Mynd: Náttúrurannsóknarmiðstöðin við Mývatn

„Skrautleg súpa“ í Mývatni

Sjaldgæf sjón. Skrautleg súpa og meiriháttar málningar­blanda. Þetta eru orð sem starfs­menn Náttúru­rannsóknar­miðstöðvarinnar við Mývatn nota um óvenjulegt sjónar­spil í vatninu.

Það skortir ekki rannsóknar­efnin hjá Náttúru­rannsóknar­miðstöðinni við Mývatn. Fyrir helgi upphófst mikið sjónar­spil við suður­strönd vatnsins er mýflugur og mýpúpu­hýði rak í stórum stíl að bakkanum og blandaðist blábakteríu­mori.

„Úr varð meiriháttar málningar­blanda þar sem gulir og grænir litir morsins blönduðust gráum og bláleitum litum kítíns,“ segir á Facebook-síðu rannsóknar­miðstöðvarinnar. „Sumt af morinu var að leysast upp og þá kemur fram túrkis­blár litur sem stafar af óteljandi örsmáum loft­hylkjum sem morbakteríurnar hafa í sér en losna úr frumunum. Hægur straumur við bakkann hrærði þessu öllu varlega saman í röndótta sveipa. Sjaldgæf sjón.“ Í annarri færslu segir að þegar „kynstrin öll af smágerðu mýi“ kviknuðu í Mývatni og blandaðist blábakteríu­morinu hafi orðið til „hin skrautlegasta súpa“.

Eyjan Slútnes í Mývatni.
Eyjan Slútnes í Mývatni.

Þá vakti starfs­fólk rannsóknar­miðstöðvarinnar einnig athygli á því að við eyjuna Slútnes í Mývatni var vatnið litað blábekteríumori. „Það vekur athygli að litur morsins er brúnn sunnan við eyna en grænn norðan við hana. Það bendir til að tvær mismun­andi tegundir baktería mori vatnið að þessu sinni. Það skortir ekki rannsóknar­efnin!“

Að ýmsu er að hyggja í rann­sóknum við náttúru­perluna Mývatn og sem dæmi var í vikunni gerð tilraun til að telja álftir á vatninu með dróna. Samkvæmt talningu reyndust þær að minnsta kosti 423 í einum hópi á Ytriflóa.

Náttúru­rannsókna­stöðin við Mývatn (RAMÝ) er vísinda­stofnun á vegum umhverfis­ráðuneytisins, byggð á lögum um verndun Mývatns og Laxár og hefur verið starfrækt síðan 1974. Hún fæst við rann­sóknir á náttúru og sögu Mývatns og Laxár og vatna­sviðs þeirra með það höfuð­markmið að skilja náttúrufars­breytingar og sjá þær fyrir og stuðla þannig að verndun svæðisins. Stöðin er í gamla prestseturs­húsinu á Skútu­stöðum.

Mývatn og Laxá og vatnasvið þeirra er lífríkt og fjöl­breytt vatna­kerfi á eldvirku rekbelti á mörkum tveggja jarðskorpu­fleka og á sér enga hliðstæðu á jörðinni. Svæðið nýtur sérstakrar verndar með lögum og alþjóða­samningi. Það laðar að sér fjölda ferða­manna og fóstrar jafnframt mikið mannlíf sem nýtir náttúru­auðlindir þess. Náttúra svæðisins tekur umtals­verðum breytingum, m.a. vegna jarðfoks, eldvirkni, námu­vinnslu, jarðhita­nýtingar, ræktunar, breytinga á búfjár­beit, samgöngu­mannvirkja og annarrar mann­virkja­gerðar.

Náttúru­rannsókna­stöðin leitast við að standa í fremstu röð í rann­sóknum á vistfræði vatns og lífríki vatna og vöktun þeirra. Hún stefnir að því að rann­sóknir á hennar vegum standist alþjóðlegar kröfur og rannsókna­niðurstöður birtist í viðurkenndum vísinda­ritum. Vegna þess gildis sem langtíma­gögn um ástand vatns og lífríkis þess hefur fyrir rann­sóknir og ráðgjöf safnar stöðin og heldur til haga slíkum gögnum. Gagnasafn stöðvarinnar nær nú aftur til ársins 1975 og er með þeim lengstu í heiminum um ástand lífríkis í stöðu­vatni.

Facebook-síða RAMÝ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár