Mynd: Bára Huld Beck

Prentmiðlar: Færri blöð, færri útgáfudagar og lesturinn aldrei verið minni

Lestur prent­miðla hefur aldrei mælst minni og hann hefur minnkað hratt, sér­stak­lega hjá fólki undir fimm­tugu, síð­ustu ár. Í mæl­ingum Gallup eru nú ein­ungis fjögur blöð: eitt frí­blað, eitt áskrift­ar­dag­blað og tvo viku­blöð.

Lestur stærstu prent­miðla lands­ins hefur dreg­ist veru­lega saman á örfáum árum. Lestur Frétta­blaðs­ins hjá fólki undir fimm­tugu hefur til að mynda farið úr 64 í 25 pró­sent á ára­tug og Morg­un­blaðið er nú með undir tólf pró­sent lestur í þeim ald­urs­hópi.

Mannlíf virð­ist vera hætt að koma út, lestur DV hefur helm­ing­ast á nokkrum mán­uðum og Við­skipta­blaðið er lesið af 4,1 pró­sent lands­manna.

Öll prentuð blöð sem koma út á Íslandi mæl­ast nú með minnsta lestur sem þau hafa nokkru sinni mælst með, sam­kvæmt mæl­ingum Gallup. Og lestur hefur minnkað hratt síð­ustu ár.

Breytt lög um póst­þjón­ustu, sem sam­þykkt voru í fyrra, gera frí­blöðum erf­ið­ara fyrir en áður að ná augum fólks. Í þeim er réttur neyt­enda til að afþakka frí­blöð tryggður.

Á grunni þeirra laga réðst Reykja­vík­ur­borg í útgáfu á svoköll­uðum afþökk­un­ar­lím­miðum fyrir Reyk­vík­inga, sem sendir voru á öll heim­ili á þessu stærsta dreif­ing­ar­svæði frí­blaða á Íslandi fyrir nokkrum vikum síðan.

Lestur hjá yngri hluta þjóðarinnar kominn undir 12 prósent

Sem stendur koma út fjögur dag­blöð á Íslandi. Auk þeirra er Stundin enn send til áskrif­enda í papp­írs­formi og nokkur minni hér­aðs­blöð koma enn út í því formi. Ekkert þeirra er þó í mæl­ingum hjá Gallup. Bænda­blaðið er enn prentað og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá yfir­manni rekstrar- og mark­aðs­mála hjá því kaupir blaðið mæl­ingar hjá Gallup í októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber á hverju ári. Í lok síð­asta árs sögð­ust 29,2 pró­sent lands­manna sjá Bænda­blaðið og hefur lestur þess hald­ist stöð­ugur und­an­farin ár.

Eitt dag­blað­anna sem enn er mælt, Morg­un­blaðið, er áskrift­ar­blað sem kemur út sex sinnum í viku. Síð­ast­liðið ár hefur blaðið verið í frídreif­ingu á fimmtu­dögum, sem þýðir að fjöldi fólks sem eru ekki áskrif­endur, og báðu ekki um að fá blaðið, fá það þá daga nema að það leggi sig fram við að hafna því.

Lestur Morg­un­blaðs­ins hefur breyst mikið und­an­farin ár. Áratugum saman var það frekar und­an­tekn­ing en regla að heim­ili í land­inu væri ekki með áskrift að blað­inu. Sumarið 2008 fór lest­ur­inn í fyrsta sinn undir 40 pró­sent hjá öllum les­enda­hópum. Fyrir sex árum fór hann undir 30 pró­sent, fyrir tveimur árum undir 25 pró­sent og í síð­ustu mæl­ingu Gallup, sem sýnir lest­ur­inn í ágúst 2020, mæld­ist hann 21,9 pró­sent. Lestur Morg­un­blaðs­ins hefur aldrei mælst minni.

Lest­ur­inn hefur skroppið mest saman hjá yngri lands­mönnum. Hjá fólki undir fimm­tugu var lest­ur­inn um 23 pró­sent fyrir rúmum sex árum síðan. Hann er nú 11,9 pró­sent og hefur næstum helm­ing­ast síðan þá.

Fríblað sem er lesið af fjórðungi fólks undir fimmtugu

Frétta­blaðið, frí­blað sem dreift er ókeypis í 80 þús­und ein­tökum á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akureyri, kemur nú út fimm sinnum í viku. Útgáfu­dögum þess var fækkað um einn í apríl síð­ast­liðnum, þegar ákveðið var að blaðið myndi ekki lengur koma út á mánu­dögum. Síðasta breyt­ing á útgáfu­tíðni fyrir það hafði verið í jan­úar 2009, skömmu eftir banka­hrunið, þegar Frétta­blaðið hætti að koma út á sunnu­dögum.

Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­festu á dag­blaða­mark­aði með til­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust 65,2 pró­sent lands­manna lesa Frétta­blaðið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­sent. Nú mælist lestur Frétta­blaðs­ins 35,1 pró­sent.

Líkt og hjá Morg­un­blað­inu þá hefur lest­ur­inn að mestu dreg­ist saman hjá yngri les­endum. Vorið 2010 lásu um 64 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára blaðið. Nú lesa 25 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu það.

Hratt minnkandi lestur vikublaða

Um tíma komu út þrjú viku­blöð í dag­blaða­formi. Mannlíf, sem var frí­blað, til­kynnti í sumar að það myndi fara í útgáfu­hlé í júlí­mán­uði og koma aftur út 7. ágúst. Nú, rúmum mán­uði síðar, hefur blaðið enn ekki komið úr því fríi og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er frek­ari útgáfa ekki í far­vatn­inu. Í júní lásu 16,6 pró­sent lands­manna Mannlíf.

DV á sér langa sögu og var lengi vel í mun tíð­ari útgáfu. Upp­safn­aður lestur mæld­ist til að mynda um 40 pró­sent árið 2005 hjá öllum ald­urs­hópum. Síðan þá hefur blaðið gengið í gegnum mikið hnign­un­ar­skeið og und­an­farin ár hefur það komið út einu sinni í viku og verið rekið í botn­lausu tapi. Vorið 2011 var lest­ur­inn rúm­lega 14 pró­sent, í fyrra­vor var hann rúm­lega níu pró­sent og nú mælist hann 4,6 pró­sent. Lest­ur­inn hefur því helm­ing­ast á rúmu ári og hefur aldrei verið minni. Hjá ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­ur­inn nú þrjú pró­sent.

Við­skipta­blaðið kom um tíma út nokkrum sinnum í viku fyrir banka­hrunið. Það skipti um kenni­tölu í kjöl­far þess og hefur síðan þá verið viku­blað. Lest­ur­inn náði hápunkti síðla árs 2015 þegar hann mæld­ist 13,4 pró­sent en síðan hefur hann minnkað hratt. Í ágúst 2020 mæld­ist lest­ur­inn 4,1 pró­sent sem er um helm­ingur af því sem hann var í des­em­ber 2019. Hjá fólki undir fimm­tugu er hann enn minni, eða 3,2 pró­sent.

Margir geta hugsað sér að afþakka

Sumarið 2019 sam­þykkti Alþingi lög um póst­þjón­ustu þar sem réttur neyt­enda til að afþakka frí­blöð var tryggður. Ekki er hægt að afþakka þetta mið­lægt heldur þarf hver og einn að gera það með eigin merk­ingum. Í þessu ljósi ákvað Reykja­vík­ur­borg að ráð­ast í útgáfu á svoköll­uðum afþökk­un­ar­lím­miðum fyrir Reyk­vík­inga. Um er að ræða miða, sem dreift var í sumar inn á heim­ili íbúa borg­ar­innar sem gera þeim kleift að afþakka ómerktan fjöl­póst og frí­blöð.

Í til­kynn­ingu sem borgin birti vegna þessa sagði að með notkun á mið­unum gætu þeir sem ekki lesa miðla á prenti „á ein­faldan hátt afþakkað að fá slíkan póst inn um lúg­una hjá sér. Þannig getur fólk stuðlað að minni notkun auð­linda, vegna papp­írs, prent­unar og dreif­ingar og vegna söfn­unar og end­ur­vinnslu á papp­írnum.“

Í við­horfskönnun sem Reykja­vík­ur­borg og SORPU bs. létu gera um flokkun og end­ur­vinnslu, í aðdrag­anda þess að gripið var til þess ráð­ast að dreifa mið­unum, kom í ljós að um 70 pró­sent af svar­endum afþökk­uðu ekki fjöl­póst en gátu mögu­lega eða mjög vel hugsað sér að gera það.

Verði notkun á mið­unum í sam­ræmi við nið­ur­stöðu við­horfskönn­un­ar­innar er lík­legt að lestur á frí­blöðum eins og Frétta­blað­inu og fimmtu­dags­út­gáfu Morg­un­blaðs­ins muni dala enn frekar í nán­ustu fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár