Mynd: Pexels

50 prósent aukning á notkun gagnamagns milli ára

Fjórða iðn­bylt­ingin stendur yfir og Íslend­ingar eru að umfaðma hana. Notkun þeirra á gagna­magni vex um tugi pró­senta á milli ára. Inter­netið er alls staðar.

Íslend­ingar not­uðu 10,9 millj­ónir gíga­bæta í far­síma­neti á fyrri helm­ingi árs­ins 2017. Það er meira gagna­magn en þeir not­uðu allt árið 2015 og rúm­lega 50 pró­sent aukn­ing frá því magni sem notað var fyrstu sex mán­uði árs­ins í fyrra. Frá miðju ári 2010 hefur notkun Íslend­inga á gagna­magni 46fald­ast, en þá var notk­unin 237 þús­und gíga­bæti. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem sýnir stöð­una á fjar­skipta­mark­aði um mitt ár 2016.

Við erum stödd í fjórðu iðn­bylt­ing­unni. Tækni­fram­farir eru að breyta heim­inum sem við búum í nán­ast dag frá degi. Hluti þeirrar bylt­ingar á sér stað vegna inter­nets­ins sem er nú all­staðar. Í stað þess að nálg­ast afþr­ey­ingu á borð við tón­list, tölvu­leiki, sjón­varps­þætti og kvik­myndir í gegnum keypta geisla­diska, línu­lega sjón­varps­dag­skrá eða með því að leigja spólur á mynd­bands­leigum þá nálg­ast nútíma­not­and­inn alla þessa afþr­ey­ingu í gegnum inter­netið. Sífellt fleiri hlutir í kringum okkur eru farnir að tengj­ast því. Og nú er staðan þannig að nær allir Íslend­ingar ganga um með litla tölvu, snjall­sím­ann, í vas­anum sem tengir þá við inter­netið hvar sem er.

Þessi breyt­ing hefur átt sér stað á tíu árum. Fyrsti iPhone Apple, vin­sæl­asti snjall­sími í heimi, kom út 29. júní 2007. Það ár seld­ust 1,4 millj­ónir slíkir símar. Árið 2010 seld­ust 40 millj­ónir. Síðustu þrjú árin hafa selst vel yfir 200 milljón iPhone símar á ári. Samsung selur enn fleiri síma. Sá fram­leið­andi seldi yfir 300 millj­ónir tækja á árinu 2016.

Íslend­ingar hafa umfaðmað þessar breyt­ingar. Nær allir lands­menn eru nettengdir og flestir eiga snjall­síma. Dæmi um þær breyt­ingar sem orðið hafa á neyslu­hegðun Íslend­inga vegna þessa er sú að átta af hverjum tíu Íslend­ingum versla nú á net­inu.

Þrátt fyrir að gagna­magns­notkun okkar hafi marg­fald­ast ár frá ári er við því búist að hún muni áfram vaxa um tugi pró­senta á ári um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð.

Gagnaflutningstímabilið tekið við

Far­síma­­tíma­bil fjar­­skipta­­geirans er því liðið undir lok og gagna­­flutn­inga­­tíma­bilið tekið við. Tíðn­i­heim­ildir fyrir 3G, ­fyrsta há­hraða­kyn­slóð far­síma­­nets­­kerf­ið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­­kerfi en far­síma­­kerfi og gerð­i ­gagna­­flutn­ing ­mög­u­­leg­­an.

4G-væð­ingin á Ísland­i hófst af alvöru á árinu 2014 þeg­ar ­fjöldi 4G-korta í símum fimm­fald­að­ist. Um mitt það ár voru 17,8 pró­sent allra virkra síma­korta 4G-kort. Í lok júní 2016 var helm­ingur þeirra 4G-kort. Um mitt ár 2017 var 62,6 pró­sent allra virkra sím­korta 4G.

Og í októ­ber síð­ast­liðnum var næsta skref stigið. Þá setti Nova í loftið fyrstu 4,5G sendana hér­lendis. Fyr­ir­tækið varð þar með á meðal fyrstu far­síma­fyr­ir­tækja í Evrópu til að hefja slíka þjón­ustu en áætlað er að net­hraði í far­símum við­skipta­vina Nova muni um það bil þre­fald­ast við þetta.

Línan milli fjarskipta og fjölmiðlunar horfin

Þessi umbylt­ing hefur leitt til þess að við­skipta­módel fjar­skipta­fyr­ir­tækja hefur gjör­breyst á örfáum árum. Síminn inn­lim­aði Skjáinn inn í sína starf­semi og hóf mikla sókn á sjón­varps- og efn­isveitu mark­aði. Vodafone keypti nýverið 365 miðla í við­skiptum sem metin eru á um tíu millj­arða króna. Inni­falið í þeim við­skiptum voru meðal ann­ars allar sjón­varps­stöðvar 365. Línan milli fjar­skipta og fjöl­miðl­unar er því ekki bara orðin óskýr heldur að mörgu leyti horfin.

Nova hefur verið með yfir­burða­stöðu þegar kemur að notkun gagna­magns á far­síma­neti á und­an­förnum árum. Þótt hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins fari lækk­andi er það enn með 63,8 pró­sent hennar, sem þýðir að tæp­lega ⅔ hlutar allrar notk­unar á far­síma­neti fer fram hjá Nova. Hlut­deild Símans er 21,8 pró­sent og Vodafone/365 voru sam­tals með 12,8 pró­sent hlut­deild á fyrri hluta þessa árs. Aðrir voru með minna.

Notkun á ganga­magni í far­síma­neti segir þó ekki alla sög­una um gagna­magns­notkun Íslend­inga í gegnum far­síma eða önnur tæki sem geta tengst slíku neti. Uppi­staðan af gagna­magns­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­neti heima hjá sér, á vinnu­stöðum og víðar frekar en að not­ast við 3G, 4G og nú 4,5G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u.

Tveir með nánast allan internettengingamarkaðinn

Alls eru 47,1 pró­sent allra inter­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­um. Vodafone er ­með 26,6 pró­sent og eru þessir tveir aðilar með tölu­verða yfir­burði á mark­aðn­um. Þannig hefur staðan hald­ist und­an­farin ár þótt að mark­að­hlut­deild beggja hafi minnkað milli ára. Þegar mark­aðs­hlut­deild 365 er bætt við Vodafone þá er sam­einað fyr­ir­tæki með 38 pró­sent af mark­aðnum.

Hringdu hefur hins vegar bætt vel við sig á und­an­förnum árum. Á síð­ustu tveimur árum hefur ­mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins farið úr 4,9 pró­sent í 7,4 pró­sent. Við­skipta­vinum Hringdu hefur fjölgað um 5.386 frá miðju ári 2014.

Nova seldi lengi vel ekki inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi. Á því varð breyt­ing í fyrra þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u. Nova er í flokknum „Annað“ í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofnun ásamt öðrum minni þátt­tak­endum þegar kemur að inter­netteng­inum en hlut­deild þess flokks fer úr 4,9 pró­sent í 7,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár