Svona féllu atkvæði þingmanna um breytingar á sóttvarnalögum í nótt

Þingmenn tveggja flokka, Vinstri grænna og Fram­sóknar, greiddu allir atkvæði með tíma­bundnum laga­breyt­ingum er tengj­ast landa­mærum þegar atkvæða­greiðsla fór fram í nótt. Ellefu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks sögðu já, einn sagði nei og þrír voru fjar­ver­andi.

28 þingmenn sögðu já.
28 þing­menn sögðu já. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Allir þing­menn Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks greiddu atkvæði með tíma­bund­inni laga­breyt­ingu á sótt­varna- og útlend­inga­lögum sem sam­þykkt var í nótt. Ellefu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks sögðu já, einn sagði nei, einn greiddi ekki atkvæði og þrír voru fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una, þar af tveir ráð­herrar, þau Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra.

[adspot]

Sjö þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una og einn var fjar­ver­andi. Allir þing­menn Við­reisnar sátu hjá. Sjö þing­menn Mið­flokks sátu hjá og tveir voru fjar­ver­andi. Þrír þing­menn Pírata sátu hjá og fjórir voru fjar­ver­andi. Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins greiddi ekki atkvæði og hinn þing­maður flokks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, var fjar­ver­andi.

Laga­breyt­ing­arnar sem sam­þykktar voru í nótt voru ann­ars vegar á sótt­varna­lögum og hins vegar á lögum um útlend­inga. Báðar eru þær tíma­bundnar og gilda til 30. júní. Þær heim­ila heil­brigð­is­ráð­herra að skylda fólk sem er að koma frá háá­hættu­svæðum far­ald­urs­ins til að dvelja í sótt­kví eða ein­angrun í sótt­varna­húsi. Enn á eftir að birta reglu­gerð um skil­grein­ingar á háá­hættu­svæðum. Sótt­varna­lækni verður einnig sam­kvæmt lög­unum heim­ilt að veita und­an­þágur frá þess­ari skyldu ef ferða­maður getur sýnt fram á að hann geti verið í sótt­kví eða ein­angrun í hús­næði á eigin vegum upp­fylli það öll skil­yrði slíks.

[links]Þá getur dóms­mála­ráð­herra, sam­kvæmt breyt­ingu á útlend­inga­lögum, með reglu­gerð kveðið á um að útlend­ingum sem koma frá eða dvalið hafa á háá­hættu­svæði sé óheim­ilt að koma til lands­ins.

Frum­varpið var lagt fram á Alþingi í gær og var rætt fram á nótt. Atkvæða­greiðslan fór fram á fimmta tím­anum. 28 þing­menn greiddu atkvæði með því, einn sagði nei og 23 sátu hjá.

Þingmenn sem sögðu já:

Ari Trausti Guð­munds­son, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Ásmundur Einar Daðason, Ásmundur Frið­riks­son, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son, Bryndís Har­alds­dóttir, Brynjar Níelsson, Halla Signý Krist­jáns­dóttir, Haraldur Bene­dikts­son, Jón Gunn­ars­son, Katrín Jak­obs­dóttir, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, Kristján Þór Júl­í­us­son, Lilja Alfreðs­dóttir, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Ólafur Þór Gunn­ars­son, Óli Björn Kárason, Páll Magn­ús­son, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Stein­grímur J. Sig­fús­son, Steinunn Þóra Árna­dóttir, Svandís Svav­ars­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Willum Þór Þórsson og Þórarinn Ingi Pét­urs­son.

Þingmenn sem sögðu nei:

Sigríður Á. Andersen.

Þingmenn sem greiddu ekki atkvæði:

Bergþór Ólason, Birgir Ármanns­son, Birgir Þór­ar­ins­son, Guðjón S. Brjáns­son, Guð­mundur Andri Thorsson, Gunnar Bragi Sveins­son, Hanna Katrín Frið­riks­son, Helga Vala Helga­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Inga Sæland, Jón Þór Ólafsson, Jón Steindór Valdi­mars­son, Karl Gauti Hjalta­son, Logi Ein­ars­son, María Hjálm­ars­dóttir, Oddný G. Harð­ar­dóttir, Olga Margrét Cilia, Ólafur Ísleifs­son, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, Þor­gerður K. Gunn­ars­dóttir og Þor­steinn Sæmunds­son.

Þingmenn sem voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna:

Andrés Ingi Jónsson, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Ágúst Ólafur Ágústs­son, Björn Leví Gunn­ars­son, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Halldóra Mogensen, Njáll Trausti Frið­berts­son, Sigurður Páll Jónsson, Smári McCarthy og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár