Vegabréfaskoðun Svía eins og vera sendur á byrjunarreit í Lúdó

Þann 4. jan­úar næst­kom­andi verður tekin upp vega­bréfa­skoðun við landa­mæri Sví­þjóðar. Sænsk stjórn­völd segja þetta nauð­syn­legt til að stemma stigu við straumi flótta­fólks til lands­ins. Búast má við að lestar­ferð frá Kaup­manna­höfn til Malmö taki þá eina og hálfa klukku­stund í stað hálf­tíma. Þúsundir Dana og Svía fara dag­lega fram og til baka um Eyr­ar­sunds­brúna vegna vinnu. „Ára­tuga­skref aftur á bak, eins og vera sendur á byrj­un­ar­reit í Lúdó“ segir danskur vinnu­mark­aðs­sér­fræð­ingur.

Sænsk stjórn­völd vita ekki sitt rjúk­andi ráð og standa nán­ast ráð­þrota gagn­vart straumi flótta­fólks til lands­ins. Tala þeirra flótta­manna sem komið hafa til Sví­þjóðar á þessu ári, og sótt um hæli, nálg­ast nú tvö hund­ruð þús­und. Fyrir nokkrum vikum sagði sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann Stefan Löfvén eitt­hvað á þá leið að til Sví­þjóðar væru allir vel­komnir, líka fólk í neyð. Líklega hefur hann þá ekki rennt grun í að svo margir sem raun ber vitni myndu sjá Svíþjóð fyrir sér sem hið fyr­ir­heitna land. Fyrir skömmu kom for­sæt­is­ráð­herr­ann fram í sjón­varpi, beygður nokkuð, og sagði að flótta­manna­straum­ur­inn væri miklu meiri en nokkurn hefði getað grunað og frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar hefði Evrópa ekki staðið frammi fyrir öðrum eins vanda. Sér þætti afar leitt að til­kynna að Svíar réðu ein­fald­lega ekki við að taka á móti öllum þessum fjölda. Hann sagði einnig að Svíar væru ekki að skor­ast undan ábyrgð en aðrar þjóðir yrðu að leggja sitt af mörkum. Þótt sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann væri kurt­eis í tali duld­ist engum hvert hann beindi orðum sínum. Aðrir sænskir ráð­herrar sögðu umbúða­laust að Danir reyndu með öllum ráðum að vera „stikk­frí“ og ýta vand­anum frá sér, yfir Eyr­ar­sund.

Létu ekki sitja við orðin tóm

Svíar létu ekki sitja við orðin tóm. Brátt var fjöl­mennt lið lög­reglu við störf á Hyllie stöð­inni, fyrsta við­komu­stað lest­anna sem koma frá Kastrup, síð­asta við­komu­stað Dan­merk­ur­megin. Hlutverk lög­reglu­þjón­anna var að skoða per­sónu­skil­ríki far­þeg­anna en stór hluti flótta­fólks­ins (um 80%) hefur enga slíka papp­íra eða neitar að fram­vísa þeim. Algeng svör þegar spurt var um áfanga­stað voru að það væri Noregur eða Finnland en margir ósk­uðu líka eftir hæli í Svíþjóð.

Lítið hefur dregið úr straumnum

Margir bjugg­ust við að þegar vet­ur­inn legð­ist að myndi draga úr straumnum. Það hefur ekki gerst. Fólk streymir áfram til Þýska­lands, þeir sem ekki hyggj­ast dvelja þar halda til Dan­merkur og stærstur hluti þess hóps áfram til Sví­þjóðar.

Vegabréfaskoðun frá og með 4. janúar 2016

Fyrir nokkrum dögum til­kynnti ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Svíþjóð, Morgan Johans­son, að alls­herjar vega­bréfa­skoðun yrði tekin upp við sænsku landa­mærin frá og með 21. des­em­ber. Varla hafði ráð­herr­ann sleppt orð­inu þegar hann til­kynnti um nýja dag­setn­ingu, 4. jan­úar 2016. Frumvarp þessa efnis var jafn­framt lagt fram í sænska þing­inu. Ráð­herr­ann greindi jafn­framt frá því að fyr­ir­tækjum sem flytja fólk til Sví­þjóðar verði gert skylt að ganga úr skugga um að allir far­þegar hafi full­gild per­sónu­skil­ríki áður en komið verður að sænsku landa­mær­unum. Þannig verður starfs­fólk dönsku járn­braut­anna, DSB, að skoða öll skil­ríki á járn­braut­ar­stöð­inni á Kastrup flug­velli og þeim sem ekki geta sannað á sér deili verður snúið við. Sama gildir um ferjur og rútur, þar verða skil­ríki skoðuð áður en farið er yfir landa­mærin. Sænsk stjórn­völd hafa líka íhugað þann mögu­leika að loka Eyr­ar­sunds­brúnni fyrir umferð, þegar nauð­syn krefur, eins og kom­ist var að orði. Sá mögu­leiki verður þó að telj­ast fremur ólík­legur.

Hvað þýðir þetta fyrir Danmörku?

Þessari spurn­ingu beindi danskur blaða­maður til Inger Støjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Danmörku á frétta­manna­fundi í ráðu­neyt­inu. „Það vitum við ekki“ svar­aði ráð­herr­ann „en teljum lík­legt að þetta auki þrýst­ing­inn hér í Danmörku.“ Inger Støjberg upp­lýsti jafn­framt að hún hefði rætt við þýska inn­an­rík­is­ráð­herr­ann um fyr­ir­ætl­anir Svía og hvað það gæti haft í för með sér fyrir Dani og Þjóð­verja.

Danir bregða kannski á sama ráð og Svíar

Á áður­nefndum frétta­manna­fundi sagði Inger Støjberg að vel kynni svo að fara að Danir yrðu að fara sömu leið og Svíar, að taka upp vega­bréfa- og skil­ríkja­skoðun við dönsku landa­mærin, Þýska­lands­megin. Til þess þyrfti að sjálf­sögðu sam­þykki þýskra stjórn­valda. Dönsku járn­braut­irnar hafa bent á að slík skoðun útheimti margt fólk og jafn­vel breyt­ingar á lest­ar­stöðv­unum. Líka hefur vaknað sú spurn­ing hvort starfs­menn dönsku járn­braut­anna hafi heim­ild til að krefja fólk um skil­ríki og enn­fremur hvort vísa eigi skil­ríkja­lausum börnum úr lest­inni og skilja þau eftir á braut­ar­pall­inum. Danskir blaða­menn vöktu athygli ráð­herr­ans á því að hér í Danmörku er stræt­is­vagna­bíl­stjórum, að við­lagðri refs­ingu, bannað að skilja börn eftir á ólýstum sveita­vegum.

Athygli Dana og Svía beinist mest að samgöngum yfir Eyrarsund

Hér í Danmörku bein­ist athygli vegna landamæra­eft­ir­lits Svía fyrst og fremst að Eyr­ar­sunds­brúnni og sam­göngum um hana. Það er skilj­an­legt í ljósi þess að þús­undir Svía og Dana fara dag­lega til vinnu yfir sundið, Svíarnir sem sækja til Dan­merkur mun fleiri. Fyrir þetta fólk skiptir ferða­tím­inn miklu máli, og tími er pen­ingar. Allt frá því að Eyr­ar­sunds­brúin var tekin í notkun fyrir fimmtán árum hefur verið unnið að því að stytta ferða­tím­ann yfir sundið. Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar sagð­ist, í blaða­við­tali, skilja áhyggjur Svía en jafn­framt von­ast til að aðeins yrði um tíma­bundið ástand að ræða. Carsten Wedel, rúm­lega sex­tugur Svíi, sem býr í Malmö en vinnur í Kaup­manna­höfn hefur farið dag­lega yfir sundið til vinnu í rúm tutt­ugu ár. „Eyr­ar­sunds­brúin breytti öllu fyrir mig“ sagði hann „klukku­tími til við­bótar á leið heim úr vinnu minnir óneit­an­lega á liðna tíð og flug­bát­ana sem sigldu yfir sundið. Ég verð kannski bara að kaupa mér bíl í fyrsta skipti á ævinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár