Sóley Tómasdóttir hættir í borgarstjórn í haust

Sóley Tóm­as­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar í Reykja­vík, ætlar að hætta í borg­ar­stjórn í haust. Hún hyggst flytja til Hollands með fjöl­skyldu sinni og fara í meira nám.

Sóley Tóm­as­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna og for­seti borg­ar­stjórnar, ætlar að hætta í borg­ar­stjórn í haust. Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

Sóley hyggst flytja til Hollands með fjöl­skyldu sinni, þar sem hún ætlar í meist­ara­nám í upp­eld­is­fræði. „Ég mun kveðja borg­ar­stjórn eftir 10 við­burða­rík ár, þakk­lát fyrir þá dýr­mætu reynslu sem ég hef öðl­ast og stolt af þeim verkum sem ég hef fengið að koma til leiðar.

Reykja­vík er frá­bær borg og verður stöðugt betri. Vinstri græn eiga sinn þátt í því og munu halda áfram að stuðla að sann­gjarn­ari, grænni og femínísk­ari borg þó ég bregði mér af bæ. Sömu sögu er að segja af meiri­hluta borg­ar­stjórnar, fjöl­breyttum en sam­stilltum hópi sem ég vona að eigi eftir að vinna vel og lengi saman. Og fyrst ég er byrjuð, þá er minni­hlut­inn svo sem ágætur á sinn hátt og sam­starf allra borg­ar­full­trúa að jafn­aði gott,“ segir Sóley meðal ann­ars.

Hún seg­ist þó ekki alveg hætt, verði borg­ar­full­trúi fram á haust og muni leggja sig fram um að koma sem mestu til leiðar á þeim tíma sem eftir sé. Hún sé svo ekki hætt í póli­tík, því póli­tíkin muni alltaf fylgja henni.

Líf Magneu­dóttir er næsta kona inn á lista Vinstri grænna í borg­inni og vara­borg­ar­full­trúi. Hún tekur vænt­an­lega sæti Sóleyjar í borg­ar­stjórn í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár