. Mynd: EPA:
Sýrland er stríðs­hrjáð svæði, og hörm­ungar stríðs hafa áhrif á dag­legt líf íbúa lands­ins. Mynd: EPA:
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár