Mögulegur glundroði framundan eftir áfellisdóm Mannréttindadómstóls

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur fellt mjög harðan dóm í hinu svo­kall­aða Lands­rétt­ar­máli. Afleið­ing­arnar hans geta haft víð­tæk áhrif á dóms­kerfið, lög­gjaf­ar­valdið og fram­kvæmd­ar­valdið.

Ferlið varð til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­stóll í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­ar­at­riði að dóm­stóll sé lög­legur, eina af meg­in­reglum rétt­ar­rík­is­ins.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem birtur var í morgun þar sem hann kemst að þeirri nið­ur­stöðu að fjórir dóm­arar við Lands­rétt Íslands séu ólög­lega skip­aðir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð.

Þar segir enn fremur að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi brotið gegn lands­lögum með því að gera breyt­ingar á lista yfir þá 15 dóm­ara sem skip­aðir voru án þess að rök­styðja þær með við­un­andi hætti þrátt fyrir að hafa fengið ráð­gjöf sér­fræð­inga um að hverjar afleið­ingar ákvörð­unar hennar gætu orðið. Sigríður fjar­lægði ólög­lega fjóra umsækj­endur sem hæf­is­nefnd hafði lagt til að yrðu skip­aðir og setti fjóra aðra í stað­inn.

Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins er einnig vikið að því að afgreiðsla Alþingis á skipun dóm­ar­anna hafi brugð­ist, en kosið var um skipun þeirra allra í einu í stað þess að kosið yrði um skipan hvers og eins.

Nið­ur­staðan leiðir af sér að starf­semi Lands­réttar er í full­komnu upp­námi. Þegar er búið að fresta öllum málum sem dóm­ar­arnir fjórir sem voru skip­aðir með ólög­mætum hætti; Arn­­­­­fríður Ein­­­­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­­­­son og Jón Finn­­­­­björns­­­­­son, áttu að koma að í þess­ari viku og lög­menn sem Kjarninn hefur rætt við segja borð­leggj­andi að taka þurfi upp öll mál sem dóm­ar­arnir fjórir hafa komið að. Þá sé einnig vand­séð, og í raun ómögu­legt, að þeir geti setið áfram í rétt­inum. Það þurfi að skipa nýja dóm­ara í þeirra stað.

Ferlið allt mun að öllum lík­indum einnig verða íslenska rík­inu dýrt í pen­ingum talið. Þeir fjórir sem teknir voru af list­anum hafa fengið eða munu fá miska- og/eða skaða­bætur, dóm­ar­arnir fjórir sem skip­aðir voru án þess að hafa verið taldir á meðal 15 hæf­ustu eiga lík­ast til háa skaða­bóta­kröfu á ríkið verði þeir að víkja og kostn­aður við end­ur­upp­töku mála sem þeir hafa komið að mun verða umtals­verður.

Dómurinn í morgun mun ekki ein­ungis hafa miklar afleið­ingar á dóms­kerfi Íslands, hann mun einnig hafa áhrif á lög­gjaf­ar­valdið Alþingi, sem brást í afgreiðslu sinni við skipan dóm­ar­anna. Og, í ljósi þess að þegar eru komnar fram end­ur­nýj­aðar kröfur um taf­ar­lausa afsögn Sigríðar, hafa áhrif á rík­is­stjórn­ina, fram­kvæmd­ar­valdið.

Nýtt millidómsstig verður til

En um hvað snýst þetta allt saman? Þann 10. febr­úar 2017 voru emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt, nýtt milli­dóms­stig, aug­lýst til umsókn­ar, en rétt­ur­inn átti að hefja starf­semi sína í byrjun árs 2018. Alls sóttu 37 um stöð­urn­ar, fjórtán konur og 23 karl­ar. Fjórir drógu síðar umsóknir sínar til baka.

Árið 2010 var lögum um skipan dóm­ara breytt þannig að fimm manna dóm­nefnd var sett á lagg­irnar til að velja dóm­ara og vægi ákvörð­unar nefnd­ar­innar aukið þannig að ráð­herra yrði bund­inn við nið­ur­stöðu henn­ar. Þessar breyt­ingar voru m.a. gerðar til að auka til­trú á dóm­stóla og þrí­skipt­ingu valds á Íslandi í kjöl­far afar umdeildra skip­ana dóm­ara þar sem rök­studdur grunur var um að annað ef hæfni hefði ráðið för við skip­un. Laga­breyt­ingin gerði þó ráð fyrir að dóms­mála­ráð­herra geti vikið frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar og lagt nýja til­lögu fyrir Alþingi til sam­þykkt­ar, sam­kvæmt lög­un­um.

Í ljósi þess að skipan í Lands­rétt var umfangs­mesta nýskipun dóm­ara í Íslands­sög­unni var ákveðið að list­inn yfir þá sem til­nefndir yrðu til verks­ins yrði lagður fyrir Alþingi óháð því hvort dóms­mála­ráð­herra legði til breyt­ingar eða ekki. Um yrði að ræða fyrsta skipti sem Alþingi kæmi að skipun dóm­ara.

Þann 12. maí 2017 birti Kjarn­inn lista yfir þá 15 sem dóm­nefndin hafði metið hæf­asta til að sitja í Lands­rétti. Um er að ræða þann lista sem sendur hafði verið út til umsækj­enda um emb­ætt­in. Það vakti athygli að dóm­nefndin hefði talið nákvæm­lega 15 umsækj­endur hæfa til að gegn nákvæm­lega 15 emb­ætt­um. Á list­anum voru tíu karla og fimm kon­ur.

Þann 29. maí afhenti Sig­ríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra for­seta Alþingis til­lögu sín að skipun í emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt. Til­laga Sig­ríðar var önnur en sú sem dóm­nefnd hafði lagt til. Fjórir umsækj­endur sem dóm­nefnd hafði talið á meðal þeirra 15 sem hæf­astir voru í emb­ættin hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herra og í þeirra stað voru fjórir aðrir settir inn á list­ann. Kynja­hlut­föll voru nú þannig að átta karlar og sjö konur yrðu dóm­arar við rétt­inn. Í ljós kom að Sig­ríður taldi 24 umsækj­endur hæf­asta, en ekki 15, og hún valdi þá sem hún gerði til­lögu um úr þeim hópi.

Dóms­mála­ráð­herra rök­studdi þó ekki breytta röðun sína með kynja­sjón­ar­miðum heldur sagð­ist hún hafa aukið vægi dóm­ara­reynslu. Hún lagði ekki fram nein gögn sem sýndu fram á hvernig það hafi verið gert.

Listinn birtur

Ást­ráður Har­alds­son, einn þeirra sem dóm­nefnd hafði mælt með en Sig­ríður fjar­lægði af list­an­um, sendi sam­dæg­urs bréf til for­seta Alþingis þar sem hann sagði að þau frá­vik sem ráð­herra geri á til­­lögu dóm­­nefnd­­ar­inn­ar upp­­­fylli á eng­an hátt kröf­ur sem gera verði varð­andi skip­an dóm­­ara og sem umboðs­maður Alþing­is og dóm­stól­ar hafi lagt til grund­vall­­ar. Um sé að ræða ólög­mæta emb­ætt­is­færslu. Sig­ríður hafn­aði því algjör­lega.

Dag­inn eft­ir, 30. maí, birti Kjarn­inn lista dóm­nefnd­ar­innar yfir hæfi umsækj­enda. Þar kom í ljós að einn þeirra sem Sig­ríður fjar­lægði af list­an­um, Eiríkur Jóns­son, hafði verið með sjö­undu hæstu ein­kunn­ina sam­kvæmt nefnd­inni. Þar kom enn fremur fram að einn þeirra sem Sig­ríður ákvað að skipa, Jón Finn­björns­son, hafði verið met­inn á meðal þeirra minnst hæfu af nefnd­inni. Hann sat í 30. sæti á list­anum af 33 umsækj­end­um.

Auk þess var ljóst að rök­stuðn­ingur dóms­mála­ráð­herra, um að auka vægi dóm­ara­reynslu, rím­aði ekki við einu fyr­ir­liggj­andi úttekt­ina á dóm­ara­reynslu. Í 117 blað­­síðna ítar­­legri umsögn dóm­­nefndar um umsækj­endur er reynsla umsækj­enda af dóms­­störfum meðal ann­­ars borin sam­­an. Þar kom í ljós að þrír umsækj­endur sem lentu neðar en Eiríkur í heild­­ar­hæfn­is­mati dóm­­nefndar voru með minni dóm­­ara­­reynslu en hann, en röt­uðu samt sem áður inn á lista Sig­ríðar yfir þá sem hún vill skipa í dóm­­ara­­sætin 15.

Jón Hösk­­ulds­­son, sem dóm­­nefndin setti í 11. sæti, hlaut heldur ekki náð fyrir augum ráð­herra. Jón er þaul­­­reyndur dóm­­ari og hefði átt að fær­­ast upp list­ann frekar en niður hann ef slík reynsla væri metin umfram aðra. Í hans stað ákvað Sig­ríður m.a. að skipa Ásmund Helga­­son, sem hafði verið settur í 17. sæti af dóm­­nefnd. Í umsögn Jóns til stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefndar kom fram að hann og Ásmundur hafi verið skip­aðir hér­­aðs­­dóm­­arar sama dag, 15. maí 2010. Ásmundur þótti þó hafa eilítið meiri reynslu vegna þess að hann hefur auk þess setið í félags­­­dómi og verið ad hoc-­­dóm­­ari í Hæsta­rétti í einu máli.

Þá er ótalið að Ólafur Ólafs­­son, sem dóm­­nefnd mat einn þeirra fjög­­urra sem hafi næst mesta dóm­­ara­­reynslu, hlaut ekki náð fyrir augum Sig­ríðar þrátt fyrir að hafa lent í 27. sæti á upp­­haf­­legum lista dóm­­nefnd­­ar, eða þremur sætum ofar en Jón Finn­­björns­­son, sem Sig­ríður ákvað að til­­­nefna.

Lög­manna­fé­lag Íslands gagn­rýndi ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að breyta röðun á list­ann og í umsögnum sem hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Jóhannes Karl Sveins­son sendi inn til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar sagð­ist hann hafa verið í áfalli þegar hann las rök­­stuðn­­ing dóms­­mála­ráð­herra. Þau upp­­­fylli engar lág­­marks­­kröfur stjórn­­­sýslu um rök­­stuðn­­ing og stand­ist auk þess „enga efn­is­­lega skoð­un“.

Tek­ist var harka­lega á um málið á Alþingi í kjöl­far­ið. Stjórn­ar­and­staðan sagði til­lögu dóms­mála­ráð­herra vera alveg órök­studda og kall­aði eftir lengri tíma til að fara yfir mál­ið. Til stóð að afgreiða málið mið­viku­dag­inn 31. maí 2017, og ljúka þing­störfum þann sama dag. Það náð­ist ekki og þetta eina mál varð til þess að þing þurfti að koma saman 1. júní.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar greiddi atkvæði með tillögu Sigríðar, og tryggði henni brautargengi.
Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar greiddi atkvæði með til­lögu Sigríðar, og tryggði henni braut­ar­gengi.

Þar var hnakkrif­ist um málið og þáver­andi stjórn­ar­liðar kynntu ýmis sjón­ar­mið sín fyrir því að styðja til­lögur ráð­herra. Þau voru t.d. að Alþingi ætti ekki að hafa vald til að taka ákvörðun í svona máli þar sem það bæri ekki ábyrgð, heldur ráð­herr­ann. Aðrir sögðu kynja­sjón­ar­mið hafa ráðið úrslitum og enn aðrir sögð­ust telja að ráð­herr­ann hefði rök­stutt mál sitt nægj­an­lega vel, en hún bar við auknu vægi dóm­ara­reynslu í rök­stuðn­ingi sín­um.

Stjórn­ar­and­staðan lagði fram frá­vís­un­ar­til­lögu sem var felld 31-30. Hún gerði ráð fyrir meiri máls­með­ferð­ar­tíma fyrir til­lögu ráð­herra. Í kjöl­farið var til­laga ráð­herra sam­þykkt með 31 atkvæða þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar gegn atkvæðum Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Vinstri grænna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sat hjá. Tveir þing­menn greiddu ekki atkvæði vegna tengsla sinna við umsækj­endur. Annars vegar Brynjar Níelsson, sem er giftur Arnfríði Ein­ars­dóttur, og hins vegar Svandís Svav­ars­dóttir, sem var áður gift Ástráði Har­alds­syni og á með honum börn.

Hæstiréttur segir ráðherra hafa brotið lög

Málinu var þó fjarri því lokið. Ást­ráður stefndi íslenska rík­inu vegna skip­un­ar­inn­ar. Það gerði Jóhannes Rúnar Jóhanns­son líka.

Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 15. sept­em­ber 2017, sama dag og rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sprakk, að Sigríður Andersen hafi brotið lög við skipun Land­rétt­ar­dóm­ara. Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hefði átt að óska eftir nýju áliti dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöðu, ef hún taldi ann­marka á áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í nið­ur­stöðukafla dóms­ins var tekið fram að „stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hafi ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“

Þann 19. des­em­ber 2017 komst Hæsti­réttur síðan líka að því að Sigríður hafi brotið gegn ákvæði stjórn­sýslu­laga. Dóm­stóll­inn tók afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætl­aði að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis verður slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum. Í dómi Hæsta­réttar segir að það liggi ekki fyrir að Sigríður hafi ráð­ist í frek­ari rann­sókn á þeim atriðum sem vörð­uðu veit­ingu þeirra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta sem málið snérist um og rök­stuðn­ingur hennar til for­seta Alþingis, sem settur var fram í bréfi dag­sett 28. maí 2017, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar full­nægði ekki lág­marks­kröfum.

Þar segir einnig að án til­lits til þess hvort dóms­mála­ráð­herra hafi getað með minn­is­blaði sínu til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, sem sent var 30. maí 2017, bætt úr þeim ann­mörkum, sem voru á rann­sókn hennar, rök­stuðn­ingi og til­lögu­gerð, hafði það minn­is­blað ekk­ert nýtt að geyma umfram það sem fram hafði komið í áliti dóm­nefndar. Sjón­ar­mið um jafna stöðu karla og kvenna gátu ekki komið til álita við veit­ingu ráð­herra á dóm­ara­emb­ætt­unum nema tveir eða fleiri umsækj­endur hefðu áður verið metnir jafn­hæfir til að gegna því. Ekki hafi verið um það að ræða í mál­inu.

„Að gættum þeim kröfum sem gera bar sam­kvæmt fram­an­sögðu var rann­sókn ráð­herra ófull­nægj­andi til að upp­lýsa málið nægi­lega, svo ráð­herra væri fært að taka aðra ákvörðun um hæfni umsækj­enda en dóm­nefnd hafði áður tekið. Var máls­með­ferð ráð­herra að þessu leyti því and­stæð 10. gr. stjórn­sýslu­laga. Leiðir þá af sjálfu sér að ann­marki var á með­ferð Alþingis á til­lögu dóms­mála­ráð­herra þar sem ekki var bætt úr ann­mörkum á máls­með­ferð ráð­herra þegar málið kom til atkvæða­greiðslu á Alþingi.“

Í dómnum var fall­ist á miska­bóta­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars. Þeir fengu 700 þús­und krónur hvor vegna skip­unar dóm­ara við Lands­rétt. Hæsti­réttur sýkn­aði hins vegar ríkið af skaða­bóta­kröfu og hafði áður vísað frá ógild­ing­ar­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars, sem laut að ógild­ingu þeirrar ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra að leggja ekki til við Alþingi að þeir yrðu skip­aðir í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

Ástæða þess að Hæsti­réttur féllst ekki á skaða­bóta­kröfu þeirra var sú að þeir gátu ekki sýnt fram á fjár­hags­legt tjón, enda báðir vel laun­aðir lög­menn.

Hinir tveir sem fjar­lægðir voru af upp­haf­lega list­anum um dóm­ara sem átti að skipa, Eiríkur Jónsson og Jón Hösk­ulds­son, stefndu hins vegar rík­inu vegna þess tjóns sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir vegna ákvörð­unar Sigríðar.

Starfsemi Landsréttar er í uppnámi eftir niðurstöðu Mannréttindadómstólsins í morgun.
Starf­semi Lands­réttar er í upp­námi eftir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í morgun.

Í októ­ber 2018 komst hér­aðs­dómur Reykja­víkur að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið þyrfti að greiða þeim báðum bætur vegna máls­ins. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Jóni fjórar millj­ónir króna í skaða­bæt­ur, 1,1 milljón króna í miska­bætur. Dóm­ur­inn féllst á bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart Eiríki en hann þurfti að höfða skaða­bóta­mál til að inn­heimta þá bóta­skyldu. Ríkið greiddi auk þess máls­kostnað beggja. Á meðal þeirra sem báru vitni í mál­unum voru núver­andi og fyrr­ver­andi þing­­menn Við­reisn­­­ar, sem sat á þessum tíma í rík­­is­­stjórn.

Það mál er nú í áfrýj­un­ar­ferli.

Sigríður varin vantrausti

Þrátt fyrir það sem undan hafði gengið var Sigríður Andersen samt sem áður aftur gerð að dóms­mála­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn sem mynduð var síð­asta dag nóv­em­ber­mán­aðar 2017 undir for­sætis Katrínar Jak­obs­dóttur. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar hafa ætið staðið þétt við bakið á henni, líka eftir nið­ur­stöðu Hæsta­réttar Íslands um að Sigríður hefði brotið stjórn­sýslu­lög. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gaf það þá út að hún myndi ekki gera kröfu um að Sigríður viki úr rík­is­stjórn vegna máls­ins og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagð­ist bera „fullt traust“ til dóms­mála­ráð­herra.

Um mið­nætti 5. mars lögðu tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ar, Píratar og Sam­fylk­ing, fram van­traust­s­til­lögu á dóms­mála­ráð­herra. Í könnun sem Mask­ína vann fyrir Stund­ina á þeim tíma kom fram að 72,5 pró­­­sent lands­­­manna vildu að Sig­ríður segi af sér emb­ætti. Spurt var „Finnst þér að Sig­ríður Á. Andersen dóms­­­mála­ráð­herra eigi að segja af sér ráð­herra­­­dómi eða á hún að sitja áfram sem dóms­­­mála­ráð­herra?“

Til­lagan var tekin fyrir á Alþingi 6. mars. Þar var hún felld. Atkvæði féllu þannig að 33 voru á móti til­­lög­unni, 29 með­­­fylgj­andi og einn sat hjá, Berg­þór Óla­­son Mið­­flokki.

Tveir þing­­menn Vinstri grænna, Rósa Björk Brynj­­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jóns­­son, studdu til­­lögu um van­­traust, en aðrir stjórn­­­ar­­þing­­menn voru á mót­i.

Í kjöl­farið var því haldið fram, meðal ann­ars af Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, vara­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að stjórn­ar­meiri­hlut­inn teldi eftir atkvæða­greiðsl­una 33 þing­menn en ekki þá 35 sem sitja á þingi fyrir stjórn­mála­flokk­anna þrjá sem mynda rík­is­stjórn. Málið hefur því haft miklar póli­tískar afleið­ingar.

Þáttur Vilhjálms

Það voru þó fleiri þættir máls­ins sem enn voru óleystir. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður manns sem var dæmdur í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti, vakti athygli á einum þeirra þegar hann lagði fram kröfu í Lands­rétti þann 2. febr­úar 2018 um að Arn­fríður Ein­ars­dóttir, dóm­ari í máli skjól­stæð­ings hans, væri van­hæf vegna þess að hún hefði ekki verið skipuð með réttum hætti í emb­ættið. Arn­fríður var ein þeirra umsækj­enda sem hæf­is­nefndin hafði ekki metað á meðal 15 hæf­ustu, en sem hafði hlotið náð fyrir augum dóms­mála­ráð­herra sem skip­aði hana þrátt fyrir það í emb­ætti.

Lands­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms og sagði að skipun Arn­fríðar yrði ekki haggað. Vil­hjálmur kærði þá nið­ur­stöðu til Hæsta­réttar sem komst að sömu nið­ur­stöðu og Lands­réttur. Þann 24. maí 2018 stað­festi Hæsti­réttur svo dóm Lands­réttar í mál­inu og skjól­stæð­ingur Vil­hjálms var dæmdur í 17 mán­aða fang­elsi.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skaut máli skjólstæðings síns til Mannréttindadómstólsins.
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son skaut máli skjól­stæð­ings síns til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

Vil­hjálmur kærði í kjöl­farið þá nið­ur­stöðu að seta Arn­fríðar í Lands­rétti væri í sam­ræmi við lög til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hann ákvað að taka málið fyrir í lok júní 2018 og veita því flýti­með­ferð.

Í grein­ar­gerð sinni hélt Vil­hjálmur því meðal ann­ars fram að dóms­mála­ráð­herra hefði hand­valið umsækj­endur á þann lista sem hún lagði fyrir Alþingi til sam­þykktar. Það hafi hún gert á grund­velli vin­áttu og póli­tískra tengsla. Í mála­til­bún­aði Vil­hjálms er því haldið fram að Arn­fríður hafi verið skipuð sem hluti af hrossa­kaupum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Brynjar Níelsson gaf í stað­inn eftir odd­vita­sæti sitt í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum til Sigríðar Á. Andersen.

Auk þess hafi Sigríður hafnað öðrum umsækj­endum, sem dóm­nefndin hafi mælt með að skipa, á grund­velli póli­tískra skoð­ana þeirra. Rík­is­lög­maður telur að í þessum mála­til­bún­aði Vil­hjálms felist sú full­yrð­ing að spill­ing hafi ráðið því hverjir hafi verið skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt.

Íslenska ríkið hafn­aði því í grein­ar­gerð sinni að ferlið við skipun dóm­ara við Lands­rétt í fyrra hafi verið gallað eða spillt. Það sagði að skipun Arn­fríðar hefði verið stað­fest með lög­mætu ferli. Ríkið taldi einnig að dómar Hæsta­réttar Íslands, frá því í des­em­ber 2017, þar sem kom­ist er að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Á. Andersen hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum við skipan dóm­ara í Lands­rétt leiddi ekki til þess að Arn­fríður hafi ekki verið lög­lega skipuð.

Þessu var Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu ósam­mála í dómnum sem fimm af sjö dóm­urum hans standa á bak­við, og birtur var í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár