Sigurvegari kappræðna Demókrata: Donald Trump

Kapp­ræður Demókrata um for­seta­efni flokks­ins vörp­uðu ljósi á deilur innan flokks­ins. Enginn fram­bjóð­andi virð­ist full­kom­inn mótherji gegn Trump.

Hluti frambjóðenda Demókrata til forseta Bandaríkjanna.
Hluti fram­bjóð­enda Demókrata til for­seta Banda­ríkj­anna. Mynd: úr safni

Hart var tek­ist á í vik­unni í kapp­ræðum fram­bjóð­enda Demókrata um for­seta­efni flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2020. Deilur inn­byrðis innan flokks­ins voru áber­andi og eng­inn fram­bjóð­andi virð­ist vera full­kom­inn mótherji gegn Donald Trump, sitj­andi for­seta.

Fram­bjóð­end­urnir voru afar bein­skeyttir í gagn­rýni sinni á hvor annan. Oft og tíðum bentu fram­bjóð­endur á að þau ættu að ein­beita sér að mik­il­væg­asta mál­efn­inu, það er hvernig væri hægt að sigra Trump, fremur en að berj­ast inn­byrðis.

[adspot]Fram­bjóð­endum Demókra­ta­flokks­ins var skipt í tvo hópa í vik­unni. Bernie Sanders og Elizabeth Warren áttu sviðs­ljósið fyrra kvöldið, en Kamala Harris og Joe Biden hið seinna.

Fyrra kvöldið: Sanders og Warren

[links]Öll spjót beindust að Bernie Sand­ers og Eliza­beth War­ren í fyrri kapp­ræð­unum. Þau hafa mest fylgi þeirra sem tóku þátt í kapp­ræð­unum fyrri. Mótherjar þeirra þeirra sögðu þau lofa upp í erm­ina á sér með því að boða ókeypis heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Banda­ríkja­menn.

Warren og Sand­ers náðu þó að kom­ast hjá því að takast beint á við hvort ann­að, þrátt fyrir að vera séð sem helstu keppi­nautar hvors ann­ars. Í stað­inn lögðu þau bæði áherslu á að ná til ungs fólks og kjós­enda sem ekki séu hvít­ir. Þau lögðu einnig áherslu á að fram­bjóð­andi demókrata þyrfti að hafa skýra og rót­tæka sýn fyrir Banda­rík­in.

Helsti gagn­rýn­andi War­ren og Sand­ers var John Dela­ney sem sak­aði tvíeykið um að hafa slæma stefnu­skrá, lofi öllu fögru og not­ist við „æv­in­týra hag­fræði“ sem myndi valda því að Trump yrði end­ur­kos­inn.

Seinna kvöldið: Biden og Harris

Jos­eph R. Biden, fyrrum vara­for­seti Banda­ríkj­anna, og Kamala Harris, öld­unga­deild­ar­þing­maður og fyrrum umdæm­issak­sókn­ari, tók­ust hart á. Í fyrsta hluta kapp­ræð­anna fyrr í sumar tók­ust þau harka­­lega á, sér­­stak­­lega um mál­efni minn­i­hluta­hópa. Því voru öll augu á þeim í seinni kapp­ræð­unum.

Biden og Harris gagn­rýndu hvort annað á víxl fyrir stefnu sína í heil­brigð­is­málum. Aðrir fram­bjóð­endur gagn­rýndu einnig Biden. Biden var ásak­aður af sam­herjum sínum að vera með of harða inn­flytj­enda­stefnu, að vera ekki nógu hlið­hollur kven­rétt­indum og að hann væri of gjarn á að bendla sig við Obama.

Julian Castro, fyrrum ráð­herra hús­næð­is­mála og borg­ar­þró­un­ar, sótti til að mynda hart að Biden vegna fyrri stefnu hans í inn­flytj­enda­mál­u­m. Hann var jafn­framt gagn­rýndur fyrir stefnu sína í íraks­stríð­inu, við­skiptum og lofts­lags­mál­um.

Óvænta stjarna seinni kapp­ræð­anna var Cory Booker, öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur. Booker sem er fimm­tugur telst afar fram­sæk­inn innan Demókra­ta­flokks­ins. Hann hefur lengi barist gegn hörðum refs­ingum fyrir fíkni­efna­brot og önnur brot sem ekki eru ofbeld­is­brot.

Booker gagn­rýndi Biden, sér­stak­lega hvað varðar fyrrum refsi­stefnu hans í mál­efnum fíkni­efna­neyt­enda. Jafn­framt sagði hann fyrrum for­set­ann bendla sig við Obama eftir hent­ug­leika en víkja undan þegar stefna fyrrum for­set­ans væri gagn­rýnd. Hann sagði Biden ekki geta valið hvenær hann bendli sig við Obama og hvenær ekki.

Deilt um Trump

Á báðum kvöldum kapp­ræðn­anna var Donald Trump, sitj­andi Banda­ríkja­for­seti, eitt helsta umfjöll­un­ar­efni fram­bjóð­enda og spyrla. Mikið var deilt um hvort fram­sæk­inn eða íhalds­samur fram­bjóð­andi Demókrata gæti unnið sitj­andi for­seta í kom­andi kosn­ing­un­um.

Jay Ins­lee, einn fram­bjóð­end­anna, sagði að ekki gætu Banda­ríkin lengur við unað að hafa hvítan þjóð­ern­is­sinna í Hvíta hús­inu. Hann sagði jafn­framt að Banda­ríkin þyrftu að vera staður sem fólk gæti sótt sér skjól.

Pete Buttigieg, einn fram­bjóð­end­anna í fyrri kapp­ræð­unum, upp­skar mikið lófa­klapp við orð sín að sama hvort næsti fram­bjóð­andi demókrata væri vinstri­maður eða íhalds­samur þá myndu Repúblík­anar halda uppi þeim áróðri að fram­bjóð­and­inn væri öfga-sós­í­alisti. Því væri eins gott að berj­ast fyrir almennri ókeypis heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mari­anna Willi­am­son, höf­und­ur, spír­it­isti og einn fram­bjóð­end­anna, sótti hart að gagn­rýnendum War­ren og Sand­ers. Hún sagð­ist ekki skilja hvers vegna þau væru Demókratar þar sem þeim þyki rangt að nota verk­færi rík­is­ins til að hjálpa fólki. Willi­am­son var­aði einnig við „myrkum öfl­um“ sem Trump væri að vekja upp í Banda­ríkj­un­um.

Trump sigurvegarinn

Þrátt fyrir að fram­bjóð­endur Demókrata voru óhræddir við að gagn­rýna Trump var óein­ing á meðal fram­bjóð­end­anna sjálfra þó skýr. Allir fram­bjóð­endur Demókrata voru afar bein­skeyttir í gagn­rýni sinni á sam­herja sína og gagn­rýndu hvorn annan til að mynda vegna stefnu sinnar í heil­brigð­is­málum, mál­efnum inn­flytj­enda og stefnu sinnar í dóms­málum.

Sumir fram­bjóð­end­anna bentu á að það að takast á inn­byrðis myndi ein­ungis styrkja stöðu Trump. Fjöl­margir stuðn­ings­menn sitj­andi for­seta fögn­uðu átökum Demókratanna ákaft auk þess sem þeir fögn­uðu hversu mikið fram­bjóð­end­urnir gagn­rýndu Obama, fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna.

Matt Schlapp, for­maður Íhalds­sam­bands Banda­ríkj­anna, American Conservative Union, og dyggur stuðn­ings­maður Trump, skrif­aði til að mynda í færslu á Twitter að Obama hlyti að líða illa að sjá fyrrum vini sína ráð­ast gegn honum fyrir lélega heil­brigð­is­stefnu og rasíska inn­flytj­enda­stefnu.

For­set­inn var ófeim­inn að skrifa færslur á Twitter um kapp­ræður Demókratanna. Hann sagði til að mynda í einni færsl­unni að Demókrat­arnir gætu ekki gert Ameríku frá­bæra á ný eða haldið Ameríku frá­bærri.

Hver getur sigrað Trump?

Í næstu kapp­ræðum munu færri fram­bjóð­endur stíga á stokk. Til þess að kom­ast áfram í næstu umferð þurfa fram­bjóð­endur að hafa náð að minnsta kosti tveggja pró­senta stuðn­ingi úr fjórum skoð­ana­könn­un­um, auk 130.000 stuðn­ings­að­ila. Sem stendur hefur Sanders hæsta fjölda stuðn­ings­að­ila, eða 746.000. Þar á eftir kemur Warren með 421.000 stuðn­ings­að­ila og Buttigieg með 390.000. Harris og Biden fylgja þar á eftir með 277.000 og 256.000 stuðn­ings­að­ila.

Sanders er sá fram­bjóð­andi sem hefur safnað hæstu upp­hæð fram­laga með 36 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Buttigieg kemur þar á eftir með 32 millj­ónir, Warren með 25 millj­ónir, Harris með 24 millj­ónir og Biden 22 millj­ónir. Því virð­ist sem Sanders, Warren, Harris, Biden og Buttigieg muni fara áfram í næstu umferð.

Fjöl­margar skoð­ana­kann­anir sýna að kjós­endur Demókrata vilja frekar kjósa fram­bjóð­anda sem getur sigrað Trump en fram­bjóð­anda sem þau séu sam­mála. Því verður spenn­andi að sjá hverjum kjós­endum Demókrata treysta til að keppa við sitj­andi for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár