Samdráttur í byggingu íbúða í Reykjavík

Færri íbúðir eru í bygg­ingu í Reykja­vík nú en í sept­em­ber síð­ast­liðnum, sam­kvæmt taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins. 3.255 íbúðir eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu. Viðmið um fjölda nýrra íbúða næst ekki á þessu ári.

3.255 íbúðir eru nú í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt nýjum taln­ingum Samtaka iðn­að­ar­ins. Það er fjölgun um tæp­lega 300 íbúðir frá því í síð­ustu taln­ingu, eða 10%. Langstærsti hluti íbúða sem eru í bygg­ingu eru íbúðir í fjöl­býli, eða 2.947 af 3.255. 308 íbúðir eru í bygg­ingu í rað-, par- og ein­býl­is­húsum.

Í þremur sveit­ar­fé­lögum á svæð­inu hefur íbúðum í bygg­ingu fjölgað á þessu tíma­bili, en í þremur sveit­ar­fé­lögum eru færri íbúðir í bygg­ingu núna en í síð­ustu taln­ingu, sem var í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Í öllum

Í Reykja­vík, langstærsta sveit­ar­fé­lag­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eru nú færri íbúðir í bygg­ingu heldur en í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þá voru 1.266 íbúðir í bygg­ingu en nú í febr­úar voru þær 1.228. Langstærstur hluti þeirra íbúða sem verið er að byggja eru íbúðir í fjöl­býli, 1.181 tals­ins, á meðan verið er að byggja 34 rað- eða par­hús og 13 ein­býl­is­hús í borg­inni.

Í Hafn­ar­firði eru einnig færri íbúðir í bygg­ingu nú en síð­ast­liðið haust, 237 íbúðir nú miðað við 268 íbúðir þá. Á Sel­tjarn­ar­nesi er nú verið að byggja 21 íbúð en þær voru 34 í sept­em­ber.

[links]Í Mos­fellsbæ hefur íbúðum í bygg­ingu fjölgað um tæp­lega 100 á þessu hálfa ári, þær voru 388 í sept­em­ber síð­ast­liðnum en í febr­úar voru 470 íbúðir í bygg­ingu. Í Garðabæ er fjölg­unin einnig veru­leg. Nú eru 602 íbúðir í bygg­ingu þar miðað við 476 tals­ins í sept­em­ber. Sömu sögu er að segja af Kópavogi, en 644 íbúðir eru í bygg­ingu í Kópavogi nú en þær voru 526 í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Mesta pró­sentu­aukn­ingin hefur orðið í bygg­ingu ein­býl­is­húsa, 30,9 pró­sent frá því í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Á sama tíma hefur aukn­ingin verið 10,6 pró­sent í fjöl­býl­is­húsum en fækkun um sjö pró­sent í par- og rað­húsum.

Spá 1.600 tilbúnum íbúðum á þessu ári

Samtök iðn­að­ar­ins setja einnig fram upp­færða spá um íbúða­fjölgun fram til árs­ins 2020. Nú er því spáð að á þessu ári verði lokið við bygg­ingu rétt tæp­lega 1.600 íbúða, sem er 200 íbúðum frá við­miði sam­tak­anna um að 1.800 íbúðir þurfi að byggja á ári. Hafin verður bygg­ing á rúm­lega 2.400 íbúðum á árinu að mati SI.

Á næsta ári fer fjöld­inn upp fyrir við­miðið, og lokið verður við 1.921 íbúð. Árið 2019 spá sam­tökin því að lokið verði við bygg­ingu rúm­lega 2.600 íbúða, og sömu sögu verði að segja árið 2020.

Sýnir nauðsyn betri áætlanagerðar

Hagdeild Íbúða­lána­sjóðs brást við taln­ing­unni í morgun, og segir hana sýna að spár síð­ustu ára um fjölda nýbygg­inga hafa ekki gengið eftir. Byrjað hafi verið að byggja 438 færri íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár en sam­tökin höfðu spáð fyrir ári síðan. Ein helsta skýr­ingin er talin sú að langan tíma tekur að koma sumum verk­efnum af stað.

„Hagdeild Íbúða­lána­sjóðs telur að taln­ing Samtaka iðn­að­ar­ins varpi ljósi á mik­il­vægi bættrar áætl­ana­gerðar í hús­næð­is­málum hér á landi. Áætl­un­ar­gerð í hús­næð­is­málum er eitt af nýjum hlut­verkum Íbúða­lána­sjóðs en með nýlegum breyt­ingum á lögum um hús­næð­is­mál var sjóðnum falið að aðstoða sveit­ar­fé­lög lands­ins við gerð hús­næð­is­á­ætl­ana. Hluti af þeirri vinnu er að spá fyrir um hús­næð­is­þörf á kom­andi árum og sýna fram á lang­tíma­á­ætl­anir um upp­bygg­ingu hús­næðis,“ segir í til­kynn­ingu Íbúða­lána­sjóðs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár