Demókratar tókust á í annarri umferð kappræðna

Önnur umferð kapp­ræðna Demókrata fyrir for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum árið 2020 átti sér stað í gær­kvöld. Öll spjót beindust að Joe Biden, en óvænt stjarna kvölds­ins var Cory Booker.

Joe Biden, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi.
Joe Biden, fyrrum vara­for­seti Banda­ríkj­anna og for­seta­fram­bjóð­andi. Mynd: EPA

Seinni hluti kapp­ræðna Demókrata, fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2020, var varpað í beinni útsend­ingu í gær. Öll spjót beindust að fyrrum vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Joe Biden. Óvænt stjarna kvölds­ins var þó Cory Booker, öld­unga­deild­ar­þing­maður.

Fyrri helm­ingur fram­bjóð­enda Demókrata tókst á á þriðju­dag­inn síð­ast­lið­inn. CNN, sjón­varps­stöðin sem varpar kapp­ræð­unum beint, skipti fram­bjóð­end­unum í tvo hluta með því að draga nöfn þeirra af handa­hófi. Áður var þó nöfnum fram­bjóð­end­anna sem hafa for­ystu tekin frá, það eru nöfn Sand­ers, War­ren, Biden og Harris, til þess að ekki væru allir fram­bjóð­end­urnir sem hafa for­ystu á sama kvöld­i.

[adspot]Biden og Harris áttu sviðið

Í gær­kvöldi áttu Jos­eph R. Biden, fyrrum vara­for­seti Banda­ríkj­anna, og Kamala Harris, öld­unga­deild­ar­þing­maður og fyrrum umdæm­issak­sókn­ari, sviðið. Í fyrsta hluta kapp­ræð­anna fyrr í sumar tók­ust þau harka­lega á, sér­stak­lega um mál­efni minni­hluta­hópa. Því voru öll augu á þeim í gær.

Áhersla Harris er á alhliða heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir almenn­ing, Medicare-for-All, og sagði að áætl­unin yrði inn­leidd í skrefum næstu tíu árin. Biden gagn­rýndi áætlun hennar og sagð­ist spurja sig hvers vegna það myndi taka svo langan tíma. Harris skaut til baka og sagði áætlun Biden í heil­brigð­is­málum munu skilja tíu milljón Banda­ríkja­manna eftir án heil­brigð­is­þjón­ustu. Biden er fylgj­andi Obamacare, heil­brigð­is­á­ætlun Obama, og segir hana virka vel.

Öll spjót beinast að Biden

Á mánu­dag­inn síð­asta studdu 34 pró­sent kjós­enda Demókrata Biden og Harris var með 12 pró­sent stuðn­ing. Fyrir kapp­ræð­urnar í gær var Biden því með langtum meira fylgi en hinir fram­bjóð­end­urnir. Það kom þó ekki í veg fyrir að fram­bjóð­end­urnir sóttu hart að fyrrum vara­for­set­anum, en hann náði þó oft­ast að svara fyrir sig.

Biden var ásak­aður af sam­herjum sínum að vera með of harða inn­flytj­enda­stefnu, að vera ekki nógu hlið­hollur kven­rétt­indum og að hann væri of gjarn á að bendla sig við Obama. Julian Castro, fyrrum ráð­herra hús­næð­is­mála og borg­ar­þró­unar, sótti til að mynda hart að Biden vegna fyrri stefnu hans í inn­flytj­enda­málum.

[links]Hann var jafn­framt gagn­rýndur fyrir stefnu sína í íraks­stríð­inu, við­skiptum og lofts­lags­málum. Jay Inslee, einn fram­bjóð­end­anna, sagði að ekki gætu Banda­ríkin lengur við unað að hafa hvítan þjóð­ern­is­sinna í Hvíta hús­inu. Hann sagði jafn­framt að Banda­ríkin þyrftu að vera staður sem fólk gæti sótt sér skjól.

Biden gagn­rýndi Harris og fyrrum störf hennar sem sak­sókn­ari í Kali­forníu. „Hún stakk 1.500 manns í stein­inn fyrir maríú­ana og hló svo að því þegar hún var spurð hvort hún hefði reykt maríú­ana,“ sagði Biden.

Óvænt stjarna: Cory Booker

Óvænta stjarna kvölds­ins var Cory Booker, öld­unga­deild­ar­þing­maður. Booker sem er fimm­tugur telst afar fram­sæk­inn innan Demókra­ta­flokks­ins. Booker hefur lengi barist gegn hörðum refs­ingum fyrir fíkni­efna­brot og önnur brot sem ekki eru ofbeld­is­brot.

Booker sagði Biden bendla sig við Obama eftir hent­ug­leika en víkja undan þegar stefna fyrrum for­set­ans væri gagn­rýnd. Hann sagði Biden ekki geta valið hvenær hann bendli sig við Obama og hvenær ekki.

Booker sak­aði Biden um að hafa árið 1994 verið tals­maður harðrar refsi­stefnu sem hefði steypt fjöl­mörgum í stein­inn. „Núna er fólk í ævi­löngu fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot vegna þess að þú stóðst upp og not­færðir þér orða­gjálfur um að vera harður gegn glæpum sem varð til þess að fjöldi fólks var kos­inn - en eyði­lagði sam­fé­lög líkt og mitt,“ sagði Booker.

Deilt um Trump

Líkt og í fyrri kapp­ræð­unum á þriðju­dag­inn síð­ast­lið­inn var eitt helsta umfjöll­un­ar­efnis kvölds­ins sitj­andi for­seti, Donald Trump. Mikið var deilt um hvort fram­sæk­inn eða íhalds­samur fram­bjóð­andi Demókrata gæti unnið Trump í for­seta­kosn­ing­unum.

Í næstu kapp­ræðum munu færri fram­bjóð­endur stíga á stokk. Til þess að kom­ast áfram í næstu umferð þurfa fram­bjóð­endur að hafa náð að minnsta kosti tveggja pró­senta stuðn­ingi úr fjórum skoð­ana­könn­unum, auk 130.000 stuðn­ings­að­ila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

demókratar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár