Útisvæði franskra kaffihúsa kólna á næsta ári

Ein af nýj­ustu aðgerðum Frakka í lofts­lags­málum er að banna upp­hitun úti­svæða á kaffi­húsum og börum. Ekki má heldur setja upp nýja kola- eða olíu­ofna til hús­hit­unar.

Gashitarar heyra brátt sögunni til á útisvæðum franskra kaffihúsa.
Gas­hitarar heyra brátt sög­unni til á úti­svæðum franskra kaffi­húsa. Mynd: Pexels

Stjórn­völd í Frakk­landi hafa til­kynnt um nýjar aðgerðir í umhverf­is­málum en meðal ann­ars á að banna hituð úti­svæði við kaffi­hús og bari. Í frétt BBC er haft eftir Barböru Pompili, umhverf­is­ráð­herra Frakka, að henni finn­ist upp­hituð úti­svæði skjóta skökku við.

Bannið tekur ekki gildi fyrr en eftir að næsti vetur er lið­inn, enda eiga fyr­ir­tæki í veit­inga­rekstri í vök að verj­ast í Frakk­landi, líkt og víða ann­ars staðar, vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þar að auki verður skylt að halda dyrum loft­kældra bygg­inga sem opnar eru almenn­ingi lok­uðum til þess að spara orku.

Þrjú af hverjum fjórum kaffihúsum með hitað útisvæði

Barbara segir það vera rangt af fyr­ir­tækjum að loft­kæla stræti borg­anna á sumrin með því að halda dyrum sínum opnum í þeim eina til­gangi að auð­velda við­skipta­vinum að ganga inn um þær. Það sama megi segja um kaffi­hús sem halda úti­svæðum sínum upp­hit­uðum á vet­urna til þess að ylja við­skipta­vinum á meðan þeir sötra á heitu kaffi sínu, að mati Barböru.

Samkvæmt þar­lendum versl­un­ar­sam­tökum eru þrjú af hverjum fjórum kaffi­húsum í París með upp­hitað úti­svæði. Nú þegar hafa upp­hituð úti­svæði heyrt sög­unni til í nokkrum frönskum borgum en Anne Hidalgo, borg­ar­stjóri Parísar, vill bíða með bannið, því það gæti haft slæm áhrif á rekstur kaffi­hús­anna.

Banna kola- og olíuofna til húshitunar

Barbara Pompili var skipuð umhverf­is­ráð­herra fyrr í mán­uð­inum af for­sæt­is­ráð­herr­anum Jean Castex, sem einnig tók við emb­ætti fyrr í þessum mán­uði. Jean hefur heitið 20 millj­ónum evra, eða rúmum þremur millj­örðum króna, í lofts­lagstengdar fjár­fest­ingar. Þær fjár­fest­ingar eru hluti af umfangs­meiri efna­hags­að­gerðum sem ætlað er að örva hag­kerfi Frakka.

Aðgerðir umhverf­is­ráð­herr­ans eru fengnar frá eins konar þjóð­fundi um umhverf­is­mál en hann sátu 150 ein­stak­lingar sem valdir voru að handa­hófi. Í þeim má einnig finna áform um þjóð­garð. Þá eru franskir hús­eig­endur hvattir til að huga að ein­angrun í húsum sínum en upp­setn­ing nýrra kola- eða olíu­ofna til kynd­ingar verður bönnuð í borgum og tak­mörkuð í dreif­býli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár