Áætlun um losun hafta hefur misst allan trúverðugleika

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, á enn eftir að svara mörgum spurningum um þá stöðu sem hann kom sér í. Mynd: Birgir Þór Harðasson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, á enn eftir að svara mörgum spurn­ingum um þá stöðu sem hann kom sér í. Mynd: Birgir Þór Harð­asson

Stærsta mál und­an­far­inna ára hefur verið end­ur­reisn íslenska efna­hags­kerf­is­ins. Loka­hnykkur þeirrar vinnu, sem staðið hefur nær linnu­lítið yfir frá banka­hruni, er fram­kvæmd áætl­unar um losun fjár­magns­hafta í kjöl­far þess að lausn fékkst varð­andi slitabú Lands­bank­ans, Kaup­þings og Glitnis. Sú lausn fól í sér að slita­búin myndu greiða stöð­ug­leika­fram­lag í stað 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatts og hefur víða hlotið lof. Seðla­bank­inn full­yrðir að lausnin ógni ekki greiðslu­jafn­vægi íslenska hag­kerf­is­ins og að staða íslenska þjóð­ar­bús­ins hafi ekki verið betri en í kjöl­far hennar síðan á Síld­ar­ár­unum. Mats­fyr­ir­tækin umdeildu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafa ausið lofi á nið­ur­stöð­una og nokkuð góð þverpóli­tísk sátt hefur verið um að veita henni braut­ar­gengi.

Þótt slita­búin séu byrjuð að greiða út til kröfu­hafa þá er enn eftir loka­hnykkur áætl­unar stjórn­valda. Það á eftir að halda aflandskrón­u­út­boð, koma í gegn ýmsum laga­breyt­ingum og auð­vitað losa um höft fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki á Íslandi svo þeir geti tekið þátt í alþjóða­væddum heimi án milli­göngu Seðla­banka Íslands.

Þessi loka­hnykkur er orðin að helstu rök­semd­ar­færslu nýrrar rík­is­stjórnar undir for­sæti Sigurðar Inga jóhanns­sonar um að hún verði að sitja fram á haust. Nauð­syn­legt sé að hún hnýti lausa enda fyrir losun haft­anna og hrindi mál­inu í fram­kvæmd áður en að ný stjórn verði kosin. Það sé nauð­syn­legt fyrir trú­verð­ug­leika áætl­un­ar­innar.

Vanda­málið við þessa rök­semd­ar­færslu er að áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um losun hafta hefur misst allan trú­verð­ug­leika. Jafnt inn­an­lands sem utan. Og sam­kvæmt fundi sem full­trúar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins héldu með InDefence-hópnum á mið­viku­dag þá munu höft á almenn­ing og fyr­ir­tæki alls ekk­ert verða losuð að neinu marki á næst­unni, að þeirra mati.

Stærsta ástæðan þess er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Hann var lyk­il­maður í mótun og fram­kvæmd áætl­unar um losun hafta og samn­ing­unum sem náð var við kröfu­hafa. Á und­an­förnum vikum hefur hins vegar verið opin­berað að félag í eigu eig­in­konu hans er kröfu­hafi. Það á kröfur upp á 523 millj­ónir króna vegna skulda­bréfa sem það átti á Lands­bank­ann, Kaupþing og Glitni. Félagið, sem heitir Wintris og er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, lýsti kröfum í bú bank­anna síðla árs 2009. Þegar það var gert átti Sig­mundur Davíð sjálfur helm­ings­hlut í félag­inu. For­sæt­is­ráð­herr­ann sat því beggja vegna borðs­ins. Félag eig­in­konu hans átti ríka fjár­hags­lega hags­muni undir í þeirri nið­ur­stöðu sem yrði í mál­inu. Og á end­anum er ljóst að það hagn­að­ist af því að stöð­ug­leika­fram­lags­leiðin var farin frekar en álagn­ing stöð­ug­leika­skatts. Hags­muna­á­rekstr­arnir eru eins aug­ljósir og þeir verða.

Kjarninn kall­aði eftir upp­lýs­ingum um erlendar eignir allra íslenskra ráð­herra 15. mars 2015. Ástæðan var meðal ann­ars sú að kanna hvort ein­hverjir þeirra gætu átt fjár­hags­lega hags­muni af því hvernig upp­gjör slita­bú­anna, sem þá blasti við að var framundan, yrði. Engin svör feng­ust við fyr­ir­spurn­inni né þegar hún var ítrekuð.

En svörin byrj­uðu að ber­ast 15. mars 2016, nákvæm­lega einu ári eftir að fyrsta fyr­ir­spurn Kjarnans var send, þegar Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs, setti fræga stöðu­upp­færslu á Facebook til að þagga niður í „Gróu á leiti“. Gróa reynd­ist vera sænski rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn Sven Bergman og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son hjá Reykja­vík Media sem höfðu tekið við­tal við for­sæt­is­ráð­herr­ann fjórum dögum áður og spurt hann út í eign hans á aflands­fé­lag­inu Wintris.Sig­mundur Davíð laug í til­svörum og rauk á end­anum út úr við­tal­inu. Stöðu­upp­færsla Önnu Sig­ur­laugar var því fyrsta skrefið í varn­ar­taktík Sig­mundar Davíðs vegna þess sem var yfir­vof­andi. Sunnu­dag­inn 3. apríl var hann svo afhjúp­aður og innan við 50 klukku­stundum síðar hafði Sig­mundur Davíð til­kynnt um afsögn sína.

Stórum spurningum ósvarað

Málinu er hins vegar fjarri lokið. Þrátt fyrir ítrek­aðar yfir­lýs­ingar Sig­mundar Davíðs um að skatt­skil Wintris hafi verið í lagi þá hafa ekki verið lögð fram nein skjöl sem sýna raun­veru­lega fram á það. Hann hefur auk þess neitað að svara því hvort að þau hjónin hafi skilað svoköll­uðu CFC-fram­tali með skatt­skýrslum sínum líkt og lög gera ráð fyrir.

Þá á enn eftir að rann­saka alla aðkomu Sig­mundar Davíðs að mótun og fram­kvæmd áætl­unar um losun hafta. Það á eftir að fara í gegnum allar ákvarð­anir sem hann kom að í ferl­inu og kanna hvort ein­hver þeirra hafi verið þess eðlis að Wintris hafi getað hagn­ast á þeim.

Það á eftir að svara spurn­ingum um hvernig for­sæt­is­ráð­herra­hjónin fyrr­ver­andi eign­uð­ust kröfu á slitabú föllnu bank­anna. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, hefur sagt við Kjarnann að það sé vegna kaupa á skulda­bréfum á bank­ana fyrir hrun. Engar dag­setn­ingar hafa hins vegar verið gefnar út í þeim efnum og ekki er hægt að stað­festa þessar full­yrð­ingar í árs­reikn­ingum Wintris. Þeir eru ekki til.

Sér­fræð­ingar sem Kjarninn hefur rætt við hafa líka sett mikið spurn­inga­merki við þessar skýr­ingar. Afar óvenju­legt, og nær óheyrt, sé að ein­stak­lingar hafi verið að taka svona stórar stöður í skulda­bréfum íslensku bank­anna á síð­ustu mán­uð­unum fyrir hrun. Auk þess hafi það fyrst og fremst verið stórir fag­fjár­festar, fjár­mála­fyr­ir­tæki, fjár­fest­inga- eða vog­un­ar­sjóðir og líf­eyr­is­sjóðir, sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boðum íslensku bank­anna.

Þá vekur það athygli að fjár­festir­inn Gunn­laugur Sig­munds­son, faðir Sig­mundar Davíðs, hag­aði fjár­fest­ingum sínum með allt öðrum hætti en þeim sem Wintris gerði fyrir hrun. Félagið Teton, sem var í eigu Gunn­laugs, Vil­hjálms Þor­steins­sonar og Arnar Karls­sonar, sér­hæfði sig meðal ann­ars í gnóttar- og skort­stöðum og hagn­að­ist um 1.150 millj­ónir króna á hru­nár­inu 2008, sam­kvæmt fréttum sem birt­ust í DV. Augljóst var að sá hagn­aður var ekki til­kom­inn vegna kaupa á þá verð­litlum skulda­bréfum á fallna banka.

Ein af helstu rökum fyrir nauðsyn nýju ríkisstjórnarinnar Mynd: Birgir Þór Harðarson
Ein af helstu rökum fyrir nauð­syn nýju rík­is­stjórn­ar­innar Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Með opin­berun á stöðu Sig­mundar Davíðs eru allir aðrir sem komu að mótun og fram­kvæmd áætl­unar hafta orðnir ótrú­verð­ugir einnig, að minnsta kosti þar til að þeir hafa sýnt fram á að þeir hafi ekki haft neina fjár­hags­lega hags­muni af mál­inu. Í frægum Kast­ljós­þætti um aflands­fé­laga­eign íslenskra ráða­manna var til að mynda greint frá því að sá sem sá um Wintris fyrir hjónin var Sigurður Atli Jónsson, sem er giftur systur Sig­mundar Davíðs.

Sigurður Atli er í dag for­stjóri Kviku, banka sem varð til við sam­ein­ingu MP banka og Straums í fyrra. Margir lyk­il­menn í fram­kvæmda­hópi um losun hafta, komu úr þeim banka. Þar má nefna Sigurð Hann­es­son, sem einnig er trún­að­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Benedikt Gíslason og Ásgeir Helga Reyk­fjörð Gylfason.

Upplýsa þarf, með fram­lagn­ingu gagna, hvort að MP banki, Straumur og síðar Kvika, og allir þessir ein­stak­lingar hafi haft ein­hverja fjá­hags­lega hags­muni af þeirri leið sem farið var við losun hafta. Sömu sögu er að segja að öllum sér­fræð­ingum Seðla­banka Íslands og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem að vinn­unni komu. Og stjórn­mála­menn­irnir sem fremstir hafa farið í mál­inu þurfa auð­vitað að gera þetta líka.

Þar ber helst að nefna Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann þarf að sýna fram á að hann per­sónu­lega og þeir ætt­ingjar hans sem eru umsvifa­miklir í við­skiptum hafi ekki beina fjár­hags­lega hags­muni af nið­ur­stöð­unni.

Þetta er óvenju­leg krafa, en það eru óvenju­legir tímar. Traust á stofn­anir sam­fé­lags­ins og stjórn­mála­menn þess er ekk­ert.

Þess utan er einn mik­il­væg­asti þátt­ur­inn í því að hægt verður að ráð­ast í síð­ustu skref hafta­los­un­ar­á­ætl­un­ar­innar að Ísland hafi trú­verð­ug­leika á alþjóða­vett­vangi. Að póli­tískur stöð­ug­leiki ríki. Sú staða er ekki uppi. Ný rík­is­stjórn nýtur stuðn­ings og trausts 26 pró­sent þjóð­ar­innar. Aldrei í lýð­veld­is­sög­unni hefur stjórn sest að völdum jafn veik og löskuð og sú sem tók við á fimmtu­dag. Íslend­ingar hafa lengi stært sig af því að helsta land­kynn­ing okkar sé fólgin í jákvæðu umtali um nátt­úru og frá­bæra lista­menn okkar. Nú er Sig­mundur Davíð það sem vekur helst athygli á land­inu, líkt og sést á graf­inu hér að neðan.

Ávöxt­un­ar­krafa rík­is­skulda­bréfa rauk til að mynda upp í byrjun viku og erlendir fjár­festar halda að sér höndum, sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins frá því á fimmtu­dag. Þar er einnig haft eftir Þor­steini Víglunds­syni, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, að póli­tískur óstöð­ug­leiki valdi efna­hags­líf­inu miklu tjóni. Grein­ing­ar­að­ilar sem Kjarninn hefur rætt við segja að krónan gæti fallið hratt ef skref í átt að losun hafta eru stigin við þessar aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár