Páll Magnússon fékk 22 milljónir króna í starfslokagreiðslu frá RÚV

Páll Magnússon tók nýverið við þættinum Sprengisandur á Bylgjunni.
Páll Magn­ús­son tók nýverið við þætt­inum Sprengi­sandur á Bylgj­unni. Mynd: Mynd frá 365/GVA

Páll Magn­ús­son fékk rúm­lega 22 millj­ónir króna í starfs­loka­greiðslu þegar hann hætti störfum sem útvarps­stjóri á RÚV. Þetta kemur fram í svari Illuga Gunn­ars­sonar mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Karli Garð­ars­syni, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Karl spurði Illuga um starfs­loka­greiðslur RÚV á rekstr­ar­ár­unum 2013 til 2015. Hann spurði líka hversu margir starfs­menn hefðu fengið starfs­loka­samn­inga og hversu háar hæstu og lægstu greiðslur hefðu verið.

Í svar­inu kemur fram að þrettán starfs­menn hafi fengið starfs­loka­samn­inga á þessu tíma­bili. Hæsta greiðslan var 22.380.144 krónur, sem var greiðslan til útvarps­stjóra. 13.377.129 krónur skipt­ust á milli hinna tólf starfs­mann­anna, og lægsta greiðslan nam tæp­lega 350 þús­und krónum.

Áður hafði verið greint frá því, þegar Páll sagði upp störfum í des­em­ber 2013, að hann hefði tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest. Hann var með 1.220.777 krónur á mán­uði og miðað við það hefði hann átt að fá tæp­lega 15 millj­ónir króna í sinn hlut.

Ekki er greint frá því í svari Illuga hverjir aðrir fengu starfs­loka­greiðslur eða hvernig þær skipt­ust á milli þeirra. Það er vegna þess að Rík­is­út­varpið telur sér óheim­ilt að veita ráð­herra upp­lýs­ingar um aðra starfs­menn en útvarps­stjóra. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur stað­fest þann skiln­ing Rík­is­út­varps­ins að ein­göngu útvarps­stjóri telj­ist til æðstu stjórn­enda og upp­lýs­inga­lög eigi því bara um hann en ekki aðra.

DV vildi fá upplýsingarnar

Málið á upp­runa sinn hjá DV, sem fjall­aði um hækkun á rekstr­ar­gjöldum vegna yfir­stjórnar RÚV í jan­úar í fyrra, en breyt­ingar voru gerðar á yfir­stjórn­inni þegar Magnús Geir Þórð­ar­son var ráð­inn útvarps­stjóri eftir að Páll hætti störfum. Yfir­stjórn­inni var sagt upp störfum og störfin voru aug­lýst að nýju í mars 2014. Það voru níu fram­kvæmda­stjórar sem þá var sagt upp störfum.

DV krafð­ist þess að fá að vita heild­ar­upp­hæð starfs­loka­greiðslna RÚV og hvernig þær skipt­ust niður á fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra. RÚV neit­aði að veita þær upp­lýs­ingar og DV kærði málið til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, sem komst að sömu nið­ur­stöðu og RÚV. 

Fyr­ir­spurn Karls nær til lengra tíma­bils, eða rekstr­ar­ár­anna 2013 til 2015. Í svari Illuga kemur fram að af þeim 13 starfs­mönnum sem fengu starfs­loka­greiðslur hafi einn verið end­ur­ráð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár