Upptaktur í hagkerfinu en samdráttur í íbúðafjárfestingu

Þrátt fyrir upp­takt í hag­kerf­inu, meðal ann­ars tölur um 5,2 pró­sent hag­vöxt á fyrri helm­ingi árs­ins, þá hefur íbúða­fjár­fest­ing dreg­ist saman að und­an­förnu. Sam­drátt­ur­inn var 13,3 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins, en á sama tíma jókst atvinnu­vega­fjár­fest­ing um 38 pró­sent, að því er fram kemur í Hagsjá Lands­bank­ans. Er þetta sagt skjóta skökku við aðrar hag­stærðir sem flestar sýni mik­inn vöxt einka­neyslu og fjár­muna­mynd­unar. „Minnkun íbúða­fjár­fest­ingar er hins vegar nokkuð úr korti við þá umræðu sem hefur farið fram um þessa starf­semi,“ segir í Hag­sjánni.

[caption id="attachment_40408" align="alignnone" width="534"] Íbúða­fjár­fest­ing er sögu­lega lág í augna­blik­inu. Mynd: Lands­bank­inn[/caption]

Á bilinu fjögur til sex prósent af landsframleiðslu


Íbúða­fjár­fest­ing jókst stöðugt fram til loka árs­ins 2007 og var þá rúmir fjöru­tíu millj­arðar króna á fjórða árs­fjórð­ungi á verð­lagi árs­ins 2015, sam­kvæmt umfjöllun Lands­bank­ans. Íbúða­fjár­fest­ing hrundi sam­hliða hruni við­skipta­bank­anna og krón­unnar. Í upp­hafi árs­ins 2010 tók hún við sér aftur og var á bil­inu tólf til fimmtán millj­arðar króna til árs­loka í fyrra. Síðan þá hefur hún hins vegar dreg­ist saman og var rúmir tólf millj­arðar á fyrri helm­ingi þessa árs. Íbúða­fjár­fest­ing, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu, var á bil­inu fjögur til sex pró­sent frá alda­mót­unum fram til árs­ins 2008. Hlut­fallið fór undir tvö pró­sent árið 2010 og aftur á öðrum árs­fjórð­ungi 2015. „Síðustu þrjú ár hefur íbúða­fjár­fest­ing verið að með­al­tali um 2,3% af VLF sem er langt fyrir neðan með­al­hlut­fallið 3,9% á árunum 2000-2015,“ segir í hag­sjánni.

Ójafnvægi á markaðnum


Tölur um nýbygg­ingar hér á landi benda til þess að mikið ójafn­vægi sé fyrir hendi í augna­blik­inu, þegar kemur að bygg­ingum nýrra íbúða. Þrátt fyrir að eft­ir­spurn sé mikil, og stórir árgangar séu að koma út á fast­eigna­mark­að­inn á hverju ári, hefur bygg­ing nýrra íbúða engan veg­inn haldið í við þörf­ina. Á þetta hefur raunar verið bent ítrekað, á und­an­förnum árum, og Samtök iðn­að­ar­ins meðal ann­ars sagt að hár bygg­ing­ar­kostn­aður sé að hindra eðli­legan fram­gang á mark­aðnum. Í versta falli geti þetta leitt til mikil ójafn­vægis, sem svo birt­ist í háu leigu­verði, þar sem meiri þrýst­ingur verður á leigu­mark­að­inn, og einnig vanda­mála þar sem fólk finnur ein­fald­lega ekki þak yfir höf­uðið.

Íbúðafjárfesting er sögulega lág í augnablikinu. Mynd: EPA.
Íbúða­fjár­fest­ing er sögu­lega lág í augna­blik­inu. Mynd: EPA.

Á árunum 1985-2014 var að með­al­tali byrjað á um 1.700 íbúðum og lokið við að byggja svipað magn. Á árinu 2014 var byrjað að byggja um 35 pró­sent af með­al­fjölda íbúða sem árlega fóru í bygg­ingu síð­ustu 30 ár, að því er segir í Hag­sjánni, sem gefur vís­bend­ingu um að nýbygg­ing íbúða sé óra­fjarri því sem hún þyrfti að vera til að mæta eft­ir­spurn og sögu­legu jafn­vægi.

[caption id="attachment_17798" align="alignnone" width="640"] Lítil fjár­fest­ing í íbúða­fjár­fest­ingu, þýðir ekki að eft­ir­spurnin sé ekki næg. Svo virð­ist sem hár bygg­ing­ar­kostn­aður, miðað við fast­eigna­verð, sé að hindra hús­bygg­ingar. Mynd: Anton.[/caption]

Verð hækkar en hægir á hækkkuninni


Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 433,3 stig í ágúst og hækk­aði um 0,2 pró­sent frá fyrri mán­uði. Síð­ast­liðna þrjá mán­uði þar á undan hækk­aði vísi­talan um 1,1 pró­sent, síð­ast­liðna sex mán­uði þar á undan hækk­aði hún um 2,3 pró­sent og síð­ast­liðna tólf mán­uði þar á undan hækk­aði hún um 8,1 pró­sent, að því er segir á vef Þjóð­skrar, sem mælir þróun á fast­eigna­mark­aði út frá þing­lýstum kaup­samn­ingum. Leigu­verð hefur einnig farið hækk­andi, en hægt hefur á hækk­un­inni að und­an­förnu.

Eitt af því sem hefur áhrif á gang mála á fast­eigna­mark­aði er erfitt aðgengi að lánsfé, en við­skipta­bank­arnir Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, geria allir tölu­vert strang­ari kröfur til lán­taka­neda í greiðslu­mati, en raunin var fyrir nokkrum árum, einkum fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins. Það reyn­ist mörgum erfitt að fá lán, en hámarks­lán sem bank­arnir veita er 85 pró­sent af mark­aðsvirði, og 90 pró­sent í und­an­tekn­inga­til­vikum fyrir lægri fjár­hæðir. Krafan um eig­in­fjár­fram­lagið kemur oft, ekki síst hjá ungu fólki, í veg fyrir að það geti fengið lán og keypt íbúð. Sparn­að­ar­söfnun er síðan hæg­ari á leigu­mark­aðnum, þar sem leigu­verð er mun hærra en sem nemur afborgun af hús­næð­is­láni með hámark­aðs veð­hlut­falli, í mörgum til­vikum.

Stjórn­völd hafa sagt, að það standi til að breyta bygg­ing­ar­reglu­gerð og reglu­verki, til að liðka fyrir bygg­ingu minni og ódýr­ari íbúða og gera þannig bygg­ing­ar­kostnað minni hindrun fyrir end­ur­nýjun hús­næðis en verið hefur. Heild­stæðar til­lögur um þessi mál hafa ekki verið afgreiddar í þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár