Merkel vann kappræðurnar í Þýskalandi

Flestir töldu Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, hafa verið sig­ur­veg­ara einu kapp­ræð­anna í aðdrag­anda þing­kosn­inga í Þýska­landi.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, mætti Martin Schultz í kappræðum í gærkvöldi.
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, mætti Martin Schultz í kapp­ræðum í gær­kvöldi. Mynd: EPA

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands og leið­togi stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, Kristi­legra demókrata, var ótví­ræður sig­ur­veg­ari fyrstu og einu kapp­ræð­anna sem haldnar eru í aðdrag­anda þing­kosn­inga í lok mán­að­ar­ins.

Merkel atti kappi við Martin Schulz, leið­toga Sósíal demókrata, í sjón­varp­s­kapp­ræðum í gær­kvöldi. Kapp­ræð­urnar eru sagðar hafa verið besti mögu­leiki Schulz til þess að rétta kosn­inga­bar­áttu sína við en flokkur hans er nú með um 15 til 17 pró­sentu­stigum minni stuðn­ing en flokkur Merkel.

Jafnvel þó Merkel hafi ekki þótt hafa borið af í sam­an­burði við fyrri kapp­ræður sem hún hefur tekið þátt í, þá sögð­ust 49 pró­sent svar­enda í könnun sem gerð var eftir kapp­ræð­urnar að Merkel hefði verið trú­verð­ugri. Aðeins 29 pró­sent sögðu Schulz hafa haft betur. Frammi­staða Merkel var auk þess talin vera meira sann­fær­andi af 55 pró­sent svar­enda, miðað við 35 pró­sent svar­enda sem sögðu Schulz hafa staðið sig betur.

Kosn­ingar fara fram í Þýska­landi 24. sept­em­ber næst­kom­andi. Merkel sæk­ist þar eftir end­ur­kjöri og umboði til þess að gegna stöðu kansl­ara fjórða kjör­tíma­bilið í röð.

Þrátt fyrir að flokkur Merkel hafi for­ystu í skoð­ana­könn­unum segj­ast margir vera óvissir um hvaða flokk þeir ætli að kjósa. Kapp­ræð­urnar voru þess vegna taldar vera mik­il­vægur liður í að sann­færa óákveðna kjós­endur.

Kosn­inga­bar­áttan í Þýska­landi hefst nú fyrir alvöru, en strangar reglur gilda um kosn­inga­á­róður í aðdrag­anda kosn­inga þar í landi.

Ræddu mest um flóttamannavandann

Martin Schulz virt­ist leggja áherslu á að ræða mál­efni Tyrk­lands og flótta­manna enda eru það þau mál sem Merkel hefur helst verið gagn­rýndi fyrir í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Fjallað er um kapp­ræð­urnar á vef The Guardian.

Merkel seg­ist enn trúa því að ákvörðun sín um að opna landa­mæri Þýska­lands fyrir met­fjölda flótta­manna sem streymt hafa til Evrópu á und­an­förnum árum hafi verið rétt. Merkel þurfti að verj­ast ásök­unum Schulz um að hafa látið það hjá líða að hafa Evr­ópu­sam­bandið með í ráðum þegar borg­ar­hliðin voru opnuð fyrir flótta­mönnum sum­arið 2015.

Schulz náði einnig að virkja varnir Merkel þegar hann sak­aði kansl­ar­ann um að líta fram­hjá áhyggjum kjós­enda af hækk­andi kostn­aði við það eitt að búa í Þýska­landi. Þar hefur leigu­verð hækkað og laun lækkað, í það minnsta er ójöfn­uður að aukast. Schulz gagn­rýndi einnig stuðn­ing rík­is­stjórnar Merkel við þýska bíla­fram­leið­endur þrátt fyrir dís­ilsvindl fyr­ir­tækj­anna.

[adspot]

Náði ekki að skilja sig frá Merkel

Flokkur Martin Schulz, Sósíal demókratar, hefur verið í sam­steypu­stjórn með flokki Merkel, Kristi­legum demókrötum, und­an­farin fjögur ár. Það var þess vegna helsta verk­efni Schulz að skila stefnu­mál sín frá Merkel í kapp­ræð­unum. Honum tókst það illa og oft og tíðum var sem þau væru sam­mála um þau mál­efni sem til umræðu voru.

Schulz hefur 23 ára reynslu sem þing­maður í Evr­ópu­þing­inu. Hann var kjör­inn leið­togi Sósíal demókrata í jan­úar og þá mæld­ist stuðn­ingur við hann sem kansl­ara­efni mik­ill í skoð­ana­könn­unum. Síðan hefur hallað undan fæti og Merkel og flokkur hennar hefur sótt í sig veðrið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár