Lestur Fréttablaðsins dregist saman um 15 prósent frá því að nýir eigendur keyptu það

Lestur Morg­un­blaðs­ins hjá fólki undir fimm­tugu fór í fyrsta sinn síðan mæl­ingar hófust undir tveggja stafa tölu í síð­asta mán­uði. Lestur Frétta­blaðs­ins hefur helm­ing­ast á rúmum ára­tug.

Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs.
Helgi Magn­ús­son, aðal­eig­andi Torgs. Mynd: Torg.is

Lestur Frétta­blaðs­ins hefur dreg­ist saman um 15 pró­sent frá því að nýir eig­endur komu að honum um mitt ár 2019. Þá lásu 38,4 pró­sent lands­manna blaðið sam­kvæmt mæl­ingum Gallup á lestri prent­miðla en í síð­asta mán­uði var það hlut­fall komið niður í 32,6 pró­sent, og hefur aldrei verið lægra. Lestur á Frétta­blað­inu hefur helm­ing­ast frá vor­mán­uðum 2010.

Þegar horft er á lest­ur­inn hjá lands­mönnum í ald­urs­hópnum 18-49 ára hefur hann dreg­ist saman um 20 pró­sent frá því að nýju eig­end­urnir tóku keyptu sig fyrst inn. Hann er nú 23 pró­sent í þeim ald­urs­hópi.

Í júní 2019 keypti athafna­mað­ur­inn Helgi Magn­ús­son helm­ings­hlut í útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins, Torgi. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál en í októ­ber keyptu Helgi og sam­starfs­menn hans, meðal ann­ars rit­stjór­inn Jón Þórisson, hinn helm­ing­inn í útgáf­unni auk þess sem sjón­­­varps­­­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­­­ur­inn. Aftur var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál. Eign­ar­haldið á Torgi hefur verið í félagi sem heitir HFB-77 ehf. Það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­ónir króna í fyrra. Torg er eina þekkta eign félags­­ins og var keypt á síð­­asta ári. Í des­em­ber 2020 var svo greint frá því að Helgi hefði keypt nýtt hlutafé í Torgi fyrir 600 millj­ónir króna.

Miðað við þær upp­lýs­ingar má ætla að Helgi og við­skipta­fé­lagar hans hafi sett um 1,2 millj­arð króna í að ann­ars vegar kaupa Torg og hins vegar að styrkja rekstur útgáfu­fé­lags­ins.

Færri útgáfudagar og minna upplag

Þegar nýju eig­end­urnir komu að Frétta­blað­inu var því dreift sex daga vik­unnar í 85 þús­und ein­tökum ókeypis á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akureyri. Í fyrra var ákveðið að hætta útgáfu mánu­dags­blað og fækka þannig útgáfu­dögum um einn. Dreif­ingin hefur auk þess dreg­ist saman úr 85 í 80 þús­und ein­tök á dag.

[adspot]Önnur breyta sem gæti haft áhrif á lestur Frétta­blaðs­ins eru breytt lög um póst­þjón­ustu, sem sam­þykkt voru 2019, og gera frí­blöðum erf­ið­ara fyrir en áður að ná augum fólks. Í þeim er réttur neyt­enda til að afþakka frí­blöð tryggð­ur. Á grunni þeirra laga réðst Reykja­vík­ur­borg í útgáfu á svoköll­uðum afþökk­un­ar­lím­miðum fyrir Reyk­vík­inga, sem sendir voru á öll heim­ili á þessu stærsta dreif­ing­ar­svæði frí­blaða á Íslandi.

Í við­horfskönnun sem Reykja­vík­ur­borg og SORPU bs. létu gera um flokkun og end­ur­vinnslu, í aðdrag­anda þess að gripið var til þess ráð­ast að dreifa mið­un­um, kom í ljós að um 70 pró­sent af svar­endum afþökk­uðu ekki fjöl­póst en gátu mögu­lega eða mjög vel hugsað sér að gera það.

Tap Torgs á árinu 2019 var 212 millj­­ónir króna en þar var búið að reikna með 50 millj­­óna króna styrk út rík­­is­­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þeir styrkir voru aldrei greiddir út, enda frum­varp um þá ekki sam­­þykkt. Hins vegar voru greiddar út sér­­stakir neyð­­ar­­styrkir vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins sem á end­­anum skil­uðu Torgi 64 millj­­ónum króna.

Undir tíu prósent hjá undir fimmtugu í fyrsta sinn

Lestur Morg­un­blaðs­ins hefur heldur aldrei mælst jafn lít­ill og hann var í febr­úar 2021. Þá sögð­ust 20,1 pró­sent lands­manna hafa lesið blaðið, en vert er að taka það fram að Morg­un­blaðið er frí­blað einu sinni í viku, á fimmtu­dögum, þegar það er í svo­kall­aðri aldreif­inu. Þá fær fjöldi manns sem er ekki áskrif­andi blaðið óum­beðið inn um lúg­una hjá sér. Lestur Morg­un­blaðs­ins hjá öllum ald­urs­hópum hefur helm­ing­ast frá vor­inu 2009, þegar hann var 40 pró­sent.

Sam­drátt­ur­inn er mestur í ald­urs­hópnum 18-49 ára. Þar segj­ast nú, í fyrsta sinn frá því að mæl­ingar hófust, undir tíu pró­sent lands­manna lesa Morg­un­blaðið. í byrjun árs 2009, þegar nýir eig­endur komu að rekstri blaðs­ins sem réðu svo núver­andi rit­stjóra (Davíð Oddsson og Harald Johann­es­sen) þess til starfa, var Morg­un­blaðið lesið af þriðj­ungi allra lands­manna á þessum aldri.

Tap Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og fleiri miðla, á þeim ára­tug sem leið frá því að nýir eig­endur tóku yfir móð­ur­fé­lagið Þórs­mörk á árinu 2009, og fram til loka árs 2019, var sam­tals um 2,5 millj­­örðum króna.

Tvö prósent undir fimmtugu lesa DV

Hin tvö blöðin sem mæld eru í könnun Gallup eru viku­blöð: DV og Við­skipta­blað­ið. Heild­ar­lestur DV, hjá öllum mældum ald­urs­hóp­um, mælist nú 2,9 pró­sent og 5,1 pró­sent hjá Við­skipta­blað­inu.

[links]Af lands­mönnum undir fimm­tugu lesa 3,8 pró­sent Við­skipta­blaðið og 2,0 pró­sent segj­ast lesa DV. Lestur Við­skipta­blaðs­ins hjá ald­urs­hópnum hefur dreg­ist saman um 47 pró­sent á tveimur árum og lestur DV um rúm­lega 70 pró­sent.

Auk ofan­greindra er Stundin enn send til áskrif­enda í papp­írs­formi og nokkur minni hér­aðs­blöð koma enn út í því formi. Ekk­ert þeirra er þó í mæl­ingum hjá Gallup.

Bænda­blaðið er enn prentað og kaupir mæl­ingar hjá Gallup í októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber á hverju ári. Í lok árs 2019 sögð­ust 29,2 pró­sent lands­manna sjá Bænda­blaðið og hafði lestur þess hald­ist stöð­ugur und­an­farin ár.

Í des­em­ber 2020 mæld­ist hann hins vegar 24,3 pró­sent og hafði því fallið um tæp 17 pró­sent á milli ára. Hjá fólki undir fimm­tugu mæld­ist lestur Bænda­blaðs­ins 14,4 pró­sent í lok síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár