Endurupptökunefnd hafnar beiðni Ólafs, Hreiðars Más og Sigurðar um upptöku Al Thani-málsins

End­ur­upp­töku­nefnd hefur hafnað beiðnum Ólafs Ólafs­sonar, Hreiðars Más Sig­urðs­sonar og Sigurðar Ein­ars­sonar um end­ur­upp­töku Al Thani máls­ins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Ólafi Ólafs­syni. Úrskurð­irnir hafa ekki verið gerðir opin­berir.

Sigurður Ein­ars­son er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings og Ólafur Ólafsson átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans. Þeir voru allir dæmdir sekir í Al-Thani mál­inu í Hæsta­rétti fyrir tæpu ári síðan. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, og Ólafur fjögur og hálft ár. Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, var líka dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í mál­inu.

Í til­kynn­ingu frá KOM almanna­tengslum, fyrir hönd Ólafs Ólafs­sonar, kemur fram að það séu Ólafi og fjöl­skyldu hans „veru­leg von­brigði“ að beiðn­inni hafi verið hafnað. Færð hefðu verið ítar­leg rök fyrir því að veru­legar líkur væru á að sönn­un­ar­gögn hefðu verið rangt metin.

Rök­stuðn­ingur end­ur­upp­töku­nefndar hafi verið ófull­nægj­andi að hans mati. Haft er eftir Þórólfi Jónssyni, lög­manni Ólafs, að það hefði átt að fall­ast á beiðn­ina við þær aðstæður sem uppi hafi verið. „Slíkur vafi er uppi um að sím­tal sem sak­fell­ing byggð­ist að stórum hluta á hafi verið rétt túlkað að nefndin hefði að mínu mati átt að fall­ast á að málið yrði tekið fyrir að nýju.“ Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður Hreiðars Más, segir í til­kynn­ing­unni að þetta valdi Hreiðari von­brigðum og álykt­anir um hlut­deild Ólafs hafi skipt sköpum í mál­inu.

Deilurnar um annan Óla

Helsta ástæðan fyrir beiðni Ólafs var sú að í dómi Hæsta­réttar voru sönn­un­ar­gögn í mál­inu rang­lega metin, að mati Ólafs. Að hans mati var rangt mat lagt á sím­tal tveggja manna, þar sem ann­ars þeirra vísar til sam­tals við mann sem kall­aður var Óli. Þetta sagði Ólafur að væri metið í dómum sem um hann væri að ræða en það væri í raun verið að tala um Ólaf Arin­björn Sig­urðs­son lög­mann. „Ekkert annað í mál­inu sýnir fram á meinta vit­neskju Ólafs um þessi atriði. Þessi ranga for­senda er horn­steinn­inn að sak­fell­ingu Ólafs í dómi Hæsta­réttar sem telur að á grunni sím­tals­ins sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Ólafur Ólafsson skyldi njóta arðs til jafns við Al Thani,“ sagði í yfir­lýs­ingu. 

Undir þetta tóku Hreiðar og Sigurður en þeirra end­ur­upp­töku­beiðni Hreiðars og Sigurðar bygg­ist ann­ars vegar á því að Árni Kol­beins­son, einn dóm­enda máls­ins í Hæsta­rétti, hafi verið van­hæfur og hins vegar á því að sönn­un­ar­gögn hafi verið metin rangt.

Árni Kol­beins­son var skip­aður vara­dóm­ari í mál­inu að því er fram kemur þar. Mál­flytj­endum hafi verið til­kynnt í des­em­ber í fyrra að eig­in­kona hans, Sigríður Thorlacius, hafi setið í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram í jan­úar 2009. Fjár­mála­eft­ir­litið var með Al Thani-málið til rann­sóknar á þeim tíma. Þá var óskað eftir því að mál­flytj­endur gerðu athuga­semdir við setu Árna ef þeir hefðu þær, en svo var ekki gert.Nú segja Hreiðar og Sigurður hins vegar að eftir að dómur var geng­inn í mal­inu hafi komið fram upp­lýs­ingar um að sonur Árna hefði starfað sem for­stöðu­maður lög­fræðis­viðs slita­stjórnar Kaup­þings frá 2008 og 2013. Þetta hafi verið nýjar upp­lýs­ingar sem ekki hafi verið upp­lýst um. Hags­munir slita­stjórnar Kaup­þings af sak­fell­ingu þeirra í mál­inu hafi verið aug­ljósir.

„Svo virð­ist sem sonur dóm­ar­ans hafi sinnt störfum fyrir slita­stjórn Kaup­þings þegar dóm­ar­inn tók sæti í mál­inu og dæmdi það. Líklegt er að son­ur­inn hafi tekið þátt í ákvörð­unum um að stefna Hreiðari Má og Ólafi til greiðslu skaða­bóta en sú ákvörðun hefur verið byggð á sömu atvikum og fjallað var um í hæsta­rétt­ar­mál­inu. Hafði hann, ásamt slita­stjórn Kaup­þings, því hags­muna að gæta af nið­ur­stöðu máls­ins. Kunna þeir hags­munir að vera fjár­hags­legir og umtals­verðir í ljósi ofan­greinds um mögu­legar kaupauka­greiðslur til hans,“ segir í end­ur­upp­töku­beiðn­inni. Þetta sé til þess fallið að vekja upp rétt­mætar efa­semdir um óhlut­drægni Árna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár