Ísland toppar listann yfir hækkun húsnæðisverðs í heiminum

Hús­næð­is­verð hefur rokið upp síð­ustu ár og mán­uði, og ekki sér fyrir end­ann á því ennþá.

Hvergi í heim­inum hækk­aði hús­næð­is­verð meira á milli áranna 2015 og 2016 en á Íslandi, sam­kvæmt grein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins Knight Frank. Hækkunin á milli síð­ustu fjórð­unga 2015 og 2016 er metin 14,7 pró­sent en með­al­talið í heim­inum er um 6 pró­sent og í Evrópu 5,4 pró­sent.

Hækkunin hefur þó verið enn meira hér á landi á síð­ustu mán­uðum, og metur Þjóðskrá hækk­un­ina nú 18,6 pró­sent. Mælt er út frá þing­lýstum kaup­samn­ingum og því um frum­gögn að ræða.

Í skýrslu Knight Frank er verð­hækk­unin á Íslandi rakin til styrk­ari efna­hags og auk­ins áhuga erlendra fjár­festa á Íslandi. Ein vega­mesta ástæða hækk­un­ar­innar er þó sú, að mikil þörf er á því að auka fram­boð lít­illa og með­al­stórra íbúða, og metur Þjóðskrá vönt­un­ina um átta þús­und íbúðir.

Stjórn­völd vinna nú að því að kort­leggja upp­lýs­ingar um stöðu mála með það að mark­miði að flýta upp­bygg­ingum íbúða og auka fram­boð eigna. Sam­ráðs­fundur með for­svars­fólki sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór fram í dag, þar sem Þor­steinn Víglunds­son, vel­ferð­ar­ráð­herra, ræddi um stöðu mála, en rík­is­stjórnin hefur boðað aðgerðir á næstu vikum til að létta á spennu á mark­aði auka fram­boð eigan.

Samkvæmt tölum Knight Frank hefur fast­eigna­verð hækkað næst mest á Nýja Sjálandi, um 12,7%, og þar á eftir á Möltu og í Kanada. Nýja Sjáland hefur líkt og Ísland verið að ganga í gegnum gríð­ar­lega miklar breyt­ingar sam­hliða vexti í ferða­þjón­ustu, sem hefur haft mikil áhrif á gang efna­hags­mála til hins betra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár