Spjótin beinast að innviðum bankakerfisins í höftum

Meðan unnið er að afnámi eða rýmkun fjár­magns­hafta, er eðli­legt að beina spjót­unum að íslenska banka­kerf­inu og hvernig inn­viðir þess eru um þessar mundir í hinni fölsku ver­öld hafta­bú­skapar. Samkvæmt nýj­ustu birtu hag­tölum Seðla­banka Íslands blasir við mynd af banka­kerfi sem er svo gott sem ein­angrað frá alþjóða­mörk­uðum, og sækir fjár­mögnun nær ein­göngu til almenn­ings og íslenskra fyr­ir­tækja í formi inn­lána. Eigið fé hefur byggst hratt upp í bönk­unum, og er það álitið með sterka stöðu í augna­blik­inu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem birst hafa Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands.

bankakerfi-innlan-fra-odrum-en
banka­kerfi-innlan-fra-odrum-en

Ómögu­legt er að um það að spá hvernig heim­ili og fyr­ir­tæki munu bregð­ast við, þegar stjórn­mála­menn munu rýmka eða afnema höftin sem þeir komu á með lögum í nóv­em­ber 2008. Á end­anum er það alltaf póli­tísk aðgerð stjórn­mála­manna að rýmka eða afnema fjár­magns­höft, enda eru þau bundin við laga­texta sem Alþingi sam­þykkti inn í lög. Hversu margir munu færa sparnað sinn til þegar höftin verða rýmkuð eða afnumin? Það er spurn­ing sem erfitt er að svara, en ekki síst í ljósi þess skiptir máli hvernig inn­viðir banka­kerf­is­ins eru núna, tæp­lega sex og hálfu ári eftir hrun Kaup­þings, Lands­bank­ans og Glitnis, og end­ur­reisn nýs kerfis á þeim grunni.

Eignahliðin


Heild­ar­eignir inn­láns­stofn­ana, það er end­ur­reistu bank­anna og ann­arra inn­láns­stofn­anna, námu rúm­lega þrjú þús­und millj­örðum króna í lok des­em­ber 2014 og lækk­uðu um 128,9 millj­arða í þeim mán­uði. Af heild­ar­eignum námu inn­lendar eignir 2.625,2 millj­örðum og lækk­uðu um 59 millj­arða í mán­uð­inum. Erlendar eignir inn­láns­stofn­ana námu 392,9 millj­örðum og lækk­uðu um 69,9 millj­arða í des­em­ber, sam­kvæmt hag­tölu­yf­ir­liti Seðla­banka Íslands.

Skuldahliðin


Skuldir inn­láns­stofn­ana námu 2.423,7 millj­örðum í lok des­em­ber og lækk­uðu um 135,9 millj­arða í mán­uð­inum. Þar vega lang­sam­lega þingst inn­láns­skuld­bind­ingar. Inn­lendar skuldir námu 2.274,6 millj­örðum og lækk­uðu um 129,4 millj­arða í mán­uð­inum. Erlendar skuldir inn­láns­stofn­ana námu 149,1 millj­örðum og lækk­uðu um 6,5 millj­arða í des­em­ber. Eigið fé inn­láns­stofn­ana nam 594,4 millj­örðum, í lok des­em­ber og hækk­aði um sjö millj­arða króna. Það er upp­hæð sem nemur tæp­lega þriðj­ungi af árlegri lands­fram­leiðslu Íslands, sem nam ríf­lega 1.800 millj­örðum króna 2013, og telst það vera hátt í alþjóð­legu sam­hengi.

Ný útlán námu 272,2 millj­örðum í des­em­ber þar af eru verð­tryggð lán 44,3 millj­arðar, óverð­tryggð lán 123,3 millj­arðar, geng­is­bundin lán 101,3 millj­arðar króna og eign­ar­leigu­samn­ingar 3,3 millj­örðum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum seðla­bank­ans. Ný útlán að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum námu 5,4 millj­örðum.

Lífeyrissjóðirnir með háar fjárhæðir í innlánum


Fjár­magns­höftin hafa haft mikil áhrif á líf­eyr­is­sjóða­kerfið. Heild­ar­eignir þess nema rúm­lega þrjú þús­und millj­örðum, erlendar eignir, aðal­lega bundnar í verð­bréfum, nema rúm­lega 660 millj­örðum og íslenskar eignir eru um 2.100 millj­arðar króna. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga mikla fjár­muni í banka­inni­stæðum, sem gefur ákveðna vís­bend­ingu um hversu erfitt það er fyrir sjóð­ina að finna fjár­fest­inga­mögu­leika. Innlán sjóð­anna nema ríf­lega 160 millj­örðum króna, en áður en höftin voru lög­fest þá var aðeins lít­ill hluti af þeirri fjár­hæð geymdur í inn­lánum eins og með­fylgj­andi mynd sýnir.

bankainnistaedur (1)
banka­innista­edur (1)

Stóra spurn­ingin er sú, hvernig þróun inn­lána í banka­kerf­inu verður þegar höftin verða rýmkuð eða þau afnumin. Mun fjár­magn frá almenn­ingi leita út úr kerf­inu í meira mæli en margir reikna með, eða mun lítið breyt­ast? Erfitt er að átta sig á þessu. Hvað líf­eyr­is­sjóð­ina varðar er lík­legt að þeir muni þurfi að stýra sínum fjár­fest­ingum sam­kvæmt reglu­verki þar um, líkt og kynnt hefur verið í skýrslum Seðla­banka Íslands um þessi mál. Í þeim skiln­ingi verða höftin kannski aldrei afnumin að fullu.

Í skil­grein­ingum á fjár­mála­mark­aði hefur sparn­aður almenn­ings og líf­eyr­is­sjóð­anna ekki verið tal­inn vera hluti af hinu svo­nefndu snjó­hengju, það er skamm­tímakrónu­eign erlendra aðila hér á landi. Hún nemur nú um 300 millj­örðum króna, og hefur minnkað um tæp­lega 160 millj­arða á und­an­förnum fjórum árum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem grein­ing­ar­deild Arion banka tók saman á dög­unum eftir að útboðum í tengslum við fjár­fest­inga­leið­ina svo­nefndu lauk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár