Fimm tæknifyrirtæki í einstakri yfirburðastöðu sem efi er um að sé sjálfbær

Apple, Microsoft, Alphabet (móð­ur­fé­lag Google), Amazon og Facebook eru verð­mæt­ustu fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna. Það er eins­dæmi að fimm fyr­ir­tæki úr tengdum geira séu í fimm efstu sæt­unum á slíkum lista. Í raun eru þau mark­aðs­svæði, ekki eig­in­leg fyr­ir­tæki.

Fimm fyr­ir­tæki eru í sér­flokki þegar kemur að mark­aðsvirði þeirra Banda­ríkj­unum. Þau eru Apple, Microsoft, Alphabet (móð­ur­fé­lag Google), Amazon og Facebook. Alls er sam­an­lagt virði þess­ara fimm tækni­fyr­ir­tækja um 18 pró­sent af virði allra þeirra félaga sem mynda S&P 500 vísi­töl­una banda­rísku, sem mælir gang hluta­bréfa í 500 stórum fyr­ir­tækjum sem skráð eru á hluta­bréfa­markað í Banda­ríkj­unum.

Það eru yfir­burðir sem hafa ekki áður sést, sam­kvæmt grein­ingu Morgan Stanley-bank­ans. Bank of America hefur varað við því að sam­þjöppun á mark­aðnum sé of mikil og að þessi staða „stóru fimm“ tækni­fyr­ir­tækj­anna sýni það glögg­lega. Fyr­ir­sjá­an­legt sé að und­ir­liggj­andi rekstur standi ekki undir síhækk­andi virði. Þessi yfir­burða­staða svona hóps fyr­ir­tækja úr tengdum geira er eins­dæmi í sögu mark­aða og margir sér­fræð­ingar telja að hún sé ekki sjálf­bær.

Samt halda hluta­bréfin bara áfram að hækka.

173 þúsund milljarðar króna

Síðasta ár var mikið vaxt­arár á banda­rískum hluta­bréfa­mörk­uðum. Af þeim 500 félögum sem mynda S&P 500 vísi­töl­una voru ein­ungis 57 fyr­ir­tæki sem féllu í verði á árinu. Hin 443 hækk­uðu. Alls hækk­aði vísi­talan um 29 pró­sent á árinu.

Í lok dags 10. jan­úar síð­ast­lið­inn var Apple verð­mætasta fyr­ir­tækið sem myndar hana. Mark­aðsvirði þess var þá um 1,4 trilljónir Banda­ríkja­dala (ein banda­rísk trilljón eru þús­und millj­arðar), eða um 173 þús­und millj­arðar íslenskra króna.

Microsoft er líka metið yfir trilljón dali, Alphabet (Google) skreið yfir það mark í vik­unni og Amazon hefur áður náð því marki en er nú rétt undir því. Facebook rekur lest­ina af þessum fimm og er metið á „aðeins“ um 77 þús­und millj­arða íslenskra króna.

[adspot]Næstu fimm fyr­ir­tæki á virð­is­list­anum eru Berks­hire Hathaway, fjár­fest­inga­sjóður Warrens Buffet, Jonhson&Jonhson og Proctor&Gamble (tvö fyr­ir­tæki í blönd­uðum iðn­aði og þjón­ustu), og tvö fjár­mála­fyr­ir­tæki, JP Morgan Chase bank­inn og greiðslu­miðl­un­ar­ris­inn Visa.

Mikil breyting frá aldarmótum

Þessi þróun, þar sem tækni­fyr­ir­tækin hafa vaxið umfram alla aðra geira, hefur gest nokkuð hratt þótt tvö fyr­ir­tækj­anna hafa verið stofnuð á átt­unda ára­tugnum, þ.e. Apple og Microsoft, og tvö á tíunda ára­tugnum, Amazon og Google. Það yngsta, Facebook, hóf svo starf­semi árið 2004.

Í net­bólunni í kringum síð­ustu ald­ar­mót náði Microsoft reyndar að verða verð­mætasta fyr­ir­tæki heims og ýmis önnur tækni­fyr­ir­tæki, eins og til dæmis Nokia, Intel og Cisco, komust inn á topp tíu yfir verð­mæt­ustu fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna. Með þeim í þessum hópi voru fyr­ir­tæki í dreifðum iðn­aði og þjóon­ustu, eins og General Electric, og nokkur olíu­fyr­ir­tæki.

Þá var smá­söluris­inn Walmart, sem er það fyr­ir­tæki í heim­inum sem hefur mesta veltu enn þann dag í dag, líka inn á topp tíu yfir verð­mæt­ustu fyr­ir­tækin á mark­aði.

Eftir að net­bólan sprakk með látum varð topp tíu list­inn hins vegar bland­aðri. Fjár­mála­fyr­ir­tæki á borð við banka og trygg­inga­fé­lög komu sterk inn á þessum árum, enda fjár­mála­lega góð­ærið, sem leiddi af sé alþjóð­legt efna­hags­legt fár­viðri frá haustinu 2008 og næstu árin á eftir, þá í sínum mesta blóma.

Á list­anum á þessum árum var líka að finna Pfizer, stærsta lyfja­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna, eitt tækni­fyr­ir­tæki og gamla kunn­ingja eins og General Electric og Walmart.

Kínverjarnir komu og fóru

Eftir banka­hrunið 2008 breytt­ist allt aftur. Árið 2009 voru kín­versk fyr­ir­tæki þau verð­mæt­ustu í heimi. Petrochina varð verð­mætasta fyr­ir­tækið árið 2009 og tveir kín­verskir bankar, ICBC og China Commercial bank, náðu líka inn á topp tíu ásamt China Mobile. Á list­anum voru líka þrjú olíu­fyr­ir­tæki (Exxon, Petrobas og Shell).

Eina tækni­fyr­ir­tækið á topp tíu var Microsoft, sem sat í fjórða sæti.

Þessi staða breytt­ist hratt árin eftir, sér­stak­lega vegna vaxtar tækni­fyr­ir­tækj­anna. Við­snún­ings­punkt­ur­inn hjá Apple, sem oft­ast nær hefur verið verð­mætasta fyr­ir­tæki í heimi síð­ustu ár, var með til­komu fyrsta iPhone-sím­ans á markað árið 2007. Síminn olli vatna­skilum í neyt­enda­hegðun, enda bæði öflug tölva, hljóm­flutn­ings­tæki, sjón­varp, mynda­vél og ýmis­legt annað í einum hlut sem passar í vasa not­and­ans.

[adspot]Árið 2014 var Apple orðið verð­mætasta fyr­ir­tæki í heimi og í fjórum efstu sæt­unum á þeim lista voru þrjú tækni­fyr­ir­tæki. Eina sem kom á milli þeirra var olíu­ris­inn Exxon í öðru sæti, en það gaman ent­ist stutt vegna þess að í lok þess árs hrundi olíu­verð og virði fyr­ir­tæk­is­ins sam­hliða því.

Einkenni markaðssvæða

Í dag eru tækni­fyr­ir­tæki svo, líkt og áður sagði, í eigin deild. Microsoft, Apple, Amazon og Alphabet (Google) eru öll orðin að gíga­fyr­ir­tækjum sem heims­byggðin hefur aldrei séð áður. Það sem ein­kennir þau eru að þau tengja sig inn í nær alla geira. Facebook er ekki langt undan. Í raun hafa þessi fyr­ir­tæki meiri ein­kenni mark­aðs­svæða en hefð­bund­inna fyr­ir­tækja.

Fjár­hags­staða þeirra er líka ævin­týra­leg, einkum Microsoft og Apple.

Þessi tvö fyr­ir­tæki eru með um 400 millj­arða Banda­ríkja­dali í lausu fé frá rekstri og geta auð­veld­lega stað­greitt risa­fyr­ir­tæki, í mörgum mis­mun­andi geirum án þess að það sjá­ist högg á vanti.

Þannig gæti Microsoft til dæmis keypt allt hlutafé í Starbucks og Costco, án þess að ógna að neinu marki sjóðum sínum, með því að greiða fyrir með eigin hlutum og síðan reiðufé.

Þessi staða er orðin að miklu póli­tísku hita­máli í Banda­ríkj­unum og víðar. Hversu stór geta fyr­ir­tæki orðið? Hvernig á að skil­greina þau þegar kemur að sam­keppni? Eru þetta orðin ein­ok­un­ar­fyr­ir­tæki, svo­kall­aðir hlið­verðir?

Líklegt er að umræða um þetta eigi eftir að magn­ast enn frekar, ekki síst þegar tækni­fyr­ir­tækin fara að herða inn­reið á fjár­mála­mark­aði og fjar­skipti, sam­hliða auk­inni 5G-væð­ingu og frek­ari þróun á gervi­hnatta­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár