Demókratar tókust á í beinni útsendingu

Hart var tek­ist á í kapp­ræðum fram­bjóð­enda Demókrata um for­seta­efni flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2020. Bernie Sanders og Elizabeth Warren áttu sviðs­ljósið í gær, en í kvöld mun seinni helm­ingur fram­bjóð­enda takast á.

Bernie Sanders, einn forsetaframbjóðenda Demókrata
Bernie Sanders, einn for­seta­fram­bjóð­enda Demókrata Mynd: EPA

Fram­bjóð­endur Demókrata fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2020 tók­ust á í beinni útsend­ingu í gær. Fyrri helm­ingur fram­bjóð­enda Demókrata tókst á í gær og mun seinni helm­ingur fram­bjóð­end­anna takast á í kvöld.

Öll spjót beindust að Bernie Sanders og Elizabeth Warren sem hafa mest fylgi þeirra sem tóku þátt í kapp­ræð­unum í gær. Mörg hver þeirra sögðu að Sanders og Warren lof­uðu upp í erm­ina á sér með því að lofa ókeypis heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Banda­ríkja­menn.

[adspot]Warren og Sanders náðu þó að kom­ast hjá því að takast beint á við hvort annað, þrátt fyrir að vera séð sem helstu keppi­nautar hvors ann­ars. Í stað­inn lögðu þau bæði áherslu á að ná til ungs fólks og kjós­enda sem ekki séu hvítir. Þau lögðu einnig áherslu á að fram­bjóð­andi demókrata þyrfti að hafa skýra og rót­tæka sýn fyrir Banda­ríkin.

Helsti gagn­rýn­andi Warren og Sanders var John Delaney sem sak­aði tvíeykið um að hafa slæma stefnu­skrá, lofi öllu fögru og not­ist við „ævin­týra hag­fræði“ sem muni valda því að Trump verði aftur for­seti.

Warren og Sanders fengu mestan tíma til að tala í kapp­ræð­unum í gær. Warren tal­aði í alls 18 mín­útur og 33 sek­úndur en Sanders í 17 mín­útur og 45 sek­úndur.

Trump í kastljósinu

Meðal helsta umfjöll­un­ar­efnis kvölds­ins var hvers konar fram­bjóð­andi væri nógu sterkur til að fara í fram­boð á móti Trump.

Pete Buttigieg, einn fram­bjóð­end­anna, upp­skar mikið lófa­klapp við orð sín að sama hvort næsti fram­bjóð­andi demókrata væri vinstri­maður eða íhalds­samur þá myndu Repúblík­anar halda uppi þeim áróðri að fram­bjóð­and­inn væri öfga-sós­í­alisti. Því væri eins gott að berj­ast fyrir almennri ókeypis heil­brigð­is­þjón­ustu.

Marianna Williamson, höf­undur, spír­it­isti og einn fram­bjóð­end­anna, sótti hart að gagn­rýnendum Warren og Sanders. Hún sagð­ist ekki skilja hvers vegna þau væru Demókratar þar sem þeim þyki rangt að nota verk­færi rík­is­ins til að hjálpa fólki. Williamson var­aði einnig við „myrkum öflum“ sem Trump væri að vekja upp í Banda­ríkj­unum.

Búist við hörðum átökum í kvöld

CNN, sjón­varps­stöðin sem varpar kapp­ræð­unum beint, skipti fram­bjóð­end­unum í tvo hluta með því að draga nöfn þeirra af handa­hófi. Áður var þó nöfnum fram­bjóð­end­anna sem hafa for­ystu, það eru nöfn Sanders, Warren, Biden og Harris, tekin frá til þess að ekki væru allir fram­bjóð­end­urnir sem hafa for­ystu á sama kvöldi.

Í kvöld munu einmitt Joseph R. Biden og Kamala Harris vera meðal kapp­ræðu­manna. Í síð­ustu kapp­ræðum tók­ust þau harka­lega á, sér­stak­lega um mál­efni minni­hluta­hópa. Búist er við svip­uðum átökum í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár