Ósóngatið ekki stærra síðan 1991

Óson­lagið er enn götótt og á hverju hausti stækkar gatið yfir Suð­ur­skaut­inu. Í haust stækk­aði það meira en það hefur gert í 20 ár.

Ósongatið hefur ekki verið jafn stórt síðan árið 1991.
Ósongatið hefur ekki verið jafn stórt síðan árið 1991.

Árleg þynn­ing óson­lags­ins yfir Suð­ur­skaut­inu var sú mesta síðan 1991. Gatið í óson­lag­inu varð jafn­framt til síðar á árinu en venju­lega og var opið tveimur vikum lengur. Óso­neyð­andi efni í and­rúms­loft­inu eiga enn sök í máli en nátt­úru­legir þættir eins og óvana­legir vindar í heið­hvolf­inu höfðu einnig áhrif.

Í ár hvarf óson­lagið yfir Suð­ur­skaut­inu nær alveg. „Í sept­em­ber ár hvert sjáum við venju­lega mikla eyð­ingu ósóns, sem nær hámarki í um það bil 95 pró­sent eyð­ingu um mán­að­ar­mótin sept­em­ber-októ­ber,“ er haft eftir Bryan Johnson, vís­inda­manni hjá Earth System Research Laboratory, á Climate Central. „Í ár hélt eyð­ing ósons áfram tveimur vikum lengur sem varð til þess að nær allt óson var horfið yfir suð­ur­pólnum 15. októ­ber.“

Óson­lagið er lag ósons (O3) í heið­hvolf­inu sem verður fyrir áhrifum hálofta­veð­urs. Ósonið hefur mik­il­vægu hlut­verki að gegna í heið­hvolf­inu því það hindrar óholla geisla sól­ar­innar frá því að lenda á yfir­borði jarð­ar­innar. Í gegnum gatið sleppa því geislar sólar sem hafa til dæmis bein áhrif á stærð ísbreið­unnar á suð­ur­skaut­inu.

Hvenær uppgvötuðum við gatið?

Ósongatið varð frægt um miðjan níunda ára­tug síð­ustu aldar þegar vís­inda­menn á suð­ur­pólnum voru að gera rann­sóknir á loft­hjúpi jarðar. Fyrsta mæl­ingin sýndi svo lítið magn ósons yfir haus­unum á þeim að þeir töldu mæli­tækin biluð. Nokkrum mán­uðum síðar bár­ust ný mæli­tæki og sýndu sömu nið­ur­stöður: Magn ósons yfir heim­skaut­inu var svo lítið að af því hlyti að steðja vá.

Svona segja áhuga­menn um gatið á óson­lag­inu sög­una um hvernig þetta vanda­mál varð fyrst við­ur­kennt í fræða­sam­fé­lag­inu. Aukin þynn­ing óson­lags­ins hafði verið til umræðu í um ára­tug áður, en aldrei höfðu feng­ist eins dramat­ískar mæl­ingar og árið 1985.

Um svipað leyti var að verða mikil vit­und­ar­vakn­ing um umgengni mann­fólks á jörð­inni. Ári eftir að sannað var að óson­lagið var götótt sprakk heill kjarna­ofn í Úkraínu og meng­aði gríð­ar­stórt land­svæði svo að þar verður ekki hægt að búa næstu 600 árin. Þremur árum síðar kom í ljós að gríð­ar­stór rusla­eyja flýtur með haf­straumum Kyrra­hafs­ins og nú, rúmum 20 árum síðar, erum við búin að hita and­rúms­loftið svo mikið að sífrer­inn í norð­an­verðu Rúss­landi er far­inn að bráðna og auka á gróð­ur­húsa­á­hrifin.

Ósonlagið þynnist enn

Ljóst var að ekki væri hægt að leyfa óson­inu í heið­hvolf­inu, ein­hverjum 15 til 30 kíló­metrum yfir jörð­inni, að eyð­ast frekar og mikil umræða spratt upp umræðu í um „ósongatið“ meðal almenn­ings og í fjöl­miðlum á tíunda ára­tugnum. Börnum var kennt um áhrif nútíma­manns­ins á umhverfið í skólum og ýmis skað­leg efni voru hrein­lega bönnuð með tíma­móta­samn­ingi allra ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 1989.

Lesendur Kjarnans ættu einnig að muna eftir umræð­unni sem náði hámarki á tíunda ára­tugnum um aukna hættu á krabba­meini vegna útfjólu­blárrar geisl­unar og áhrifa ósongat­s­ins á uppi­stöðu­fæðu í sjónum. En síðan er eins og gatið á óson­lag­inu, þarna yfir Suð­ur­skauts­land­inu, hafi bara gufað upp. Því er kannski mál að spyrja hvað hafi eig­in­lega orðið um það.

Skemmst er frá því að segja að gatið er þarna enn. Und­an­farin 15 ár eða svo hafa orðið gríð­ar­lega fram­farir í mæl­ingum á ósoni í loft­hjúpi jarðar. Geim­ferða­stofnun Banda­ríkj­anna rann­sakar gatið yfir suð­ur­skauts­land­inu sér­stak­lega og Finnar eru orðnir leið­andi meðal Evr­ópu­þjóða í rann­sóknum á ósoni á norð­ur­hveli jarðar. Eiga Geisla­varnir íslenska rík­is­ins í sam­starfi með Finnunum.

Óson­lagið er þó ekki jafn­götótt og tætt allan árs­ins hring. Raunar hefur alltaf verið vitað að magn ósons er minnst við mið­baug og verður svo meira þegar nær dregur heim­ skaut­unum. Því er magn ósons yfir Íslandi yfir­leitt mun meira en yfir Sahara­eyði­mörk­inni, til dæmis.

Klórflúorkolefnum um að kenna

Gatið yfir suð­ur­pólnum er ekki stöðugt heldur birt­ist það og breyt­ist árs­tíða­bundið. Á vor­dögum á suð­ur­hveli jarðar eyð­ist óson mun hraðar en eðli­legt er. Alltaf þegar fyrstu haust­lægð­irnar ná ströndum Íslands í sept­em­ber fer óson­ lagið yfir Suð­ur­skauts­land­inu að þynn­ast gríð­ar­lega hratt.

Ástæða þessa er í raun ein­föld en til að skilja eyð­ingu ósons er gott að vita hvernig það verður til. Óson er nefni­ lega bara þrjár súr­efn­is­frum­eindir (O3) og verður til þegar tví­atóma súr­efni (O2, efnið sem við öndum að okkur og köllum alla jafna súr­efni) flýtur upp í heið­hvolfið þar sem sólar­ geisl­arnir eru sterk­ari og ná að kljúfa atómin. Stöku atómin tengj­ast svo tví­atóma súr­efn­is­sam­eindum og mynda óson.

Kynnum þá til leiks klór­flú­or­kolefni. Það eru efnin sem bönnuð voru í Montréal­bók­un­inni árið 1989 og finna mátti í hárúða og ísskápum. Mikið af klór­flú­or­kolefni flýtur enn um í loft­hjúpi jarðar og safn­ast það jafnan saman á vetrum í kalda og dimma loft­inu yfir suð­ur­skaut­inu. Um leið og vorar og geislar sólar verða sterk­ari á suð­ur­hvelinu kljúfa geisl­arnir klór­flú­or­kolefnin. Verða þá til klór­frum­eindir sem síðan stela tví­atóma súr­efni sem ekki hefur klofnað. Því verður ein­fald­lega ekki til nýtt óson yfir suð­ur­skaut­inu á vorin.

Montréal­bókunin var gerð árið 1989 en síðan hafa verið haldir fjölmargir fundir til eftirfylgni og innleiðingar tilskipana sem sátt náðist um fyrir 26 árum.
Montréal­bókunin var gerð árið 1989 en síðan hafa verið haldir fjölmargir fundir til eft­ir­fylgni og inn­leið­ingar til­skip­ana sem sátt náðist um fyrir 26 árum.

Þetta á í raun ekki aðeins við um suður­ hveli jarðar því hér á norð­ur­hvelinu gætir þess­ara áhrifa líka. Á vetrum verður til hring­straumur í heið­hvolf­inu yfir norð­ur­skaut­inu vegna gróð­ur­húsa­á­hrifa og þegar heið­hvolfið kólnar niður fyrir ­80°C mynd­ast glit­ský, sem eru í raun ský úr ískristöllum. Klór­sam­eindir í loft­inu kom­ast þá í snert­ingu við ískrist­all­ana og mynda hvarf­gjarnar sam­eindir sem eyða að lokum óson­inu. Því kald­ara sem er í heið­hvolf­inu, þeim mun meira eyð­ist af ósoni.

Talið er að þetta ástand sé við­var­andi vegna þess að hin skað­legu klór­flú­or­kolefni sem sleppt var út í and­rúms­loftið í miklu magni á síð­ari hluta 20. aldar eru enn í loft­inu. Mun það taka þessi efni nokkra ára­tugi að brotna niður í heið­hvolf­inu. Náttúran mun því á end­anum laga óson­lagið fyrir okkur, sem hefði hugs­an­lega ekki verið hægt hefðu klór­flú­or­kolefnin ekki verið bönnuð. Sumir vís­inda­menn segja að árið 2080 verði magn ósons í heim­inum orðið jafn mikið og það var árið 1950.

Þessi grein er byggð á grein úr Kjarn­anum í júlí 2014 sem birt­ist undir fyr­ir­sögn­inni „Hvað varð um Ósongatið?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár