Jón Gnarr ráðinn ritstjóri innlendrar dagskrár hjá 365

Jón Gnarr, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hefur verið ráð­inn rit­stjóri inn­lendrar dag­skrár hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365. Hann hefur þegar hafið störf hjá fyr­ir­tæk­inu. Jón hefur skrifað pistla í Frétta­blaðið und­an­farna mán­uði og mun halda því áfram.

„Við gætum ekki verið ánægð­ari með þessa ráðn­ingu og vitum að Jón Gnarr mun reyn­ast okkur mik­ill happa­fengur,“ segir Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365, í til­kynn­ingu um ráðn­ing­una. Hann segir að hand­bragð Jóns muni sjást í öllum miðlum fyr­ir­tæk­is­ins strax í haust. „Ég er sann­færður um að við­skipta­vinir okkar og lands­menn allir eiga eftir að njóta þessa í dag­skránni okkar. Við hlökkum til að starfa með jafn skap­andi og skemmti­legum manni og Jóni Gnarr.“

Jón Gnarr seg­ist spenntur fyrir því að takast á við starfið, sem sé áhuga­vert og krefj­andi. „Íslensk dag­skrár­gerð hefur verið ástríða mín alla tíð. Flest það sem ég hef gert í þeim efnum hef ég gert á miðlum 365; Stöð 2, X-inu og Frétta­blað­inu. 365 er að mínu mati einn mest spenn­andi vinnu­staður á Íslandi í dag. Ég þakka stjórn­endum traustið og hlakka til að fá að leggja mín lóð á vog­ar­skál­arnar með því að móta vand­aða inn­lenda dag­skrár­gerð til fram­tíðar með skemmti­legu sam­starfs­fólki.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár