Vilja heimila hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum

Búið er að leggja fram drög að frum­varpi til laga­breyt­inga sem heim­ilar hjúkr­un­ar­fræð­ingum og ljós­mæðrum að ávísa horm­óna­tengdum getn­að­ar­vörnum. Mark­miðið er m.a. að bæta aðgengi kvenna að kyn­heil­brigð­is­þjón­ustu.

Óskað er eftir athuga­semdum við drög að frum­varpi til laga­breyt­inga sem heim­ilar hjúkr­un­ar­fræð­ingum og ljós­mæðrum að ávísa horm­óna­tengdum getn­að­ar­vörnum. Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Mark­miðið er að bæta aðgengi kvenna að kyn­heil­brigð­is­þjón­ustu, efla og styrkja þjón­ust­una og að nýta betur fag­þekk­ingu hjúkr­un­ar­fræð­inga og ljós­mæðra innan heil­brigð­is­þjón­ust­unnar á þessu sviði, sam­kvæmt frétt­inni.

Frum­varpið hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og er umsagn­ar­frestur til 24. sept­em­ber næst­kom­andi.

Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að heim­ild hjúkr­un­ar­fræð­inga og ljós­mæðra til að ávísa horm­óna­tengdum getn­að­ar­vörnum verði bundin því skil­yrði að við­kom­andi starfi á heil­brigð­is­stofnun þar sem heilsu­gæsla, kven­lækn­inga- eða fæð­ing­ar­þjón­usta er veitt.

Land­læknir mun veita hjúkr­un­ar­fræð­ingum og ljós­mæðrum leyfi til lyfja­á­vís­unar að upp­fylltum nánar til­greindum skil­yrðum sem fram koma í reglu­gerð sem ráð­herra setur. Meðal þess­ara skil­yrða verður að við­kom­andi leyf­is­um­sækj­andi hafi sótt og stað­ist fræði­legt og klínískt nám­skeið um lyfja­á­vís­anir.

Ákvörðun um áherslur, inni­hald, fyr­ir­komu­lag og fram­kvæmd nám­skeiðs­ins verður hjá Embætti land­læknis. Embætti land­læknis mun síðan hafa eft­ir­lit með lyfja­á­vís­unum hjúkr­un­ar­fræð­inga og ljós­mæðra sem heim­ild hafa fengið til að ávísa horm­óna­tengdum getn­að­ar­vörnum, sams konar eft­ir­lit og emb­ættið hefur með lyfja­á­vís­unum lækna og tann­lækna í sam­ræmi við ákvæði laga um land­lækni og lýð­heilsu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár