Lögmenn í hrunmálum „í sjokki“ - dómurinn markar tímamót

Lögmenn ákærðra í hrun-málum, það er málum sem nú hafa verið dóm­tekin sem tengj­ast hruni bank­anna og við­skipta­gjörn­ingum því tengdu, eru margir hverjir „í sjokki“, eins og einn þeirra komst að orði í sam­tali við Kjarnann, eftir dóm Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu í gær. Fæstir vilja tjá sig opin­ber­lega um nið­ur­stöð­una, en aug­ljóst var á orðum margra þeirra að dóm­ur­inn virð­ist hafa vakið þá upp við vondan draum. Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, segir nið­ur­stöð­una hins vegar vera í takt við það sem mála­til­bún­aður ákæru­valds­ins hafi mið­ast við.

Í mál­inu voru allir ákærðu, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son, Magnús Guð­munds­son og Ólafur Ólafsson, dæmdir sekir um umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti í gær, en málið tengd­ist kaupum Mohammed Sheikh Bin Kalifa Al Thani, frænda Emírsins frá Katar, á fimm pró­senta hlut í Kaup­þingi í lok sept­em­ber 2008. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur fjögur ár og Magnús fjögur og hálft ár.

Afdráttarlaust


Það sem kom lög­mönnum á óvart sem Kjarninn ræddi við, var hversu afdrátt­ar­laus dóm­ur­inn er. Ekki síst þar sem spjót­unum er beint að „þolendum glæpanna“, almenn­ingi. Orðrétt segir um þetta í dómnum: „Háttsemi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjónið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot [...]Kjarninn í hátt­semi ákærðu fólst í þeim brotum, sem III. kafli ákærunnar snýr að, en þau voru þaul­skipu­lögð, drýgð af ein­beittum ásetn­ingi og ein­dæma ófyr­ir­leitni og skeyt­ing­ar­leysi.“

Vilja ekki tjá sig


Gestur Jónsson hrl., sem var lög­maður Sigurðar framan af Al Thani mál­inu, þar til hann sagði sig frá því, og hefur einnig gætt hags­muna hans í öðrum málum þar sem hann er ákærður, vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um dóm­inn þegar Kjarninn náði af honum tali. Það sögðu aðrir lög­menn ákærðu í mál­inu sem Kjarninn náði tali af einnig, þar á meðal Hörður Felix Harð­ar­son hrl., lög­maður Hreiðars Más Sig­urðs­sonar.

serstakur saksoknari
ser­stakur saksokn­ari

Almennt vildu lög­menn, sem hafa komið að hrun-málum sem verj­endur, lítið segja um for­dæm­is­gildi Al Thani dóms­ins, en sögðu hann „afger­andi“, hvað ákæru­efnið varðar, og að dóm­ur­inn væri „ein­stakur“ á margan hátt. Þannig nefndu lög­menn sem Kjarninn ræddi við, að með Hæsta­rétt­ar­dómnum hefði hér­aðs­dómnum í mál­inu, frá því í des­em­ber 2013, þar sem ákærðu voru allir sak­felldir og hlutu dóma á bil­inu þriggja til fimm og hálfs árs fang­elsis, verið „nær alveg vikið til hliðar“ og nýr rök­stuðn­ingur færður fram á borðið. Máls­at­vika­lýs­ingin í Hæsta­rétt­ar­dómnum sé nákvæm upp úr gögnum máls­ins, sjálf­stætt unnin, að því er virð­ist af Markúsi Sig­ur­björns­syni, for­seta Hæsta­réttar. Í það minnsta töldu við­mæl­endur Kjarnans úr lög­manna­stétt sig þekkja kjarn­yrta fram­setn­ingu hans á dómnum og stíl­brigði í texta. Dómarar í mál­inu voru auk Markúsar, Helgi I. Jónsson, Þorgeir Örlygs­son, Árni Kol­beins­son og Gunn­laugur Claessen, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­arar. Enginn skil­aði sér­at­kvæði í mál­inu.

[caption id="attachment_17388" align="alignnone" width="735"] For­dæma­laus lög­brot áttu sér í starf­semi Kaup­þings skömmu fyrir hrun, í tengslum við við­skipti Al Thani með 5 pró­sent hlut í bank­anum, sam­kvæmt dómi Hæsta­réttar.[/caption]

Hvað með önnur mál?


Nú, þegar tæp­lega sex og hálft ár er liðið frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins, eru ekki nándar nærri öll kurl komin til grafar sem varða hrun bank­anna. Eins og Kjarninn greindi frá 16. jan­úar síð­ast­lið­inn, eru fjórtán svokölluð hrun­mál full rann­sökuð hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og bíða þess að ákvörðun verði tekin um hvort sak­sótt verði í þeim eða ekki. Til við­bótar eru 24 slík mál í rann­sókn, og mörg þeirra mjög langt komið. Búist er við ákvörðun um hvort ákært verði í flestum mál­anna á þessu ári. Búist er við að minnsta kosti þrjú til fjögur ár í við­bót muni líða þar til mál­unum lýkur í dóms­kerf­inu.

Fordæmalaus lögbrot áttu sér í starfsemi Kaupþings skömmu fyrir hrun, í tengslum við viðskipti Al Thani með 5 prósent hlut í bankanum, samkvæmt dómi Hæstaréttar.
For­dæma­laus lög­brot áttu sér í starf­semi Kaup­þings skömmu fyrir hrun, í tengslum við við­skipti Al Thani með 5 pró­sent hlut í bank­anum, sam­kvæmt dómi Hæsta­réttar.

Þrjú mál til við­bótar sem tengj­ast fyrr­ver­andi stjórn­endum og starfs­fólki Kaup­þings, sem líkt og Al Thani málið eru for­dæma­laus að umfangi, bíða þess að verða til lykta fyrir dóm­stólum. Þá eru einnig fleiri mál til rann­sóknar, meðal ann­ars í Lúx­em­borg, sem tengj­ast meintum brotum. Aðal­með­ferð í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli sem bein­ist að stjórn­endum Kaup­þings, meðal ann­ars Hreiðari Má Sig­urðs­syni og Magnúsi Guð­munds­syni, hefst 20. apríl næst­kom­andi og stendur til 20. maí, sam­kvæmt tímara­mma sem henni hefur verið gef­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár