„Við vitum ekkert hvað gerist næst”

Vivian Motzfeldt, utan­ríkis­ráðherra Grænlands, táraðist á flug­vellinum í Nuuk þegar landsmenn fögnuðu henni eftir erfið fundarhöld til að bjarga fullveldi og sjálfs­ákvörðunar­rétti þjóðarinnar.

Vivian kemur heim
Vivian kemur heim Utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, Vivian Motzfeldt, kemur heim eftir erf­iða fundi. Mynd: Golli

Ég ákvað bara í morgun að koma með börnin hingað,“ segir fylgdar­kona leik­skólabarna sem eru fyrst á flug­völlinn í Nuuk til að bíða komu Vivian Motzfeldt, utan­ríkis­ráðherra grænlensku land­stjórnarinnar, ásamt fjölda alþjóðlegra blaða­manna. Börnin bíða spennt í umferðar­vestum og sum með fána meðan blaðamenn frá öllum heims­hornum stilla upp upptöku­vélum og fylgjast með komu flug­vélarinnar frá Kaupmanna­höfn. Smám saman tínist inn fleira og fleira fólk, allt þar til það er orðið stappað á flug­vellinum. Blaðamenn og ljós­myndari Heimildarinnar eru á staðnum.

Líkt og kunnugt voru Motzfeldt og Lars Lykke Rasmussen, utan­ríkis­ráðherra Danmerkur, fulltrúar Grænlands í síðustu viku á fundi í Washington ásamt vara­forseta Banda­ríkjanna, JD Vance og utan­ríkis­ráðherranum Marco Rubio, þar sem rætt var um Grænland vegna ásælni bandarískra yfirvalda.

En nú er Vivian að koma heim með dönsku vélinni, frá Banda­ríkjunum og Brussel, líka búin að funda með varnarmála­ráðherrum Norður­landanna og framkvæmda­stjóra Atlandshafsbandalagsins. Andrúms­loftið er nú þrungið þegar hún er við það að stíga inn í komu­salinn.

Vanmáttur einkennir fámennt samfélag í kastljósi alþjóðlegrar umræðu um framtíð landsins, óvissan er orðin daglegt brauð, sem er bæði óvænt og reynir á almenning. Því virðist fólki umhugað um að tjá þakklæti sitt.

„Ég er hér til að bjóða Vivian Motzfeldt velkomna,“ segir Helene Heime sem er alin upp á norður Grænlandi, grænlensk en með danskan ríkis­borgararétt. Hún bíður á flug­vellinum ásamt tveimur vinkonum sínum. Hún segist vera áhyggju­full, líkt og svo margir nú.

Vivian kemur heimGræn­lenski utan­rík­is­ráð­herr­ann tárað­ist við kom­una.Auður Jóns­dóttir

„Ég kom hingað til að sýna utan­ríkis­ráðherra okkar að við erum hér til staðar. Það er allt svo undarlegt sem er nú að gerast í kringum Grænland,” segir brosmild kona, Najak Halmen – ef nafnið er rétt stafað, hávaðinn á flug­vellinum truflar upptökuna. Hún tekur fram að þau hafi aldrei upplifað eins mikla athygli og nú. „Við vitum ekkert hvað gerist næst en hún er að vinna gott starf.”

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið undanfarið ár