Gamanið hefst á ný: Stephen Fry byrjaður að tísta aftur

Fjöl­miðla­mað­ur­inn, rit­höf­und­ur­inn, þátta­stjórn­and­inn og gam­an­leik­ar­inn Stephen Fry hefur heldur betur stimplað sig inn sem þjóð­ar­ger­semi Breta í gegnum tíð­ina. Kjarninn kann­aði feril hans og hvað geri hann svo sér­stakan.

Stephen Fry hefur verið kynnir á BAFTA-verðlaunahátíðinni í Bretlandi í ellefu skipti.
Stephen Fry hefur verið kynnir á BAFTA-verð­launa­há­tíð­inni í Bret­landi í ell­efu skipti. Mynd: EPA

Eftir sex mán­aða mál­hvíld á Twitter rauf Stephen Fry þögn­ina og til­kynnti að hann væri far­inn að tísta á ný. Aðdrag­anda brott­hvarfs Fry má rekja til BAFTA-verð­launa­af­hend­ing­ar­innar í febr­úar á þessu ári en hann hætti á Twitter eftir að hafa gert athuga­semdir við klæða­burð eins verð­launa­hafans á sam­fé­lags­miðl­inum. Fry hefur verið dug­legur að tísta nán­ast frá upp­hafi sam­fé­lags­mið­ils­ins en tístin eru orðin tæp­lega 22.000 tals­ins og er hann með yfir 12 milljón fylgj­endur, sem verður að telj­ast nokkuð gott. En hvað hefur Fry gert til að öðl­ast slíkan fylgj­enda­hóp og umtal í fjöl­miðlum?

Twitter fyrir og eftir

Í þessu umdeilda tísti tal­aði hann um bún­inga­hönn­uð­inn Jenny Beavan sem „bag lady“ sem vísar til sóða­legra heim­ils­lausra kvenna. Við­brögðin létu ekki á sér standa og gagn­rýndu hann margir fyrir ummælin. Hann brást ókvæða við og gaf út yfir­lýs­ingu á vef­síðu sinni að hann væri hættur á Twitter. Hann benti á að Beavan, konan sem hann gerði grín að, væri vin­kona hans og að hún hefði ekki tekið illa í athuga­semd­ina. Tístið hefði verið sett fram í góðu og vin­sam­legu gríni.

Sjá má tölu­verða breyt­ingu á Twitter-reikn­ingi hans fyrir og eftir hlé. Frá því Fry byrj­aði aftur að tísta hefur hann ein­blínt á við­burði sem tengj­ast vinnu hans eða mál­efnum sem vekja áhuga hans. Minna er um per­sónu­legar athuga­semdir og er nokkuð ljóst að hann heldur ákveð­inni fjar­lægð við fylgj­endur sína miðað við áður.

Ólátur sem unglingur

Stephen Fry fædd­ist í Hamp­stead í London á Englandi árið 1957. Skóla­ganga hans ein­kennd­ist af vand­ræðum og var honum iðu­lega vikið úr skóla fyrir að óhlýðn­ast eða fyrir skapofsa­köst. Hann hefur sjálfur greint frá því að hann hafi stolið hlutum og pen­ingum sem barn og ung­lingur, ekki vegna þess að hann þyrfti á því að halda, heldur sótt­ist hann eftir spenn­unni sem fylgdi verkn­að­inum.

Þetta náði ákveðnum hápunkti þegar hann var 17 ára en þá hann var napp­aður fyrir kredit­korta­stuld og lát­inn húka í fang­elsi í nokkra mán­uði. Hann segir að þetta atvik hafi mótað hann og að eftir þetta hafi hann hætt að taka hluti ófrjálsri hendi.

Fræg vinátta

Eftir þessar æsku­syndir fór Fry í Cambridge, þar sem hann lærði enskar bók­menntir. Örlaga­valdur hans var þó leik­list­ar­klúbbur skól­ans sem kall­að­ist Footlights Club en þar fékk hann ástríðu fyrir gam­an­leik og leik­list. Hann kynnt­ist einnig sam­starfs­manni sínum og besta vini, Hugh Laurie, sem hann átti eftir að eiga í blóm­legu sam­starfi við næstu ára­tug­ina. Með þeim í klúbbnum var einnig leik­konan Emma Thomson sem síðar átti eftir að vinna til Ósk­arsverð­launa og öðl­ast heims­frægð fyrir leik og hand­rita­gerð.

Fry and Laurie náðu strax vel saman, bæði per­sónu- og fag­mann­lega. Gam­an­þætt­irnir A Bit of Fry & Laurie urðu gríð­ar­lega vin­sælir í Bret­landi og víðar og voru fjórar ser­íur sýndar á BBC á árunum 1989 til 1995. Einnig gerðu þeir félag­arnir saman þætt­ina Jeeves and Wooster, þar sem Fry lék einka­þjón Laurie en atburða­rásin var oft mjög kómísk.

Fleiri þættir komu Fry á kortið. Þar má til dæmis nefna Black-Adder II, þar sem hann lék hinn boru­bratta hers­höfð­ingja Lord Melchett. Hann hefur einnig leikið í fjölda sjón­varps­bíó­mynda og í stór­myndum á við V for Vandetta og The Hobbit. Hann fékk Goben Globe verð­launin fyrir besta leik í aðal­hlut­verki árið 1998 fyrir túlkun sína á Oscar Wilde í kvik­mynd­inni Wilde þar sem hann var sagður fara á kostum.

Einna frægastur mun Fry vera fyrir að vera spyrill og þátta­stjórn­andi í skemmtisp­urn­inga­þætt­inum QI þar sem grínist­inn Alan Davis hefur setið við hlið hans í ell­efu ár. Frétt­næmt þótti á síð­asta ári þegar Fry ákvað að stíga til hliðar og hætta sem spyrill. Davis mun þó halda áfram við hlið hinnar dönsku Sandi Toksvig sem birst hefur iðu­lega í þætt­inum sem gestur fram að þessu.

Áhrifamikill og upptekinn

Ekki síst er Fry þekktur fyrir heim­ilda­þátta­gerð. Hann hefur búið til fjölda þátta þar sem við­fangs­efnin eru marg­vís­leg og sumir þeirra hafa verið sýndir á Rúv. Þar má nefna Stephen Fry in America þar sem hann fór þvert yfir Banda­ríkin á breskum leigu­bíl og kynnti sér menn­ingu og þjóð. Hann gerði einnig þætt­ina Last Chance to See, með dýra­fræð­ingnum Mark Carwardine, og Stephen Fry: Out There þar sem hann fjall­aði um við­horf til sam­kyn­hneigðar um heim allan.

Einnig hefur hann skrifað bækur, tekið þátt í hinum ýmsu spjall­þáttum, búið til útvarps­þætti, leikið á sviði og talað inn á tal­bækur og tölvu­leiki. Hann hefur hlotið heið­urs­dokt­ors­nafn­bót og fengið ýmis verð­laun fyrir störf sín í sjón­varpi. Þegar hann varð fimm­tugur heiðr­aði BBC Four hann með því að til­einka tvö kvöld afmæl­inu með heim­ilda­þáttum um hann. Hann hefur því ótví­ræð áhrif á breskt sam­fé­lag og það krist­all­ast meðal ann­ars í verkum hans og við­brögðum almenn­ings við honum.

Glíma við geðhvarfasýki

En þrátt fyrir mikla vel­gengni um ævina hefur Fry ekki alltaf liðið vel. Hann var greindur með geð­hvarfa­sýki árið 1995 eftir að hafa horfið skyndi­lega eftir sýn­ingu í West End í London. Hann greindi síðar frá því að hann vildi enda líf sitt eða í besta falli flýja lífið eins og hann þekkti það. Síðan þá hefur hann ekki veigrað sér við að tala opin­ber­lega um veik­indi sín en hann bjó til heim­ilda­þætti um geð­hvarfa­sýki, Stephen Fry: The Secret Life of the Manic Depressive, sem áttu eftir að vinna til Emmy verð­launa. Þar greindi hann frá sinni eigin reynslu og tók við­töl við fjölda fólks með sama sjúk­dóm.

Opinn með samkynhneigð

Fry hefur einnig verið ötull tals­maður sam­kyn­hneigðra en hann ákvað eftir að hann varð frægur að fara aldrei í felur með það. Hann gerði eins og áður sagði heim­ilda­þætt­ina Stephen Fry: Out There þar sem hann tal­aði meðal ann­ars við fræga ein­stak­linga á borð við söngv­ar­ann Elton John um reynslu hans og upp­lifun á tímum for­dóma og þröng­sýni. Einkar athygl­is­vert var þegar hann tal­aði við fólk út um allan heim sem bjó við hinar ýmsu félags­legu aðstæður þar sem það lýsti ofsóknum og þeim hrylli­lega veru­leika sem það þurfti að lifa við.

Fry gift­ist uppi­stand­ar­anum og grínist­anum Elliott Spencer í jan­úar 2015 en tölu­vert var fjallað um gift­ing­una í blöðum í Bret­landi. Fry greindi frá áætl­unum sínum að gift­ast á Twitter og úr því varð tveimur vikum síðar.

Hann er númer tvö á lista yfir áhrifa­mestu sam­kyn­hneigða ein­stak­linga í heim­inum árið 2016 á eftir leik­ar­anum Sir Ian McKellen.

Óvarleg ummæli

Fry er vin­sæll við­mæl­andi enda koma blaða­menn og spjall­þátta­stjórn­endur sjaldan að tómum kof­anum hjá honum. Hann tjáir sig um allt milli him­ins og jarðar, allt frá tungu­mál­inu yfir í trú­ar­brögð. Á net­inu má finna ógrynni við­tala við hann í riti, útvarpi eða sjón­varpi. Fyrir vikið hefur hann í gegnum tíð­ina látið ummæli falla sem ekki eru vel séð.

Nýleg­asta dæmið er þegar hann sagði í við­tali fyrr á þessu ári að það ætti að vera hægt að skrifa um til dæmis kyn­ferð­is­of­beldi án þess að eiga á hættu að vera rit­skoð­aður. Hann sagði að ef fólk kæm­ist í upp­nám við að horfa MacBeth vegna eigin per­sónu­legu reynslu þá væri lítið við því að gera og að fólk ætti ekki að vor­kenna sér. „Sjálfs­vor­kunn er ljótasta til­finn­ingin,“ var meðal ann­ars haft eftir Fry. Þessi ummæli fóru ekki vel í marga og þótti sumum hann fara yfir strikið. Hann baðst síðar afsök­unar á orðum sínum og sagð­ist vera miður sín yfir því að hafa móðgað fólk og sært það. Honum hafi mis­tek­ist herfi­lega að koma frá sér því sem hann ætl­aði að segja.

En þrátt fyrir umdeild ummæli og nún­inga á sam­fé­lags­miðlum virð­ist Fry ekki geta slitið sig frá opin­berri umræðu. Hann heldur áfram að tjá sig, hvort sem það er á Twitter eða í gegnum aðra miðla og ekk­ert lát er á störfum þess­arar þjóð­ar­ger­semar Breta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár