Tencent tekur fram úr Facebook

Kín­verska tækni­fyr­ir­tækið Tencent hefur tekið fram úr Facebook í mark­aðsvirði og er nú meðal fimm stærstu fyr­ir­tækja í heimi. Ör vöxtur Tencent og Alibaba á síð­ustu árum sýnir að kín­verski tækni­iðn­að­ur­inn hefur tekið stakka­skiptum.

Starfsemi Tencent er marghliða en þróun fyrirtækisins tengist mjög náið vexti millistéttarinnar og snjallsímavæðingarinnar í Kína.
Starf­semi Tencent er marg­hliða en þróun fyr­ir­tæk­is­ins teng­ist mjög náið vexti milli­stétt­ar­innar og snjall­síma­væð­ing­ar­innar í Kína.


Í lok nóv­em­ber fór mark­aðsvirði Tencent yfir fimm hund­ruð millj­arða mark­aðsvirð­is­þrösk­uld­inn og rétt tók fram úr Facebook, 523 millj­arðir banda­ríkja­dalir á móti 522 millj­arða mark­aðsvirði Facebook. Með því varð Tencent fyrsta kín­verska tækni­fyr­ir­tækið í hópi fimm verð­mæt­ustu fyr­ir­tækja í heimi eftir 127 pró­sent vöxt á þessu ári og fylgir net­versl­un­ar­ris­inn Alibaba fast á eftir. Þá er Tencent eina af fimm verð­mæt­ustu fyr­ir­tækjum í heimi sem er skráð í Hong Kong-kaup­höll­inni.

Starf­semi Tencent er marg­hliða en þróun fyr­ir­tæk­is­ins síð­ustu tvo ára­tugi frá stofnun þess er sam­ofin gríð­ar­lega hraðri efna­hags­þróun, vaxtar milli­stéttar og snjall­síma­væð­ing­ar­innar í Kína.

Úr eftirhermun í frumkvöðlastarfsemi

Lengi vel voru kín­versk tækni­fyr­ir­tæki í hugum margra Vest­ur­landa­búa ódýrar eft­ir­hermur fág­aðri keppi­nauta í Japan og Banda­ríkj­unum. Í mörg ár hefur raunin hins vegar verið önnur; kín­versk fyr­ir­tæki eru fremst í flokki þegar kemur að þróun ofur­tölva, raf­rænna greiðslu-, sam­skipta og sam­göngu­for­rita, og gervi­greind.

Gott dæmi um þessa þróun er vöxtur sam­skipta­for­rits­ins WeChat (eða Weixin) sem er í eigu Tencent. WeChat hefur tæpan millj­arð not­endur, að mestu leyti í Kína, og hefur tek­ist að vaxa á mun víð­feðm­ari hátt en sam­bæri­leg for­rit á borð við WhatsApp, Facebook Messen­ger og iMessage. WeChat er ekki bara spjall­for­rit sem leyfir not­endum að senda ókeypis skeyti, hringja ókeypis sím­töl og þar fram eftir göt­unum þó að grunn­ur­inn að vin­sældum þess byggi á því og for­vera WeChat, spjall­borðs­ins QQ, sem enn má finna á flestum heim­il­is­tölvum í Kína.

WeChat hefur tek­ist það sem flest sam­skipta­for­rit hafa átt erfitt með; að fá not­endur til að tengja greiðslu­kort sín við for­ritið. Kín­verskir neyt­endur not­ast meira við snjall­síma en tölvur þegar kemur að net­notkun og fer um helm­ingur vef­versl­unar fram í gegnum snjall­síma. Í gegnum WeChat er hægt að borga fyrir vörur og þjón­ustu jafnt á net­inu sem í búðum, borga reikn­inga, panta leigu­bíl, panta mat, panta tíma hjá lækni, kaupa utan­lands­ferð og sinna mannauðs­stjórnun svo eitt­hvað sé nefnt. Með öðrum orðum snertir for­ritið flesta fleti fólks í dag­legu lífi.

Tencent fær stóran hluta tekna sinna frá sölu tölvu­leikja - fyr­ir­tækið er stærsti tölvu­leikja­út­gef­andi í heimi ef miðað er við tekjur - en fjár­festar binda miklar vonir við að hægt sé að finna nýjar tekju­lindir í "vist­kerfi" fyr­ir­tæk­is­ins því margir armar þess væru van­nýttir eins og er. Samkvæmt fjár­fest­inga­bank­anum Goldman Sachs mun net­versl­un­ar­geir­inn í Kína tvö­fald­ast frá núver­andi stærð í 2020 og þá verða met­inn á um 1,7 trilljónir Banda­ríkja­dali.

Hnattvæðing kínversku tæknirisanna

Tencent og Alibaba hafa keypt og fjár­fest í ara­grúa af fyr­ir­tækjum víðs vegar um heim til þess að efla sam­keppn­is­stöðu sína. Til að mynda keypti Tencent finnska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Supercell á 8,6 millj­arða banda­ríkja­dali í fyrra, á meðan að Alibaba hefur meðal ann­ars keypt stærsta net­versl­un­ar­fyr­ir­tæki Suð­austur-Asíu, Lazada, á einn millj­arð banda­ríkja­dali.

Þá hefur Tencent breytt nálgun sinni í sam­keppni WeChat við Facebook og Apple. Fyrir örfáum árum var áhersla lögð á að kom­ast inn í vest­ræna mark­aði með öfl­ugri aug­lýs­inga­her­ferð með knatt­spyrnu­mann­inn Lionel Messi sem and­lit fyr­ir­tæk­is­ins. Það hefur ekki tek­ist nægi­lega vel til og hefur Tencent nú í auknum mæli ákveðið að fjár­festa í mörk­uðum þar sem ekk­ert eitt fyr­ir­tæki hefur enn haslað sér völl full­kom­lega, einna helst á Indlandi. Tencent hefur ásamt tævanska fyr­ir­tæk­inu Foxconn fjár­fest í ind­verska spjall­for­rit­inu Hike Messen­ger, og ásamt Microsoft og eBay í ind­verska net­versl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Flipkart.

Sam­keppni tækni­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum og Kína virð­ist vera sterk­ari en nokkru sinni fyrr og eru góðar hug­myndir og útfærslur teknar upp og hermdar eftir af öllum aðilum. Þó er aðdrag­andi núver­andi stöðu að ein­hverju leyti afleið­ing tak­markanna í aðgengi vest­rænna tækni­fyr­ir­tækja að kín­verska mark­aðnum í gegnum fjöl­mörg ár. Eftir því sem að vef­svæði á borð við Google, YouTube og Facebook hafa lengi verið bönnuð, eða þau ákveðið að hætta starf­semi sökum umfangs­mik­illar rit­skoð­unar í Kína, sam­hliða ríkrar áherslu rík­is­ins á upp­bygg­ingu kín­verska tækni­geirans, hafa kín­versk fyr­ir­tæki náð að festa sig í sessi eins og raun ber vitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár