Samstillt átak þarf að til að ná jafnvægi

Auka þarf fram­boð af íbúðum á fast­eigna­mark­aði til að skapa meira jafn­vægi á mark­aðnum.

Það vantar á bilinu sjö til átta þúsund íbúðir inn á markað til að anna eftirspurn, samkvæmt greiningum á húsnæðismarkaði.
Það vantar á bil­inu sjö til átta þús­und íbúðir inn á markað til að anna eft­ir­spurn, sam­kvæmt grein­ingum á hús­næð­is­mark­aði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fátt bendir til ann­ars en að þörf sé á miklu upp­bygg­ing­ar­átaki á fast­eigna­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að skapa jafn­vægi á mark­aðnum en sam­kvæmt grein­ingum Þjóð­skrár og Sölva Blöndal, hag­fræð­ings hjá Gamma, þá vantar á bil­inu 7 til 8 þús­und íbúðir, einkum litlar og með­al­stórar, inn á markað til að anna eft­ir­spurn­inni. Þrátt fyrir að mikil upp­bygg­ing­ar­á­form séu nú í gangi, þá virð­ist vanta mikið upp á ennþá.

Kortlagning og svo aðgerðir

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru stjórn­völd nú að vinna að ítar­legri kort­lagn­ingu á stöðu mála, með það að mark­miði að und­ir­byggja sem best aðgerðir sem eiga að stuðla að því að hraða upp­bygg­ingu og koma á meira jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði. Þor­steinn Víglunds­son, vel­ferð­ar­ráð­herra, hefur talað um að þessi vinna njóti for­gangs hjá stjórn­völdum.

Í gær var greint frá því að Reykja­vík­ur­borg hafi gengið frá úthlutun lóða til Bjargs íbúða­fé­lags sem rekið er án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, en stofn­endur þess eru ASÍ og BSRB. Félaginu er ætlað að tryggja tekju­lágum fjöl­skyldum á vinnu­mark­aði aðgengi að ódýru, öruggu og vönd­uðu íbúð­ar­hús­næði. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri afhenti Gylfa Arn­björns­syni for­seta ASÍ, Elín Björgu Jóns­dóttur for­manni BSRB og Birni Trausta­syni fram­kvæmda­stjóra Bjargs - íbúð­ar­fé­lags lóða­bréf þessu til stað­fest­ingar í Spöng­inni í gær.

Úthlutun á næstu árum

Á þessu ári er gert ráð fyrir að úthlutað verði lóðum fyrir 250 íbúðir, árið 2018 verði úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir og árið 2019 verði úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir. Í fyrra var fyrsti skammt­ur­inn í þess­ari áætlun, en þá var 150 lóðum úthlutað.

Þetta er svo aðeins dropi í hafið, þegar litið er til stöð­unnar á mark­aðnum í dag. Þróun fast­eigna­verðs ber þess glögg merki að mikil eft­ir­spurn sé á mark­aðnum, miðað við tak­markað fram­boð. Fast­eigna­verð hefur hækkað um 18,6 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum og gera flestar spár ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun, eða um allt að 30 pró­sent á næstu tveimur árum.

Einn af þeim sem hefur áhyggjur af stöðu mála er Gylfi Gíslason, vara­for­maður Mann­virkis - félags verk­taka. Í við­tali við RÚV í gær sagði hann að alltof lítið hefði verið um lóða­út­hlut­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að und­an­förnu. Nauð­syn­legt væri að grípa til sam­stilltra aðgerða, milli ríkis og sveit­ar­fé­laga, til að ná meira jafn­vægi og aðstoða ungt fólk við að koma þaki yfir höf­uðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár