„Það skipti máli fyrir stjórnmálamenn að ná árangri – ekki bara tala“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist vera mjög ánægð með árangur VG á þessu kjör­tíma­bili og muni hún leggja á það áherslu að flokk­ur­inn leiði áfram rík­is­stjórn – og haldi áfram að ná árangri fyrir íslenskt sam­fé­lag.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður VG
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG Mynd: Bára Huld Beck

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna ræddu söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í vik­unni og hver sjón­ar­mið Vinstri grænna væru gagn­vart banka­sölu fyrir næstu kosn­ingar.

Hann spurði hana meðal ann­ars hvort Vinstri græn, ef þau kæmust í næstu rík­is­stjórn, myndu standa að því að Íslands­banki yrði seldur að fullu. Katrín sagði að Vinstri græn í fyrsta lagi hefðu aldrei haft þá stefnu að ríkið ætti að eiga allt banka­kerfið og í öðru lagi að Lands­bank­inn yrði ekki seldur.

Verið að einkavæða Íslandsbanka í óþökk þjóðarinnar

„Það er mikil eft­ir­spurn eftir umbylt­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Slík umbylt­ing mætti til dæmis fel­ast í því að færa hluta banka­starf­semi yfir á sam­fé­lags­banka­stig þar sem bankar gætu jafn­framt starfað með græn sjón­ar­mið og lofts­lags­mark­mið að leið­ar­ljósi umfram hina stríp­uðu arð­sem­is­kröfu,“ sagði þing­mað­ur­inn.

[adspot]

Benti hann á að þetta væri eitt­hvað sem Katrín hefði sjálf lengi talað fyrir. „Ég ótt­ast að þessa dag­ana séum við að missa ákveðið tæki­færi til slíkra breyt­inga vegna þess að verið er að einka­væða Íslands­banka í óþökk þjóð­ar­innar. Meðan ríkið átti tvo banka hefði verið svo borð­leggj­andi að beita sér fyrir betra banka­kerfi í gegnum eign­ar­hlut rík­is­ins. Hæst­virtur ráð­herra hefur látið hafa eftir sér að ákvarð­anir um frek­ari banka­sölu bíði næstu rík­is­stjórnar.“

Spurði hann því Katrínu hvort flokk­ur­inn væri ein­huga í þeim málum. „Munu Vinstri græn, ef þau kom­ast í næstu rík­is­stjórn, standa að því að Íslands­banki verði seldur að fullu?“

Bætti hann því við að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði sagst vilja ganga lengra og selja stóran hlut í Lands­bank­anum á næsta kjör­tíma­bili. „Þegar á hólm­inn er komið og Vinstri græn fara aftur í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum, hver fær að ráða? Geta kjós­endur treyst því að Vinstri græn muni ekki standa að rík­is­stjórn sem stefni á að einka­væða Lands­bank­ann? Eða verður það kannski bara eins og þegar við treystum því að VG myndi ekki stökkva í stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir kosn­ing­arnar 2017?“ spurði hann.

Aldrei haft þá stefnu að ríkið eigi að eiga allt bankakerfið

Katrín svar­aði og benti á að Andrés Ingi hefði sjálfur verið á sama lands­fundi og hún árið 2017 sem sam­þykkti stefnu VG en hann var þá enn í flokknum.

„Þannig að hátt­virtur þing­maður veit það alveg jafn vel og ég hver stefna VG er í þessum málum og við hana hefur verið staðið á þessu kjör­tíma­bili. Stefna VG er að ríkið eigi Lands­bank­ann. Sú stefna hefur ekki breyst. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að eiga fleiri banka. Íslands­banki kom upp í fang rík­is­ins, eins og hátt­virtur þing­maður veit líka ósköp vel, með til­teknum hætti í tengslum við stöð­ug­leika­samn­inga. Og VG hefur aldrei haft þá stefnu að ríkið eigi að eiga allt banka­kerfið. Það veit hátt­virtur þing­maður líka jafn vel og ég af því að hann var á sama lands­fundi þar sem síð­asta ályktun var sam­þykkt um þetta, um að ríkið skyldi eiga Lands­bank­ann. Við þá stefnu mun VG standa, eins og það hefur staðið við hana á þessu kjör­tíma­bili,“ sagði hún.

Sagðist Katrín sem for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs hafa sagt að flokk­ur­inn myndi vinna með þeim sem væru reiðu­búnir að vinna með honum að málum sem væru til fram­fara fyrir íslenskt sam­fé­lag.

„Þar for­gangs­röð­uðum við heil­brigð­is­málum og lofts­lags­málum og í þeim mála­flokkum hefur náðst ótví­ræður árangur á þessu kjör­tíma­bili, enda er ég þeirrar skoð­unar að það skipti máli fyrir stjórn­mála­menn að ná árangri, ekki bara tala. Þannig að ég er mjög ánægð með árangur VG á þessu kjör­tíma­bili og ég mun leggja á það áherslu að VG leiði áfram rík­is­stjórn og haldi áfram að ná árangri fyrir íslenskt sam­fé­lag.“

Spurði hvort ráðherrann teldi þjóðina illa upplýsta

Andrés Ingi steig aftur í pontu og sagði að stefna Vinstri grænna kynni að vera sú að ekki ætti að selja Lands­bank­ann. Sagði hann í því sam­hengi að hann hefði átt orða­stað við Lilju Rafneyju Magn­ús­dóttur þing­mann VG við lok vor­þings þar sem hún „þrá­stag­að­ist á því að stefna Vinstri grænna væri að banna olíu­leit en gat ekki treyst sér til að leggja fram nefnd­ar­á­lit þess efnis“.

Því spurði hann Katrínu hvort hún myndi standa gegn hug­myndum Bjarna um að einka­væða Lands­bank­ann ef Vinstri græn kæmust í rík­is­stjórn eftir kosn­ingar. „Í ljósi þess að kann­anir síð­ustu miss­erin hafa allar sýnt fram á and­stöðu við meiri hluta þjóð­ar­innar við banka­sölu, telur ráð­herr­ann að and­staða þjóð­ar­innar sé ein­fald­lega vegna þess að hún sé illa upp­lýst?“ spurði hann.

Sérstök áhersla lögð á dreift eignarhald og gagnsæi

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði í síð­ara sinn og sagði að svör hennar í fyrra svari hefðu verið mjög skýr. „Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð hefur staðið við sína stefnu á þessu kjör­tíma­bili og meðal ann­ars þess vegna var stjórn­ar­sátt­máli sam­þykktur með yfir­gnæf­andi meiri hluta í flokks­ráði Vinstri grænna, þó að hátt­virtur þing­maður hafi ekki sam­þykkt hann og átt mjög erfitt með að styðja þessa rík­is­stjórn, enda er hann far­inn. En við í VG höfum staðið við okkar stefnu og höldum því bara áfram.“

Benti hún á að sala Íslands­banka, sem boðuð var í stjórn­ar­sátt­mála, hefði verið rædd á Alþingi. „Það var óskað eftir áliti efna­hags- og við­skipta­nefndar um málið og fyrir liggja álits­gerðir hennar um hvaða sjón­ar­mið eigi að hafa að leið­ar­ljósi við þessa sölu. Þar var sér­stök áhersla lögð á dreift eign­ar­hald og gagn­sæi og að farin yrði sú leið sem farin er. Sömu­leiðis var í raun og veru bæði stuðlað að dreifðu eign­ar­haldi og fjöl­breyti­leika og það var líka lagt upp úr því að þeir sem byðu lægri fjár­hæðir yrðu ekki skertir.“

Katrín sagði að lokum að salan hefði verið fram­kvæmd í sam­ræmi við vilja meiri­hluta Alþingis – og upp úr því hefði verið lagt að fylgja þeirri leið­bein­ingu og tryggja dreifða eign­ar­að­ild, gagn­sæi og skýr og vönduð vinnu­brögð. „Ég von­ast til þess að það verði til að auka traust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár