Illugi segir ekki hægt að taka mark á Össuri

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að Össur Skarp­héð­ins­son geti ekki ætl­ast til þess að orð hans hafi vægi þegar hann ræði um að Illugi þurfi að segja af sér ef hann nær ekki frum­varpi sínu um RÚV út úr rík­is­stjórn.

„Leitun er af [sic] ráð­herra í stjórn­mála­sögu lands­ins sem hefur látið yfir sig ganga jafn mikið stefnu­brot eins og hann gerði sem utan­rík­is­ráð­herra,“ segir Illugi um ráð­herra­tíð Össurar. Eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag sagði Össur á Alþingi að hann teldi Illuga ekki sætt í rík­is­stjórn lengur ef hann nær ekki fram frum­varpi sínu um RÚV. „Þegar ráð­herra nær ekki fram stefnu varð­andi lyk­il­stofnun þá er honum tæp­ast sætt lengur í rík­is­stjórn. Þá er hann orð­inn það sem stundum heitir á ensku máli, með leyfi for­seta, lame duck,“ sagði Össur og tók dæmi af því þegar hann hafi farið á fund Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og boðað að hann myndi segja af sér ef hann næði ekki fram stefnu sinni um fram­lög til þró­un­ar­að­stoðar.

Illugi gerir þetta að umtals­efni í færslu á Facebook-síðu sinni. Hann rifjar upp að helsta stefnu­mál Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­ustu rík­is­stjórn hafi verið aðild Íslands að ESB. Össur hafi verið utan­rík­is­ráð­herra þegar sótt var um en skýrt hafi komið fram og sé óum­deilt að ráð­herrar VG hafi þvælst fyrir mál­inu „og kvað svo rammt að mót­þró­anum að utan­rík­is­ráð­herr­ann þurfti að kyngja því að setja aðild­ar­um­sókn­ina á ís þegar draga tók að kosn­ingum.“ VG hafi því stöðvað þetta mik­il­væg­asta mál Sam­fylk­ing­ar­innar með stæl.

„Ein­hverjir hefðu nú sagt að utan­rík­is­ráð­herra myndi aldrei sitja undir slíku, hann hlyti sam­visku sinnar vegna að hóta afsögn og stilla þannig sam­starfs­flokki sínum upp við vegg. Um var jú að ræða sjálfan til­vist­ar­grund­völl Sam­fylk­ing­ar­innar, algert prinsip­mál fyrir flokk­inn hans. En nei, hann hót­aði afsögn út af deilu um fjár­magn til þró­un­ar­mála.“

Af þessum sökum geti Össur ekki ætl­ast til þess að orð hans hafi vægi í þessu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár