VG: Uppnám millidómsstigs er algjört og það er á ábyrgð ráðherra og ríkisstjórnar

Formaður og þing­flokks­for­maður Vinstri grænna segja að svo gæti farið að Lands­réttur yrði að glíma við van­traust og skort á trú­verð­ug­leika um ára­bil vegna fram­göngu dóms­mála­ráð­herra.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur þver­brotið það ferli sáttar sem Ólöf Nordal, fyr­ir­renn­ari hennar í starfi, hafði leitt fram varð­andi lagaum­gjörð og inn­tak nýs milli­dóm­stigs. Hún hefur gengið á skjön við þann anda sem ríkti á fyrri stigum máls­ins. „Uppnám milli­dóm­stigs­ins er nú algjört, á ábyrgð dóms­mála­ráð­herr­ans og rík­is­stjórn­ar­innar allrar. Enn er ekki séð fyrir end­ann á mála­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­réttur yrði að glíma við van­traust og skort á trú­verð­ug­leika um ára­bil.“ Þetta segja Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður flokks­ins, í grein sem þær skrifa saman á vef Vinstri grænna.

Í grein­inni er fjallað um nýlið­inn þing­vetur með harð­orðum hætti. Á meðal þess sem þær taka á er það sem Katrín og Svandís kalla „loka­afrek rík­is­stjórn­ar­innar“, skipan fimmtán nýrra dóm­ara við nýtt milli­dóms­stig, Lands­rétt. Í grein þeirra segir: „Dóms­mála­ráð­herra vék þar veru­lega frá til­lögu dóm­nefndar og færði fjóra aðila sem metnir voru í hópi fimmtán hæf­ustu umsækj­enda niður og færði upp fjóra aðra, upp­haf­lega með þeim rökum að hún vildi meta dóm­ara­reynslu þyngra en dóm­nefnd hefði gert en í þeim rök­stuðn­ingi sem síðar var lagður fram vís­aði ráð­herr­ann einnig til kynja­sjón­ar­miða og hefur í fjöl­miðlum bent á for­menn stjórn­mála­flokk­anna sem ábyrgð­ar­að­ila fyrir þeim sjón­ar­miðum.“

Grafalvarlegt í lýðræðissamfélagi

Katrín og Svandís segja að Vinstri græn hafi haldið til haga þeim sjón­ar­miðum að sér­stakt til­lit yrði tekið til jafn­rétt­islaga við skipan dóm­ara í Lands­rétt. Þau lög byggi hins vegar á því að umsækj­endur séu jafn hæfir. Dóms­mála­ráð­herra hafi ekki fært nægj­an­leg rök fyrir því að þannig hafi verið hvað varðar þær breyt­ingar á til­nefn­ing­ar­list­anum sem hún gerði. „Því ber að halda til haga að ráð­herr­ann einn ber ábyrgð á sinni til­lögu og getur ekki vísað á aðra í því. Minni­hlut­inn óskaði eftir því að mál­inu yrði frestað og ráð­herra og Alþingi fengju auk­inn tíma til að fara yfir þetta mik­il­væga mál. Við því var ekki orðið og neytti meiri­hlut­inn því afls­munar sinna til að sam­þykkja fimmtán nýja dóm­ara við Lands­rétt í bull­andi ágrein­ingi þar sem aug­ljós­lega hafði ekki gef­ist tími til að fara yfir málið með full­nægj­andi hætti.“

Katrín og Svandís segja það grafal­var­legt í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að svo naumur meiri­hluti skuli fara fram með slíkum hætti þegar um er að ræða eina grein hins opin­bera valds, dóms­valdið, og skipan þess. „Í tíð fyrri ráð­herra mála­flokks­ins var mikil áhersla á að leiða fram lagaum­gjörð og inn­tak nýs dóm­stigs í sátt. Nýr ráð­herra hefur nú þver­brotið það ferli, gengið fram á skjön við þann anda sem ríkti á fyrri stigum máls­ins. Uppnám milli­dóm­stigs­ins er nú algjört, á ábyrgð dóms­mála­ráð­herr­ans og rík­is­stjórn­ar­innar allrar. Enn er ekki séð fyrir end­ann á mála­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­réttur yrði að glíma við van­traust og skort á trú­verð­ug­leika um ára­bil.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár