Framsóknarmenn og minna menntaðir ánægðastir með störf forseta Íslands

81% þeirra sem segj­ast myndu kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn eru ánægðir eða mjög ánægðir með störf Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands. Þetta kemur fram í könnun MMR um ánægju með störf for­set­ans. Fram­sókn­ar­menn eru langá­nægð­astir allra með störf for­set­ans.

66% þeirra sem segj­ast kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru frekar eða mjög ánægðir með störf for­set­ans. 41% Pírata eru ánægðir með störf hans, 35% þeirra sem kjósa Bjarta fram­tíð og 25% þeirra sem myndu kjósa Vinstri græna. Minnst er ánægjan með störf Ólafs Ragnars meðal þeirra sem myndu kjósa Sam­fylk­ing­una ef gengið væri til kosn­inga í dag.

Það er líka mik­ill munur á stuðn­ingi við for­set­ann eftir mennt­un­ar­stigi. Þannig eru 55% þeirra sem hafa lokið grunn­skóla­prófi ánægðir með for­set­ann og 66% þeirra sem hafa lokið starfs­námi. Ánægjan með hann er 46% hjá þeim sem hafa lokið bók­legu fram­halds­skóla­námi en 55% hjá þeim sem hafa lokið verk­legu fram­halds­skóla­námi. 41% þeirra sem hafa próf úr sér­skólum eða við háskóla­stig eru ánægðir með for­set­ann en aðeins 37% þeirra sem hafa háskóla­próf.

Kjarninn greindi frá könn­un­inni fyrir jól, en þá voru aðeins komnar inn grunn­töl­urnar úr könn­un­inni en ekki grein­ing MMR.

Innan við helm­ingur Íslend­inga seg­ist ánægður með störf Ólafs Ragnars. Á þessu kjör­tíma­bili hefur ánægja með störf for­set­ans aldrei mælst lægri en nú, en einu sinni áður hefur hún mælst jafn­lítil. 47,8% aðspurðra segj­ast ánægðir með störf for­set­ans, sem er sama hlut­fall og í jan­úar á þessu ári. Könn­un­inni lauk þann 18. des­em­ber. 25,2 pró­sent eru óánægðir með störf for­set­ans sam­kvæmt könn­un­inni og 26,9 pró­sent segj­ast hvorki ánægðir né óánægðir með störf hans. Í síð­ustu könnun á undan þess­ari, sem lauk 7. des­em­ber, sögð­ust 54,8 pró­sent vera ánægð með störf for­set­ans.

MMR kannar reglu­lega við­horf til starfa for­set­ans. Mest hefur ánægjan með for­set­ann farið upp í 63,6 pró­sent, í febr­úar 2013, á þessu kjör­tíma­bili. Mest hefur óánægjan farið í 30,1 pró­sent á þessu kjör­tíma­bili, en það var í júlí 2013. Óánægjan var minnst skömmu áður, eða í maí síð­ast­liðnum, 17,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár