Áreiti tilkynnt til héraðssaksóknara

Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu til­kynnti áreiti af hendi Jóns Óttars Ólafs­sonar til emb­ættis hér­aðs­sókn­ara í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Jóhannes Stefánsson
Jóhannes Stef­áns­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu og fyrr­ver­andi starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins, til­kynnti áreiti af hendi Jóns Óttars Ólafs­sonar, sem starfað hefur fyrir Samherja sem ráð­gjafi, til emb­ættis hér­aðs­sókn­ara í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Stundin greinir frá.

Jóhannes segir í sam­tali við Stundina að hann hafi verið að koma af fundi með vini sínum þegar hann hafi rek­ist á Jón Óttar. Hann segir að þeir hafi tekið tal saman sem hafi endað með því að Jón Óttar hafi byrjað að taka upp mynd­band af honum á sím­ann sinn og að hann hafi svo elt sig. „Maðurinn elti mig að bílnum mínum, opn­aði far­þega­hurð­ina að framan og tók upp mynd­band af mér. Þetta er bara klikkun,“ segir Jóhannes.

[adspot]

Ekki um eiginlega kæru að ræða

Jóhannes segir að hann hafi til­kynnt málið strax í kjöl­farið til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara til að emb­ættið hefði það á skrá í kerfum sínum þar sem mik­il­vægt væri að til væru skráðar upp­lýs­ingar um slíkt áreiti ef það myndi halda áfram eða áger­ast. Hann segir að sér hafi fund­ist fram­koma Jóns Óttars vera ógn­andi.

[links]Í frétt Stund­ar­innar um málið segir að ekki hafi verið um eig­in­lega kæru að ræða sem fór í form­legt ferli innan emb­ætt­is­ins heldur til­kynn­ingu um málið þar sem Jóhannes hafi viljað að emb­ættið vissi af þessu. „Einnig skal tekið fram að Jón Óttar hót­aði Jóhann­esi ekki með beinum hætti þó hann hafi elt hann og opnað hurð­ina að bíl hans,“ segir í frétt­inni. Jón Óttar vildi ekki tjá sig um málið við Stundina.

Neitar ásökunum

Í frétt DV um málið segir að Jón Óttar neiti ásök­unum Jóhann­esar alfarið og að í raun hafi Jóhannes verið að ásækja sig. Hann segir að Jóhannes hafi nú um mán­aða skeið setið um hús sitt. Jón full­yrðir einnig að aðrir starfs­menn Samherja hafi orðið vitni að grun­sam­legum ferðum Jóhann­esar.

„Ég hlakka til að láta lög­regl­una vita af þessu,“ segir Jón Óttar í sam­tali við DV. Hann seg­ist einnig spenntur að sjá hvort að hann verði kærður af Jóhann­esi. „Ég hef ekk­ert skipt mér af þessum manni.“

Ítrekað áreiti Jóns Óttars

Kjarninn greindi frá því fyrir helgi að Jón Óttar hefði ítrekað áreitt Helga Seljan, blaða­mann á RÚV, síðan umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar birt­ist í nóv­em­ber síð­ast­liðnum um umsvif Samherja í Namibíu.

Helgi sagði í sam­tali við Kjarnann að Jón Óttar hefði margoft átt við hann orða­stað á þessum tíma. „Þegar ég hef verið á Kaffi­fé­lag­inu þá hefur hann komið inn og spjallað við mig. Fyrst til að byrja með spjall­aði ég við hann og var að reyna að átta mig á því hvað hann væri að gera. Síðan verður þetta mikið skrítn­ara og það tók eig­in­lega stein­inn úr þegar hann kom þangað eftir að ég var í við­tali á Rás 2 ein­hvern morg­un­inn og til­kynnti mér það að hann vissi hvert Jóhannes væri fluttur.“

Þarna átti Helgi við fyrr­nefndan Jóhannes Stef­áns­son. Hann sagði að sér hefði fund­ist þessi orða­skipti vera skrítin. „Ég átti vænt­an­lega að koma þessum upp­lýs­ingum til Jóhann­esar sem átti að verða ótta­sleg­inn, eða eitt­hvað. Það er nátt­úru­lega alveg hægt að kom­ast að því hvar Jóhannes býr en hann var nýfluttur svo það var mjög sér­stakt að hann hafi verið með þetta allt á hreinu. Hann telur sig ein­hvern veg­inn vera að feta ein­stigi milli þess að vera ógn­andi og bögg­andi.“

Samkvæmt Helga höfðu þessi sam­skipti verið til­kynnt til hér­aðs­sak­sókn­ara sem nú rann­sakar umsvif Samherja í Namibíu. „Þarna er maður sem teng­ist mál­inu beint að koma með eitt­hvað sem verður ekki skilið öðru­vísi en sem dul­búin hótun,“ sagði hann í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár