Rússar hylma yfir efnavopnaárásir, segja Bandaríkin

Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er í Moskvu. Hann er mjög gagn­rýn­inn á þátt Rússa í átök­unum í Sýrlandi. Rússar segja Banda­ríkja­menn stunda áróður gegn sér og Sýrlandi.

Sergei Lavrov og Rex Tillerson ræddu saman í dag.
Sergei Lavrov og Rex Tiller­son ræddu saman í dag. Mynd: EPA

Stjórn Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, sakar Rússa um að hylma yfir efna­vopna­árásir með sýr­lenskum stjórn­völdum og að verja stjórn Bashar al-Assad í Sýrlandi. Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fundar með rúss­neska starfs­bróður sínum, Sergei Lavrov, í Moskvu í dag.

Hvergi er gert ráð fyrir því að Tiller­son hitti Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, í þess­ari fyrstu ferð hans til Rúss­lands sem utan­rík­is­rá­herra Banda­ríkj­anna. Tiller­son er hins vegar kunn­ugur ráða­mönnum þar í landi eftir að hafa farið fyrir banda­ríska olíu­ris­anum Exxon Mobil í áraraðir. Exxon hefur fjár­fest gríð­ar­lega mikið í rúss­neskum olíu­iðn­aði. Tiller­son hefur jafn­framt hlotið sér­staka vina­orðu úr hendi Pútíns fyrir olíu­upp­bygg­ing­una.

Skila­boðin sem Tiller­son flutti í Moskvu voru gagn­rýni á stuðn­ing Rússa við stjórn Assads. Tiller­son flaug til Moskvu eftir fund með utan­rík­is­ráð­herrum G7 ríkj­anna á Ítalíu í gær þar sem rætt var um refsi­að­gerðir vegna efna­vopna­árás­ar­innar í Sýrlandi. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Reuters.

G7 ríkin komu sér ekki saman um auknar refsi­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi á fundi sínum. Boris John­son, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, hafði lagt fram til­lögu þess efnis að refsi­að­gerðir yrðu hertar vegna efna­vopna­árá­sinnar í Idlib-hér­aði í Sýr­landi í síð­ustu viku. Sýr­lensk stjórn­völd, sem Rússar hafa aðstoðað í stríð­inu í Sýr­landi, eru sögð bera ábyrgð á árás­inn­i.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur stigið fram og líkt ásök­unum um efna­vopna­árás­ina við það þegar sagt var að Saddam Hussein, þáver­andi ein­ræð­is­herra Íraks, byggi yfir miklu magni efna­vopna. Það reynd­ist síðar ekki vera rétt. „Þetta minnir mig á atburð­ina 2003 þegar erind­rekar Banda­ríkj­anna hjá Örygg­is­ráð­inu sýndu það sem þeir sögðu að væru efna­vopn sem fund­ust í Írak. Við höfum séð þetta allt áður,“ sagði Pútín við blaða­menn í gær.

Misvísandi skilaboð um frekari hernaðaraðgerðir

Á fundi G7-ríkj­anna lét Tiller­son hafa eftir sér að „það væri ljóst að völd Assad-fjöl­skyld­unnar væru senn á enda“. „Við vonum að rúss­nesk stjórn­völd átti sig á að þau hafi stillt sér upp með óáreið­an­legum banda­manni í Bashar al-Assad.“

[links]Bæði Rússland og Sýrland hafa sam­þykkt alþjóða­sátt­mála um að efna­vopn verði ekki notuð í hern­aði. Notkun slíkra vopna telj­ast til stríðs­glæpa.

Donald Trump hefur gefið mis­vísandi upp­lýs­ingar um það hver áform hans eru í Sýrlandi. Eftir að hafa hæft skot­mörk á vegum sýr­lenskra stjórn­valda sem við­bragð við efna­vopna­árásinni hefur það verið á reiki hvað Trump hygg­ist gera næst. Í við­tali við New York Post sagði for­set­inn að Banda­ríkin væru ekki á leið „inn í Sýrland“. „Stefna okkar er óbreytt. Við erum ekki að fara inn í Sýrland.“

[adspot]

Pútín telur Banda­ríkin vera að und­ir­búa frek­ari flug­skeyta­árásir á Sýrland og að upp­reisn­ar­menn, sem Rússar segja bera ábyrgð á notkun efna­vopna, hyggi á fleiri árásir með efna­vopnum. Þetta ætli upp­reisn­ar­menn að gera til þess að Banda­ríkin neyð­ist til að hæfa fleiri skot­mörk á vegum stjórn­ar­hers­ins. Þetta segja banda­rískir ráða­menn að sé falskur áróður sem ætlað er að villa um fyrir fólki.

Kínverjar hafa áhyggjur

Xi Jinping, for­seti Kína, ræddi við Donald Trump í síma í dag þar sem hann lagði áherslu á póli­tíska lausn á deil­unni í Sýrlandi. „Við verðum að ná póli­tískri lausn á vand­anum í Sýrlandi. Það er mjög mik­il­vægt að Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna standi saman um lausn við vand­anum. Ég vona að Örygg­is­ráðið geti kom­ist að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu,“ er haft eftir Xi á kín­versku sjón­varps­stöð­inni CCTV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár